Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2004, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2004
Fréttir 3DV
Einelti á
salernum
I könnun sem fram-
kvæmd var í 45 íslenskum
grunnskólum kemur fram
að síðan skólarnir hófu þát-
töku í svokallaðri Olweus-
aráætlun hefur dregið hef-
ur einelti um 34%. Könn-
unin var yflrgripsmikil og
er liður í sérstakri eineltisá-
ætlun sem staðið hefur yfir
í eitt ár. í könnuninni kem-
ur einnig fram að algengast
er að nemendur verði fyrir
einelti á skólagöngum en
næst vinsælast er að einelta
á skólalóðinni. Athyglisvert
er að 6 - 7% krakka sem
verða fyrir einelti segjast
verða fýrirjþví á salernum
skólanna. I könnunninni er
því dregin sú ályktun að
með því að breyta hönnun
á salernum yrði ekkert
barnanna fyrir þessu of-
beldi.
Áskorun um
sjónvarp
370 íslenskir starfsmenn
við Kárahnjúka sjá ekki
sjónvarp á íslensku. Stéttar-
félög sem eiga félagsmenn
á svæðinu hafa sent frá sér
áskorun til þeirra sem eiga
aðild að virkjunarsamn-
ingnum um að skilyrðum
til að taka við sjónvarps-
sendingum verði fullnægt
hið fyrsta. Framkvæmdir
hafa staðið yfir í níu mán-
uði og segja stéttarfélögin
að íslendingarnir séu orðn-
ir langeygir eftir sjónvarpi.
Hins vegar er erlent sjón-
varpsefni til staðar.
Fyrsti dagur
þorra
„Þessi dagur er orðinn
virkilega stór hjá blóma- og
gjafavörubúðum," segir
Kristinn Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Blómavals. í
dag er fyrsti dagur þorra en
hann er jafnan nefndur
bóndadagur.
„Hingað streyma kon-
urnar og kaupa gjarnan
blóm og jafnvel konfekt eða
eitthvað siíkt handa bónda
sínum. Þær eru dálítið séð-
ar oft á tíðum og nota tæki-
færið og versla einnig
pottablóm eða slíkt handa
sjálfum sér.“
Kristinn segir að allar
tegundir blóma seljist en
árstíðin hefur talsverð áhrif
á það framboð sem til er.
„Túlípanar eru líklega allra
vinsælustu blómin og svo
eru rósir klassískar líka en
það er allt Ieyft og konurn-
ar kaupa það sem hjarta
þeirra er næst."
í Sögu daganna eftir
Árna Björnsson, þjóðhátta-
fræðing, segir að upphaf-
lega virðist húsffeyja hafa
boðið þorra velkominn
enda er ljóst að fyrsti dagur
þorra hefur verið tileinkað-
ur húsbóndanum. Er
hvorttveggja til að honum
hafi verið veitt sérstaklega í
mat og að hann hafi þá átt
að gera vel við sitt fólk.
Hrönn Halldórsdóttir sem rekin var sem flutningabílstjóri hjá Samskipum segir
yfirmann hafa lagt fæð á sig og hótað brottrekstri ef hún ekki skrifaði undir að
hafa hindrað húsbíl í Ártúnsbrekkunni. Hún var loks rekin fyrir áfengisdrykkju
á skyndihjálparnámskeiði en segist ekki hafa verið ölvuð.
Drakk bara einn
Breezer með
Hrönn Halldórsdóttir „"Éghefver-
ið i meðferð vegna andlegrar vanlíð-
anar og er komin á endurhæfingarlíf-
eyri,* segir Hrönn Halldórsdóttir. Hún
hefur ekkert unnið síðan hún var rek-
in úr draumastarfinu hjá Samskip-
DV-Mynd Róbert.
„Ég veit ekki hvað
ég braut af mér til
að fá þessa sér-
meðferð."
„Það er af og frá að ég hafi verið ölvuð á
skyndihjálparnámskeiðinu. Ég fékk mér bara einn
Breezer með pítsunni," segir Hrönn Halldórsdótt-
ir, fyrrverandi flutningabílstjóri hjá Samskipum.
Hrönn var rekinn frá Samskipum í maí í fyrra
fyrir áfengisdrykkju á skyndihjálparnámskeiðinu.
Haustið þar á undan hafði yfirmaður Hrannar
veitt henni áminningu eftir að kvörtun barst frá
húsabílaeiganda.
Eigandi húsbílsins sagði Hrönn hafa hindrað
för sína með því að aka á 30 kílómetra hraða og
síðan sveigt tvívegis í veg fyrir hann í Ártúns-
brekkunni. Hrönn ók 22 hjóla flutningabfl með
tengivagni.
Baðst vægðar en var rekin
„Þetta gerðist ekki á þann hátt sem áminning-
in segir til um en ég átti yfir höfði mér brottrekst-
ur ef ég skrifaði ekki undir. Að auki finnst mér
sjálfri síst ámælisvert þegar myrkur er og rigning
að aka varlega á 47 tonna þungum bfl," segir
Hrönn.
Að sögn Hrannar var skyndihjálparnámskeiðið
umdeilda haldið laugardag einn í maí í húsakynn-
um Samskipa. Hún og starfsfélagi hennar hafi
fengið leyfi námskeiðshaldarans fyrir að drekka
áfenga drykki með pítsu sem borin var fram í há-
deginu.
„Ég kláraði þennan eina Breezer. Þegar ég
mætti í vinnu á mánudegi sagði yfirmaður minn
að þetta væri ekki leyfilegt. Ég baðst afsökunar en
var sagt upp nokkrum dögum síðar," segir Hrönn.
Starfsfélagi Hrannar fékk sína fyrstu áminningu
við þetta tilefni.
Sögð vera hálfvaxinn bílstjóri
Hrönn segist ekki hafa gert sér í hugarlund að
tekið yrði svo hart á henni. Þekkst hafi að starfs-
menn Samskipa hafi drukkið bjór á vinnustað og
eins hafi oft verið kvartað undan
akstri bflstjóranna - án þess að það
leiddi til áminningar.
„Ég tel að þetta hafi verið vegna
þess að yfirmanninum var persónu-
lega illa við mig. Hann vildi ekki hafa
konu í bflstjórastarfinu. Það var oft
gengið fram hjá mér með verkefni og ég
mátti þola háðsglósur á borð við að ég væri
bara hálfvaxinn bflstjóri. Ég veit ekki hvað ég
braut af mér til að fá þessa sérmeðferð," segir
Hrönn.
Andlegt skipbrot eftir brottreksturinn
Að því er Hrönn segir kippti brottreksturinn frá
Samskipum grundvellinum undan lífi hennar.
„Mér líkaði starfið afar vel og stóð mig vel. Það
mundu flestir samstarfsmenn geta vottað
- þeir þora bara ekki að stíga fram til
þess því þá væri þeirra eigið starf í
hættu," segir hún.
Hrönn hefur ekkert unnið síðan
hún beið skipbrotið hjá Samskipum og
sér það ekki fyrir sér í nánustu framtíð.
„Ég hef verið í meðferð vegna and-
legrar vanlíðunar og er komin á
endurhæfingarlífeyri," segir Hrönn
sem enn ætlar að berjast í máli
sínu. „Ég var beitt órétti og sætti
mig ekki við það. Núna er ég að
safna fé og kröftum til að fara í
dómsmál."
gar@dv.is
Breezer Hrönn Halldórsdóttir segir sig og
starfsfélaga sinn hafa fengið leyfi umsjónar-
manns skyndihjálparnámskeiðs til að drekka
vin með hádegismatnum. Drykkurinn hafi
kostaði hana starfið.
Bessastöðum um helgina. Það
kemur fólk hvaðanæva að úr
heiminum til að djamma með
henni og skoða land og þjóð. Svo
ekki sé minnst á það hversu
alþýðleg hún er þrátt fyrir allt
ríkidæmið.
Svarthöfði vill Dorrit á Bessastaði
2004!
Svaithöföi
Herra Dorrit
í gær var sagt frá íslenskum
unglingum í Palestínu sem hittu
Arafat. Hann var hress kallinn, þótt
gamall væri, og Svarthöfði gladdist
við að heyra að hann hefði barið í
borðið þegar hann talaði. Verra þótti
honum þó að fá ekki af því fréttir
hvað honum þyki um Dorrit. Nú
hefur hún verið að fordæma kúgara
þjóðar hans og svo rosalega að
jafnvel Ástþór Magnússon er
hneykslaður.
Já, hvað er það? Hvernig getur
jólasveinninn og tómatsósu-
meistarinn látið það hvarfla að sér
að segja Dorrit ekki nógu dipló.
Margur heldur mig sig. Nema þetta
sé liður í kosningabarráttu Ástþórs
Magnússonar. Að grafa undan
Dorrit. Því það sér hver maður að
hún er orðin Herra Dorrit og Ólafur
hennar frú.
Þetta sér Ástþór auðvitað og býr
sig undir baráttu við Dorrit. Að hún
bætist í hóp hans og Snorra
Ásmundssonar og bjóði sig líka fram
gegn Ólafi. Og Ástþór er raunsær
maður. Sér að hún mun rúlla þessu
upp. Hvorki Ólafur Ragnar, Astþór
né Snorri hafa roð við Dorrit.
Það eru líka mörg metin sem við
íslendingar eigum eftir að slá. Við
vorum fyrstir með konu sem forseta
en getum nú orðið fyrsta þjóðin
með útlenska konu sem
þjóðhöfðingja. Fyrir utan auðvitað
hversu frambærilegur fulltrúi hún
er á erlendri grund. Talar erlend
tungumál að móðurmáli. Enginn
hreimur. Gæti losað okkur við
Bjarkarímyndina. Auk þess sem allt
fína og fræga fólkið úti í hinum
stóra heimi er þegar með betri
vinum hennar. Það sannaði hún á