Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Page 28
Heimaþjónusta
Ijósmæðra í sængurlegu
Arangur og gæðaeftirlit
Inngangur
Heimaþjónusta ljósmæðra í kjölfar
snemmútskrifta af sjúkrahúsi eftir fæð-
ingu barns er nú orðin stór þáttur af
heilbrigðisþjónustu við foreldra hér-
lendis. I þeim tilgangi að stuðla að
frekari þróun og gæðastjórnun á þjón-
ustunni verður í þessari grein leitast við
að skoða faglegar forsendur og árangur
þjónustunnar. Þegar rýnt er í erlendar
og innlendar rannsóknir kernur í Ijós
að það sem helst hefur verið deilt um
varðandi snemmútskrift og heimaþjón-
ustu eftir fæðingu tengist eftirliti með
nýburanum s.s. þróun gulu auk þess sem
tíðrætt er um fræðslu og stuðning við
mæður vegna brjóstagjafa og næringar
nýburans. Fjallað verður um þessa þætti
sérstaklega og rætt um hlutverk ljós-
mæðra, símenntun, þróun þjónustunnar
og mikilvægi gæðaeftirlits.
Viðhorf kvenna og árangur
heimaþjónustu Ijósmæðra
Margar rannsóknir hafa gefið til kynna
ótvíræða kosti þess að konur útskrif-
ist snemma heim með börn sín og má
þar meðal annars nefna jákvæð áhrif
á tengslamyndum foreldra við börnin,
bætt samskipti í fjölskyldum, aukinn
möguleiki fjölskyldunnar til að taka
þátt í umönnun nýja barnsins, jákvæð
áhrif á gang brjóstagjafar og á líðan
mæðra, og síðast en ekki síst jákvæð
áhrif á viðhorf mæðra til þjónustunnar
almennt (Britton, Britton og Gronwaldt,
1999; Gagnon, Edgar og Kramer,
Papageorgiou, Waghorn og Klein,
1997; Hodnett, 1998; Quinn, Koepsall
og Halker, 1997; Svedulf, Bergbom,
Berthold og Hodlund, 1998; Winterburn
og Fraser, 2000, Wessley, 1998;).
Með samningi Ljósmæðrafélags ís-
lands og Tryggingarstofnunar Ríkisins
árið 1993 hófst hérlendis svokölluð
Hildur Sigurðardóttir;
Ijósmóðir og hjúkrunarfræðingur
MS, lektor og
forstöðumaður fræðasviðs
umönnunar í sængurlegu í
Ijósmóðurfræði við
Háskóla Islands
heimaþjónusta ljósmæðra til mæðra og
fjölskyldna þeirra í kjölfar snemmút-
skrifta eftir fæðingar. Samningurinn
hljóðaði upphaflega upp á hámark ell-
efu heimsóknir til fjölskyldna, en í
endurnýjuðum samningi 2002 og 2006
er miðað við átta skipti að hámarki
(Samningar Tryggingarstofnunar Ríkis-
ins og Ljósmæðrafélags Islands, 2002
og 2006). Ari eftir að byrjað var að
bjóða upp á heimaþjónustuna gerðu
ljósmæðumar Guðbjörg Davíðsdóttir
og Hildur Nilsen úttekt á viðhorf-
um kvenna til þjónustunnar og kom
þá fram almenn ánægja kvennanna
(Sóley Kristinsdóttir, 1996). Á þessum
tíma voru eingöngu 2,5% kvenna er
fæddu á Landspítalanum sem nýttu sér
þessa þjónustu en samkvæmt upplýs-
ingum fengnum á vefsíðu Landspítala
- Háskólasjúkrahúss fóm 64,1% allra
kvenna sem fæddu árið 2004 heim innan
sólarhrings frá fæðingu (http://www4.
landspitali.is/lsh_ytri.nsf/HtmlPages/
faedingarskraningarskyrsla_2004/$file/
faedingarskraningarskyrsla_2004.pdf).
Rannsóknamiðurstöður mínar (Hildur
Sigurðardóttir, 2004) á viðhorfum
mæðra til ljósmæðraþjónustu benda til
þess að íslenskar konur eru almennt
séð mjög ánægðar með heimaþjónustu
Ijósmæðra. Tilgangur rannsóknarinnar
var að kanna viðhorf mæðra til sæng-
urlegulrjónustu fyrstu vikuna eftir fæð-
ingu og bera saman niðurstöður eftir
mismunandi þjónustuformum: heima-
þjónustu ljósmæðra eftir snemmút-
skrift og þjónustu sængurlegudeildar
LSH þar sem sjúkrahúsdvöl er lengri.
Rannsóknarsniðið var megindlegt og
voru 400 konur, er fætt höfðu börn
sín á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi á
tímabilinu september til desember 2002
valdar með kerfisbundnu tilviljunar-
kenndu úrtaksvali. Tvöhundruð konum
úr hvoru þjónustuformi var póstsendur
spumingalisti og eftir að tvisvar höfðu
verið send út ítrekunarbréf var svöranin
67% úr hópi kvenna í heimaþjónustu
(n= 134) og úr hópi sængurlegukvenna
62% (n=124). Spurningalistarnir inni-
héldu m.a. þrjá viðhorfakvarða er
mældu á líkert kvarða, viðhorf til veittr-
ar fræðslu, ánægju/óánægju með þjón-
ustuþætti og viðhorf til innihalds þjón-
ustunnar.
Rannsóknarhópamir tveir 'voru sam-
bærilegir með tilliti til aldurs (P> 0,05),
hjúskaparstöðu (X2=2,6, P> 0,05) og
menntunar (X2=5,2, P>0,05) en í ljós
kom að í hópi sængurlegukvenna voru
hlutfallslega fleiri frumbyrjur (X2=5,7,
P< 0,05). Ef á heildina var litið kom
28 Ljósmæðrablaðið nóvember 2006