Ljósmæðrablaðið - 01.07.1988, Qupperneq 18
18
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Samkvæmt nýjum heilbrigðisreglugerðum í landinu vofir sú hætta
yfir, að ljósmæðrum fækki verulega á heilsugæslustöðvum, þ.e.
mæðravemd og foreldrafræðslu ásamt eftirlit með móður og barni
fyrstu 6 vikumar eftir fæðingu. Finnska ljósmæðrafélagið lætur þetta
mál mjög til sína taka og vonast eftir góðum árangri.
SVÍÞJÓÐ:
Ljósmæður í Svíþjóð hafa nýlega verið skyldaðar til að tilkynna
Clamydiusýkingar og vilja í framhaldi af því fá lyfseðilsréttindi til að
ávísa viðeigandi lyfjum, en mikill skortur er á læknum í Svíþjóð. Þær
hafa leyfi til að ávísa P-pillu í dag, en aðeins meðan þær vinna á
göngudeildum þar sem þær annast eftirskoðun og foreldaráðgjöf.
Ljósmæðramenntun í Svíþjóð hefur verið lengd um 10 vikur á
pappímm, en fjárveiting fæst ekki, svo námið er í raun óbreytt enn.
Starfsemi félagsins er lítil, þær gefa út blað sem kemur gloppótt út
og halda ekki sjálfar námsdaga eða fræðslufundi. Launamál ljósmæðra
hafa breyst. Þær höfðu áður 1 launaflokk fyrir alla með 8 þrepum, og
fengu ekki hærri laun fyrir ábyrgð í starfí, aukna menntun o.s.frv. Nú
em ákveðin lágmarkslaun síðan semur hver starfsmaður sjálfur við
sinn vinnuveitanda um allar aukasporslur.
Þær vildu koma á framfæri að mjög spennandi væri fyrir ljósmæður
að fara á námsdaga við Vidarekliniken í Jáma, rétt utan við Stokk-
hólm, ef þær hyggðu á slíkt.
Talsverðar umræður spunnust í framhaldi af skýrslum fúlltrúanna
og verða þær ekki raktar hér.
Næsta mál á dagskrá var skýrsla frá ICM. Karin Christiani, sem á
sæti í stjóm ICM; flutti hana. Mikill hagnaður var af alþjóðaráðstefnu
ljósmæðra í Haag 1987. Verður hann m.a. notaður til að stofha sjóð,
sem mun veita ljósmæðmm frá þróunarlöndunum styrki til að sækja
nám í Evrópu. ICM hefur mikiö reynt að ná sambandi við ljósmæður
í austantjaldslöndunum, en árangurslaust. Til umræðu er að kanna
hvemig ljósmæður heimsins standa gagnvart löggjafanum í sambandi
við akútaðgerðir, þar sem alls ekki næst í lækni, t.d. sækja fylgju,
e.t.v. keisaraskurðir o.fl. Umræða er um starfsreglur varðandi HIV
og AIDS smitun og smitleiðir. T.d. á að skipta um hanska áður en
skilið er milli barns og móður, þar sem börn smitaðra mæðra em ekki
alltaf smituð líka.