Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 19

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 19
um Hugleiðin gar sitjandi fæðingar Það bregður fáum við að heyra að barn hafi fœðst með valkeisaraskurði vegna sitjandi stöðu, því eins og kunnugt er, hefur verið mœlt með að konur með fullburða einbura í sitjandi stöðu fari í valkeisaraskurð, frá því að niðurstöður rannsóknar Hannah, Hannah, Hewson, Hodnet, Saigai og Willan (2000) á sitj- andi fœðingum (The Tenn Breech Trial) voru birtar. Niðurstöður þessarar rann- sóknar urðu til þess að vinnulag við sitjandi fœðingar breyttist víða um heim og nú stöndum við t.d. frammi fyrir þeirri staðreynd að Ijósmœður eru að tapa fœrninni í því að taka á móti börnum í sitjandi stöðu. í þessari grein mun ég fjalla um þau áhrif sem rann- sókn Hannah o.fl. (2000) hafði á vinnu- lag við sitjandi fœðingar og minnast á nokkuð af þeirri gagnrýni sem fram hefur komið á þá rannsókn. Eg mun einnig fjalla um rannsóknarniðurstöður nokkurra nýlegra rannsókna um sitjandi fæðingar. Eg mun reyna að svara því hvort það geti talist fagleg vinnubrögð að mœla með valkeisaraskurð fyrir konu með fullburða einbura í sitjandi stöðu. Ljósmœður hafa verið duglegar að kynna sér óhefðbundnar aðferðir við umönnun kvenna á meðgöngu, í fœð- ingu og sœngurlegu og því langar mig að nefna tvœr óhefðbundnar aðferðir sem hvetja til snúnings barns úr sitj- andi stöðu í höfuðstöðu. Eg mun fjalla um breytta stefiiu varðandi sitjandi fœð- ingar á fœðingardeild LSH og að lokum mun ég setja hugleiðingar mínar um sitjandi fœðingar í samhengi við fimm skrefLesley Page (2000) um gagnreynda þekkingu í Ijósmóðurfrœði. Nýlegar rannsóknir Niðurstöður rannsóknar Hannah o.fl. (2000) þóttu það markverðar að þær Breyttu vinnulagi víða um heim. Markmiðið með rannsókninni var að komast að því hvort betra væri að gera valkeisaraskurð eða reyna fæðingu um fæðingarveg hjá konum sem ganga með fullburða einbura í sitjandi stöðu. Anna SigríðurVernharðsdóttir; Ijósmóðir á fæðingardeild LSH og meistaranemi við University of Sheffield. Niðurstöðurnar voru þær að ekki reynd- ist marktækur munur á útkomu mæðr- anna hvort sem þær fóru í valkeisara- skurð eða fæddu um fæðingarveg en það reyndist marktækt lélegri útkoma hjá börnunum í þeim hóp sem fæðing um fæðingarveg hafði verið reynd. Ég var ljósmæðranemi þegar ég las fyrst um niðurstöður þessarar rannsóknar og þá var ég sannfærð um að valkeisara- skurður væri besta lausnin fyrir konu sem væri með fullburða einbura í sitj- andi stöðu, þ.e.a.s. ef vending væri ekki möguleg eða hefði ekki tekist. Mér fannst koma nokkuð skýrt fram í þessari grein að það fælist mun meiri áhætta í sitjandi fæðingu en valkeisaraskurð við þessar aðstæður og ég man að ég hugs- aði ineð mér og sagði við skólasystur mínar í ljósmæðranáminu að ég væri ekki í vafa hvað ég myndi velja stæði ég í þessum sporum. Ég gat ekki séð nokkra ástæðu til að rengja niðurstöð- umar á þessum tíma. King (2000) sá heldur ekki ástæðu til að efast og miðað við þær breytingar sem urðu á vinnulagi víða um heim þá voru ansi margir sem ekki sáu ástæðu til að rengja þessar niðurstöður. Þessar niðurstöður breyttu vinnulagi okkar hér á landi og ég hef t.d. aldrei séð fullburða einbura fæðast í sitjandi stöðu. Núna, hins vegar, hef ég nokkrar efasemdir og athugasemd- ir við þessa rannsókn og niðurstöður hennar. Ég velti fyrir mér hvers vegna höfundar rannsóknarinnar greindu ekki niðurstöðumar betur, þ.e. fyrir fleiri undirhópa, þar sem þeir höfðu allar upplýsingar til þess. Af hverju var ekki skoðuð útkoma úr sitjandi fæðingum þar sem reyndar ljósmæður tóku á móti? Þetta er kannski eitthvað sem ljósmæð- ur þurfa að rannsaka í framtíðinni en ef til vill er það orðið of seint því æ færri ljósmæður hafa reynslu af sitjandi fæð- ingum. Síðan Hannah o.fl. (2000) birtu sínar niðurstöður hafa margar afturvirk- ar rannsóknir verið birtar. Niðurstöður Herbst og Thorngren-Jerneck’s (2001) og Rietberg, Elferink-Stinkens, Brand, van Loon, Van Hemel og Visser, (2003) voru á sömu leið og niðurstöður Hannah o.fl. (2000), þ.e. að valkeisaraskurður minnkaði burðamálsdauða ef um sitj- andi stöðu væri að ræða. Rietberg o.fl. (2003) hafa bent á að þessar niðurstöð- ur þyrfti einnig að meta m.t.t. lang- tíma áhrifa á heilsu mæðra, m.a. vegna hækkunar á tíðni keisaraskurða. Giuliani (2002) bar saman útkomu 699 fæðinga fullburða bama í sitjandi stöðu eftir því hvort um fæðingu um fæðingarveg eða keisaraskurð var að ræða. Þetta voru allt fæðingar á sömu deildinni. Útkoman var góð í báðum hópum og niðurstaðan var sú að sitjandi fæðing um fæðing- arveg ætti að vera valkostur í vissum tilfellum. Uotila, Tuimala, og Kirkinen, (2005) skoðuðu útkomu m.t.t. fæðing- armáta á 7 ára tímabili á háskólasjúkra- húsi þar sem hefð var fyrir sitjandi fæð- ingum. Niðurstöður þeirra sýndu fram á góða útkomu sitjandi fæðinga þar sem vandlega höfðu verið valdar konur til að fæða. Þau ályktuðu sem svo að sitjandi fæðingar um fæðingarveg væru öruggar ef konur væru vel valdar og fólk með góða reynslu tæki á móti. í nýlegri grein gagnrýnir Glezerman (2006) rannsókn Ljósmæðrablaðið nóvember 2006 19

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.