Ljósmæðrablaðið - 01.07.1988, Blaðsíða 12
12
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
5. gr. Fjármálaráðuneytið skal greiða gjaldfallin orlofslaun iyrir
liðinn mánuð til Póstgíróstofunnar í síðasta lagi fyrir 10. næsta mán-
aðar á eftir. Dráttarvextir greiðist að þeim tíma liðnum. Greiðslum
skal fylgja skilagrein á sérstöku eyðublaði frá launagreiðanda.
6. gr. Á þriggja mánaða fresti skal Póstgíróstofan senda launþegum
yfirlit yfir orlofsinneign hvers og eins sundurliðað eftir launatíma-
bilum. Hafi launþegi athugasemdir fram að færa, skal hann koma
þeim á framfæri eins fljótt og auðið er.
4. KAFLI: Um ávöxtun orlofslauna.
7. gr. Á orlofslaun hvers launþega skal reikna verðbætur eins og á
innistæður á verðtryggðum innlánsreikningum í Landsbanka íslands.
Vaxtakjörin skuli ákveðin árlega í sérstöku samkomulagi aðila með
hliðsjón af vaxtakjörum á 6 mánaða bundnum innlánsreikningum
ríkisbankanna.
5. KAFLI: Um greiðslu orlofslauna.
8. gr. Orlofslaun fyrir næstliðið orlofsávinnsluár ásamt verðbótum
og vöxtum, skal greiða til orlofsþega, á tímabilinu 15. maí til 30.
september ár hver.
9. gr. Undantekningar frá reglu um greiðslu orlofslauna skv. 8.
grein skulu vera í samræmi við lög um orlof.
10. gr. Samhliða orlofsyfirliti því, sem launþegi fær við lok orlofs-
ávinnsluárs, fær hann jafnframt úttektarheimild fyrir orlofslaununum.
6. KAFLI: Önnur ákvœði.
11. gr. Samningi þessum geta aðilar sagt upp 3 mánuðum fyrir lok
orlofsárs.
12. gr. Að öðru leyti gilda um lögskipti aðila lög og reglugerð um
orlof, eins og þau eru á hverjum tíma eftir því sem við á. Fjármála-
ráðuneytið afhendir félagsmálaráðuneyti eintak af samningi þessum.