Ljósmæðrablaðið - 01.07.1988, Blaðsíða 29
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
29
sekkirnir eru fullir af, síðan er ómhausnum rennt yfir kvið konunnar
og myndin birtist á skerminum sem konan og skoðandinn horfa á.
Algengt er að konurnar takj eiginmann og börn með, pg hafa flestir
mikla ánægju af, myndist strax náin tengsl við hina ófæddu veru sem
sést hreyfa sig á skerminum.
Hér á kvennadeildinni er lagt til að sónarskoðun sé gerð að jafnaði
einu sinni á meðgöngunni við 18-19 vikur meðgöngu, en á öðrum tíma
ef tilefni er til. Þetta er gert vegna þess að skoðun á þessum tíma
nýtist best. Þá fæst góð vitneskja um meðgöngulengd og yfirleitt er
hægt að skoða fóstur mjög vel m.t.t. sköpunargalla, staðsetja fylgju
með mikilli nákvæmni, legvatnsmagn og fjölda fóstra. Miðað við
þessa skoðun er árangur annarra skoðana í meðgöngu takmarkaðri,
nema helst við vissa sjúkdóma í meðgöngu eða hjá áhættuhópum.
Ekki er hægt að svo stöddu að mæla með því að allar konur séu skoð-
aðar við 31. viku eins og sumsstaðar er gert erlendis vegna þess að
þær hendingarannsóknir sem gerðar hafa verið á þessum tíma hafa
ekki augljóslega sýnt ávinning af slíkum skoðunum.
Tilgangur sónarskoðana á 12. viku:
1. Greina afbrigðilegar þunganir, dáið fóstur, fósturvisnun,
blöðrufóstur, utanlegsfóstur.
2. Ákvarða meðgöngulengd.
3. Greina fleirbura.
4. Staðfesta meðgöngulengd m.t.t. Chorion biopsiu og leg-
vatnsástungu.
5. Greina afbrigði sjúkdóma á kynfærum, legvöðvahnúta,
blöðrumyndun í eggjastokkum, tvískipt leg.
A síðari hluta meðgöngu:
1. Greina hvort fósturvöxtur er eðlilegur eða ekki.
2. Fylgjast með fósturvexti vegna gruns um vaxtarseinkun eða
þar sem truflun er á fósturvexti (fyrri léttburafæðingar,
hækkaður blóðþrýstingur, fleirburameðganga, sykursýki
resus-immunosering).
3. Greina fyrirsæta, lágsæta fylgju og mögulega orsök blæð-
ingar.
4. Greina fósturstöðu vegna gruns um sitjanda stöðu, þverlegu.
5. Fá síðbúna greiningu á fósturgöllum.