Ljósmæðrablaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 8
surrARBU STAÐU R
Á aðalfundi LMFÍ þann 9.maí sl. var samþykkt að láta BSRB leysa til sín sumarbústaðinn í Munaðarnesi
og að félagið keypti sinn eiginn bústað.
Orlofsnefnd fór því að svipast um en lítið var farið að gerast í þessum málum þegar okkur barst óvæntur
liðsauki. Svanborg, ljósmóðir á Selfossi,
frétti af nýuppgerðum sumarbústað í Út-
hlíð í Biskupstungum sem væri til sölu.
Hún hafði samband við orlofsnefnd og
var ákveðið að Elín, Solveig, Ástþóra,
Svanborg og Jón maður Elínar færu og
hittu eigandann í bústaðnum. Við lögðum
því land undir hjól þann 8.sept. og er
skemmst frá því að segja að okkur leist
öllum mjög vel á bæði húsið og staðinn.
Verðið er 5.5 milljónir með nýju inn-
búi þar með talið sjónvarp, myndband og
hljómflutningstæki, allur útbúnaður í eld-
hús og að sjálfsögðu heitur pottur Nýi sumarbúsaðurinn okkar í Úthlíð í Biskupstungum
Stjórn félagsins ákvað að ganga að þessu tilboði og hefur verið gengið frá kaupunum. Taka þurfti lán fyrir
u.þ.b. helmingi verðsins.
Ekki fást nema 200 þús.kr. fyrir Munaðamesbústaðinn en
á móti kemur að það kostaði félagið um 600 þús.kr. á ári að
hafa afnot 4 mánuði á ári.
Hægt verður að hafa heilsársútleigu á nýja bústaðnum.
Séð inn * slofutw í sunwbúslaðnwn
verður um nafn á húsinu og verð-
launin eru helgardvöl í vetur. Hugmyndir skilist til félagsins
fyrir lok nóvember.
Hér með er komið að því að bjóða félagsmönnum að
sækja um í vetur og verður fyrirkomulagið á þann hátt að
hægt er að fá helgar- eða vikuleigu frá ó.nóv. í vetur. Skrán-
ing er síma félagsins frá 2.nóv.
Þar sem sjón er sögu ríkari verður opið hús í bústaðnum
31.okt. kl.13-18.
Merki félagsins verður á staur þar sem beygt er að hús-
inu af almenna bústaðaafleggjar-
anum.
H u g -
m y n d a -
samkeppni
S'^ona Iftur e,dhúsið ú
Verðið er fyrir kjarafélaga: Fyrir helgarleigu:5000 krónur
Fyrir vikuleigu:7000 krónur
Fagfélagar greiða 2000 krónum hærra verð
Vetrarleiga hefur ekki áhrif varðandi úthlutun yfir sumarið. Páska- vor- og sumarleiga verður auglýst síðar.
&
Bestu kveðjur, sjáumst í bústaðnum,
Orlofsnefndin.
UÓSMÆPRABLAÐIÐ