Ljósmæðrablaðið - 01.10.1988, Page 32
72
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
samsvarandi áhrifum 10 mg morfíns. Skammtar gefnir í fæðingu geta
bæði virkað hamlandi á framgang fæðingarinnar svo og að breyta
rythmatiskum samdráttum legsins. Petidin hefur áhrif á fóstrið með
því að fara yfir fylgju til fóstursins og hafa rannsóknir sýnt fram á
aukna hættu á lélegri öndun, minni súrefnismettun og þ.a.l. meiri lík-
ur á öndunaraðstoð eftir fæðingu hjá börnum þeirra mæðra sem feng-
ið hafa petidin í fæðingu. (Heimild nr. 2 bls. 178).
En þess má geta að auk þessara atriða koma margir aðrir þættir inn
í og má þar t.d. nefna heilsufar móður á meðgöngu, þroska fóstursins
og fylgikvilla fæðingarinnar.
Aukaverkanir:
Svimi, ógleði, uppköst, sljóleiki, munnþurrkur, sviti. Slæving á
öndunarstöðvar, víma og vellíðan. Hægðatregða og þvagtregða.
Blóðþrýstingsfall hraður hjartsláttur og samdráttur pupilla.
Ábendingar:
Miklir verkir-fæðing.
Frábendingar:
Slævð öndun. Aukinn þrýstingur í heila (intracranial pressure).
Lost. Lifrar eða nýrnabilun.
Milliverkanir:
Áhrif Petidins aukast til muna ef samtímis er notað áfengi eða önn-
ur lyf sem slæva miðtaugakerfið.
Varúö:
Ávanahætta er mjög mikil og ef meðferð er löng eykst fljótlega
þörf íyrir aukna skammta. Hver skammtur, hversu lítill sem hann er
minnkar hæfni til aksturs og hvers konar stjórnunar tækja. Fráhvarfs-
einkenni geta komið fram jafnvel eftir skammtíma notkun lyfsins.
Eiturverkanir — ofskammtanir:
Banvænn skammtur íyrir fullorðinn einstakling er um 1. gr. gefið
per. os.