Freyr - 01.07.1929, Síða 23
F R E Y R
83
Sauðnaut.
Þann 4. júlí var mannað og ferðbúið
héðan úr Reykjavík mótorskipið
„Gotta“, og lagði af stað áleiðis til
Grænlands, og var tilgangur fararinnar
að freista að veiða og flytja hingað
urvöll í Reykjavík, og er myndin tek-
in þar. Líkjast þessi ungviði á skrokk-
inn mjög sauðkind, en liöfuð er likt og
á nauti. Keypti síðan landsstjórnin
dýrin og borgaði þau með 20 þús. kr.,
eða fé því sem verja mátti til innflutn-
ings sauðnauta. Iiefir landsstjórnin
síðan falið Búnaðarfélagi fslands að
hafa umsjón með dýrunum. Yoru þau
til lands sauðnaut. Sagði síðan fátt af
ferðum skipsins, en hinn 26. ágúst lá
það aftur við bryggju í Reykjavík. —
Ferðinni var lokið og tilganginum náð,
því skipverjar höfðu með sér 7 sauð-
naut (ungviði). Hafði ferðin gengið vel,
tók það mánuð að komast til Græn-
lands, þar var dvalið í 14 daga og tók
heimferðin 6 daga. Yar ferðin skemti-
legt æfintýri fyrir þátttakendur, sem
auk nautaveiðanna höfðu stundað á
ferðinni aðrar dýraveiðar (hjarndýr og
refi).
Sauðnautin voru í fyrstu flutt á Aust-
síðan flutt að Reynisvatni i Mosfells-
sveit og er gætt þar. Fá þau mjólk og
er reynt að gera þau svo tamin sem
unt er, og lítur út fyrir að þau kunni
vel við sig. Þar eð likur eru til að sauð-
nautin venjist umgengni manna vel,
má segja að íslenskur ])únaður hafi hér
eignast nýja búfjártegund, sem megi
vænta sér liins besta af.
G. Árnason.