Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Page 32
gerir þjónustuna samræmdari, mark-
vissari og árangursmeiri.
Önnur áhugaverð niðurstaða kom
fram í rannsókn minni sem tengdist
spurningunni um stuðning við mæður
vegna vandamála eða erfiðleika við
brjóstagjöf en þar kom styrkur heima-
þjónustunnar greinilega fram. I ljós
kom að mæðurnar leituðu oftast lil Ijós-
mæðra í heimaþjónustu vegna vanda-
mála er upp komu við brjóstagjöf, auk
þess sem ljósmæður í heimaþjónustu
voru oftast nefndar sem hjálplegasti
aðilinn varðandi ertiðleika/vandamál
við brjóstagjöf (sjá mynd 2).
Eins og áður er minnst á gegna ljós-
mæður í heimaþjónustu veigamiklu
hlutverki varðandi stuðning og fræðslu
til mæðra varðandi brjóstagjöfma.
Mikilvægt er að reyna að fremsta megni
að samræma þær leiðbeiningar og þau
ráð sem gefín eru til að fyrirbyggja
og meðhöndla ýmis vandamál er upp
geta komið við brjóstagjöf. Þar sem
þekkingarþróunin varðandi brjóstagjöf
hefur verið mjög ör væri æskilegt að að
reglulega væru í boði símenntunamám-
skeið fyrir ljósmæður og þannig reynt
að tryggja samræmda og markvissa
fræðslu.
Lokaorð
Af ofangreindu má álykta að heima-
þjónusta ljósmæðra í kjölfar snemm-
útskrifta eftir fæðingu hafi gefíð góða
raun hérlendis sem erlendis og virðist
sem viðhorf mæðra til þjónustunnar hér
á landi séu almennt mjög jákvæð. Það
er því ályktun höfundar að heimaþjón-
usta ljósmæðra hér á landi sé komin til
að vera og fyrirkomulag hennar sé gott
í þeirri mynd sem nú er. Það er samt
sem áður mikilvægt að þróa þjónustuna
frekar og tryggja ákveðið gæðaeftirlit.
Frekari rannsókna er m.a. þörf varðandi
árangur heimaþjónustunnar í sambandi
við eftirlit með nýburanum í ljósi endur-
innlagna og þróun vandamála s.s. gulu.
Mikilvægt er að styrkja þekkingargrunn
ljósmæðra hvað þetta varðar. I sambandi
við ráðgjöf og fræðslu um brjóstagjöf
væri einnig æskilegt að stuðla að sam-
ræmdri og markvissri fræðslu. Með
nýjum samningi við Tryggingarstofnun
Ríkisins er gert ráð fyrir að boðið verði
reglulega upp á símenntunarnámskeið
fyrir ljósmæður er annast heimaþjón-
ustu. Æskilegt er að þar verði m.a. farið
í efni er tengist nýburanum, brjóstagjöf
og aðlögun foreldra og fjölskyldu að
breyttum aðstæðum og nýjum hlutverk-
um. Einnig í þeim tilgangi að auka
á og tryggja áfram markvissa fræðslu
og þjónustu þá gæti verið æskilegt
að unnið verði að tilmælum að þjón-
ustuþáttum heimaþjónustunnar eins og
Landlæknisembættið hefur reyndar lagt
til. Nýútgefnar leiðbeiningar NICE er
varða umönnun í sængurlegu er góður
grunnur til að byggja á og samræma
þjónustu til kvenna og nýbura í sæng-
urlegu hvort sem er á sjúkrastofnun eða
í heimahúsi (http://nice.org.uk/page.
aspx?o=CG37). Þannig verður stuðl-
að að ákveðnu samræmi hvað varðar
fræðslu og umönnun mæðra og fjöl-
skyldna þeirra og fagrýni heimaþjón-
ustu ljósmæðra í sængurlegu.
Heimildir
American Academi of Pedriatrics, (1997).
Breastfeeding and the use of human milk
(RE9729). Pedialrics, 100, 1035-1039.
Birna Málmfríður Guðmundsdóttir, Sonja
Guðbjörg Guðjónsdóttir og Unnur Ósk
Björnsdóttir, (2003). Viðhorf kvenna til
heimaþjónustu Ijósmœðra, óbirt lokaverkefni,
ábyrgðarmaður: Hildur Sigurðardóttir, hjúkr-
unarfræðideild, Háskóla Islands.
Britton JR. Britton HL. Gronwaldt V. (1999).
Early perinatal hospital discharge and
parenting during infancy. [Joumal Article]
Pediatrics. 104(5 Pt 1):1070-6
Brown, S.G. og Johnson, B.T. (1998).
Enchancing early discharge with home fol-
low-up: A pilot project. Joumal ofObstetric,
Gynecologic & Neonatal Nursing, 27 (1),
33-38.
Edmonson M.B., Stoddard J.J. og Owens
L. M., (1997). Hospital readmission with
feeding- related problems after early disch-
arge of normal newborns. Jama 278 (4),
299-303.
Ebbsen F., (2000). Recurrence of kernicterus
in term and near-term infants in Danmark.
Acta Paediatrica, 89 (10), 1213-1217.
Gagnon, A.J., Edgar, L., Kramer, M.S.,
Papageorgiou, A., Waghorn, K. Og Klein,
M. (1997). A randomized trial of a program
of early postpartum discharge with nurse
visitation. American Journnal of Obstertics
and Gynecology, 176 (1), 205-211.
Gígja Guðbrandsdóttir,(2003). Rannsókn á
áhœttuþáttum alvarlegrar gulu og nákvæmni
húðmælingar á bílirúbini hjá nýbrum.
Leiðbeinendur Atli Dagbjartsson, Hörður
Bergsteinsson og Þórður Þorkelsson.
Harrison, L.L., (1990). Patient education
in early postpartum discharge programs.
The American Joumal of Maternal/Child
Nursing, /5(1), 39.
Hildur Sigurðardóttir, (2004). Ljósmæðra-
þjónusta fyrstu vikuna eftir fæðingu, Ljós-
mœðrablaðið, 2(82), 19-27.
Hildur Sigurðardóttir, (2004). Með bam á
brjósti. Áhrifaþœttir á gang brjóstagjafa og
þá tímalengd sem böm eru höfð á brjósti,
útdráttur vegna veggspjalds á ráðstefnu
í Öskju 4-5janúar 2005. Læknablaðið/
Fylgirit 50,bls. 92 http://nice.org.uk/page.
aspx?o=CG37 upplýsingar sóttar á vef
9. okt. 2006 Klínískar leiðbeiningar fyrir
umönnun í sængurlegu.
http://www4.landspitali.is/lsh_ytri.nsf/
HtmlPages/faedingarskraningarskyrsla_
2004/$file/faedingarskraningarskyrsla_
2004.pdf. Upplýsingar sóttar á vef 3. nóv-
ember 2006.
Kenner, C. ogLott,J.,W. (2003). Comprehensive
neonatal nursing aphysiologic perspective,
(3. útg.). Philadelphia: Saunders.
Malkin.J.D., Garber, S., Broder, M.S. og
Keeler, E. (2000). Infant mortality and
early postpartum discharge. Obstetrics &
Gynecology 96, (2), 183-188.
Mendler, V.M., Scallen, D.J., Kovtun, L.A.,
Balesky,J. Og og Lewis, C.(1996). The con-
ceptio, birth and infancy of an early disch-
arge program. The American Journal of
Maternal/Child Nursing, 21 (5), 241-246.
32 Ljósmæðrablaðið nóvember 2006