Ljósmæðrablaðið - 01.10.1988, Page 37
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
77
eru notuð við staðdeyfingar hér eru: lignocaine (xyolcaine, lidocaine)
og dupivacaine (marcain). Pnocaine (novocaine) er nú minna notað
en oft áður, vegna þess að það virkar skemur og veldur minni verkja-
stillandi áhrifum en t.d. lidocaine. Lidocaine er það staðdeyfilyf sem
hvað mest er notað hérlendis nú til að staðdeyfa spöngina í fæðingu
vegna þess að sé það notað í réttu magni (sjá töflu) er það bæði öruggt
og áhrifarík lyf. Lidocaine er notað í styrkleikanum 1 % sé það notað
sem staðdeyfmg í spöng í pudental eða paracervical block en hærri
styrkleika má aldrei nota nema í t.d. epidural deyfingar. Lidocaine er
bæði til með eða án adrenalins, þö svo að í fæðingum sé vanalega not-
uð sú lausn sem er án þess. Adrenalin er æðaherpandi (vasoconstic-
tor) og minnkar það blóðflæðið um þann stað sem stungið er í. Þetta
hefur tvær mikilvægar afleiðingar, í fyrsta lagi er virkni lyfsins lengri
vegna þess að staðdeyfingar frásogast hægar frá vefjunum og í öðru
lagi eru líkindin fyrir því að fá fram eituráhrif hverfandi, því vegna
þess hve hægt frásogið er eru gildi verkjalyfjanna í hringrás blóðsins
ekki svo há. Adrenalinið hefur aftur á móti þann ókost að það dregur
úr hríðunum og minnkar blóðstreymið um fylgju. Vegna samdrátt-
anna sem verða í æðunum er því öruggast að nota sem minnst af adr-
enalini. Aðurnefndar deyfingaraðferðir hafa líka sína ókosti og þarf
því að hafa vakandi auga fyrir aukaverkunum þeirra sem koma helst
í ljós eftir meiri háttar lyfjaskammta og eru þær helstu:
1. Almenn eitureinkenni frá miðtaugakerfi s.s. blóðþrýstingshækk-
un, aukin spenna, óróleiki, skjálfti, krampar.
2. Einkenni frá blóðrásarkerfi s.s. blóðþrýstingsfall, sjokk, blæðing-
ar, mar, sýking.
3. Fóstrið getur farið í bradycardi.
Þessar aukaverkanir geta stafað af t.d. of stórum lyfjaskammti, lyf-
inu sprautað i.f., lyfjaofnæmi, adrenalínverkun. Þar sem þessum
deyfmgum er beitt er nauðsynlegt að hafa til staðar nauðsynlegan
tækjabúnað og lyf, verði vart við fyrrnefndar aukaverkanir. (Heimild
nr. 12. bls. 71-72).
Pudental block
Á II stigi fæðingarinnar stafar sársaukinn helst af þrýstingi í
neðri hluta fæðingavegar. Taugaþræðir þaðan safnast í nervus pu-
dendus, sem liggur um spina os ischii. Þessa taug (nervus pudendus)