Ljósmæðrablaðið - 01.07.1988, Síða 19
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
19
Fulltrúi frá ICM mun flytja fyrirlestur á sameiginlegu þingi WHO,
UNICEF og FIGO, sem haldið verður í Rio de Janeiro. Til umræðu
er einnig að auka samstarf við ICN, t.d. með því að veita ljósmæðrum
innan ICN aðild að ICM.
SKÝRSLA
frá fundi Evrópudeildar ICM í Karlsruhe 8.-9. apríl s.l. Else
Marie Vengene:
Evrópudeild ICM mun gangast fyrir 2-3 daga ráðstefnu í Tubingen
í Vestur-Þýskalandi í okt. 1989. Markmið ráðstefnunnar er að auka
áhuga ljósmæðra á rannsóknarstarfi. Beðið er um að aðildarfélögin
reyni að senda einhvern fulltrúa. Einnig er óskað eftir tillögum um
fyrirlesara.
9. mál: Ráðstefna NJF í Finnlandi 1989:
Ráðstefnan verður haldin í Finnlandiahuset í Helsinki dagana
26. 27. og 28. maí. Dagskráin er að mestu leyti tilbúin og verður
auglýst fljótlega, ásamt því hvert ráðstefnugjaldið verður. Hótel-
gisting mun verða í ýmsum verðflokkum. óskað er eftir stuttum
fyrirlestrum frá hverju landi um það markverðasta í starfi ljósmæðra
nú. Næsta ráðstefna verður 1992, líklega í Danmörku.
10. mál féll um sjálft sig, þar sem það var í reynd rætt í skýrslu
finnsku stjómarinnar.
11. mál: Foreidrafræðsla:
Norsku ljósmæðurnar kynntu sína starfsemi á þessu svið og
kvörtuðu undan því að mikið bæri á ,,burn-out“ hjá ljósmæðrum þar
í landi hvað varðar þessa starfsemi. Þær óskuðu eftir umræðum. Hin
löndin höfðu svipaða sögu að segja nema ísland. Kannað verður hvort
ekki sé ástæða til að halda ráðstefnu í Noregi í haust eða síðar, þar
sem fleiri geta hist og skipst á skoðunum.
12. mál. Starfstryggingar ljósmæðra:
Hér var rætt um hvaða kerfi væru ríkjandi í hverju landi. Svipað
kerfi er í öllum löndunum nema Noregi. Þar íhuga ljósmæður hvort
þær verði og muni taka slíkar tryggingar.