Ljósmæðrablaðið - 01.10.1988, Side 9
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
49
tekinn af henni heldur ofar en um miðjan legg en mun þ<5 hafa gengið
með 5 eða 6 börn eftir það. Hún hafði gervifót, sem var 17 pund.
Þessi kona gekk að allri vinnu, rakaði og riíjaði úti á túni, mjólkaði
kýrnar á básunum í fjósinu og úti við túnhliðið að sumrinu og hirti
heimili sitt með þeirri snilld að ótrúlegt var. Hjálp hafði hún sjaldan
nema börnin og bóndann. Fólk var þá mjög hrætt við berkla. I öllum
hennar veikindum mátti aldrei gefa henni morfín, þá varð hún fárveik
af uppsölu og fleiru.
Ég var hjá þessari konu í 10 daga og það var dásamlegur tími.
Henni heilsaðist ótrúlega vel. Hún var bráðvel gefin, kát og lífsglöð
og svo þakklát að það var hrein unun að hlynna að henni. Og þegar
ég fór fylgdi hún mér út að dyrum.
Við vorum kannske örlítið klökkar þegar við föðmuðumst og lögð-
um saman raka vanga. Þá hvíslaði ég að henni: ,,Ég er nú svo ham-
ingjusöm, Sigríður mín, yfir því hvað þú ert orðin eftir þetta.”
Svarið var: ,,ÉG — ég vissi nú ekki mikið af þessari fæðingu.”
----------------------------------N
Ljósmæður!
70 ára afmæli LMFÍ
verður haldið hátiðlegt
ó. maíl989
í framhaldi af aðalfundi
þann 5. maf.
Nánari upplýsingar
íl. tölublaði Ljósmæðrablaðsins 1989.
V___________________________________)