Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2004, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004
Fréttir DV
Jón borgar
skatt
Jón Ólafsson kaupsýslu-
maður hefur borgað tæpar
hundrað milljónir í skatt í
samræmi við endurálagn-
ingu fyrir árin 1998 og
1999. Þetta er aðeins hluti
þess tímabils sem var til
rannsóknar hjá skattrann-
sóknarstjóra en skattaskil
hans allt til 2002 voru til
rannsóknar. Styr stóð um
það hvort Jóni væri skatt-
skyldur á íslandi eða í Bret-
landi. Ragnar Aðalsteins-
son, lögmaður Jóns, segir
að ríkisskattstjóri hafi úr-
skurðað fyrir áramót að Jón
hefði skattalegt heimilis-
festi á fslandi þótt hann
hefði flutt til Lundúna; ekki
aðeins árin 1998 og ‘99
heldur einnig allt fram til
þessa dags. Jón hafi greitt
þessar hundrað milljónir
með fyrirvara en mál verði
höfðað til að fá úrskurði
rrkisskattstjóra hnekkt.
Ragnar kveðst ekki vita
hvenær sé að vænta niður-
stöðu skattayfirvalda vegna
rannsóknar á skattamálum
Jóns árin 2000 tfi 2002.
Rannsókn á skattamálum
Jóns hófst fyrir tæpum
tveimur árum.
Vilja lækka
fasteigna-
skatta
BorgarfuUtrúar Sjálf-
stæðisflokks hafa gert til-
lögu um að fasteignagjöld í
Reykjavík verði lækkuð.
Fasteignaskattarnir hafa
hækkað um tæp 60% frá ár-
inu 1999. Áblaðamanna-
fundi, sem sjálfstæðismenn
boðuðu til í gær, bentu þeir
á að þessi hækkun fast-
eignagjaldanna og hækkun
holræsagjalds væri langt
um-fram hækkun neyslu-
verðsvísitölu á sama tíma.
Fyrrnefndu gjöldin hafa
verið fastbundin fasteigna-
mati á hverjum tíma. Það
hefur sem kunnugt er
hækkað mikið á þessu
tímabil, nú síðast um ára-
mótin um 10%. Sjálfstæðis-
menn vilja hins vegar að
blaðinu verði snúið við og
að gjöldin verði lækkuð en
ekki hækkuð.
Ágúst Magnússon hefur tekið upp fyrri iðju og sankað að sér klámefni. Hann situr
í haldi lögreglunnar á sama tíma og hann bíður réttarhalda vegna ákæru um kyn-
ferðisbrot gegn sex drengjum.
Barnaklámsmaðurinn
tældi tólf ára dreng
Barnaklámsmaður Agúst er
grunaður um ad hafa tælt
ungmenni á Netinu og einnig
um að hcfa endurnýjað birgð-
ir sínar af barnaklámi.
Leiddur fyrir
dómara Ágúst
Magnússon var
færður fyrir dóm-
ara iHéraðsdómi
Reykjavíkur i gær.
Dómurinn féllst á
kröfu lögreglunn-
ar um vikulangt
gæsluvarðhald.
Ágúst Magnússon er aftur kominn í hald lögreglunnar.
Hann var handtekinn á heimili sínu í fyrrakvöld eftir að
lögreglu bárust ábendingar um að hann væri búinn að
setja sig í samband við ungmenni á Netinu og hefði reynt
að tæla tólf ára pilt með því að senda honum sms. Húsleit
var gerð á heimili Ágústs í kjölfarið og lagt hald á tölvu-
búnað. Heimildir blaðsins herma að bamaklám hafi
fundist við húsleitina. Héraðsdómur féllst svo síðdegis í
gær á kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald í eina viku.
Ágúst var ákærður í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðasta
mánuði fyrir kynferðisbrot gegn sex ungum piltum og
fyrir að hafa haft gríðarlegt magn bamakláms á heimili
sínu. Hann var handtekinn í fyrrasumar vegna þessa máls
og fundust þúsundir mynda sem innihéldu barnaklám og
annað klámfengið efhi á myndböndum og geisladiskum.
Ágúst játaði við yfirheyrslur að eiga myndefnið, en þess
má geta að lögreglan í Reykjavík hefur ekki í annan tíma
lagt hald á jafrimikið magn barnakláms og í þessu máli.
Meðal gagna munu vera heimagerð myndbönd þar sem
Ágúst virðist vera í kynferðislegum athöfnum við ung-
menni.
Ósæmileg hegðun
Að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögregluþjóns er
staðfest eitt tilvik þar sem Ágúst hafði sett sig í samband
við ungan dreng. Að öðru leyti sé rannsóknin enn á
ffumstigi. Ýmislegt bendi þó til þess að Ágúst hafi tekið
upp fyrri hegðun og orðið sér úti um klámefni.
Nú, eins og í fyrrasumar, virðist Ágúst nota Netið til
að komast í kynni við ungmenni. Ábendingar um grun-
samlega hegðun Ágústs á Netinu leiddu einmitt til
handtökunnar í fyrra.
Ágúst starfaði hjá Tollstjóranum f Reykjavík í tæp
tuttugu ár. Hann hefur alla tíð lagt sig fram um að starfa
með börnum og unglingum. Fyrir rúmum áratug var
Ágúst rekinn úr starfi hjá KFUM en samtökin reka sum-
arbúðir fyrir drengi. Hafði Ágúst meðal annars viljað
„kenna" drengjunum sjálfsfróun. Stuttu seinna réð
Ágúst sig til starfa í öðrum sambærilegum sumarbúðum
en var þar líka látinn taka pokann sinn vegna ósæmi-
legrar hegðunar gagnvart börnum. Þá var hann rekinn
úr starfi hjá Fínum miðli fyrir nokkrum árum og var
ástæðan sú að hlustendur kvörtuðu undan honum. Þeir
sögðu hann hafa tælt unga drengi í útsendingu.
Varsla barnakláms getur varðað allt að tveggja ára
fangelsi ef brotin teljast stórfelld. Það varðar hins vegar
allt að tólf ára fangelsi að hafa kynferðismök við börn
undir 14 ára aldri.
í viðtali við DV í desember sagði Jón Friðrik Sig-
urðsson sálfræðingur að engin lækning væri til við
„barnahneigð". „Það má líkja þessu við króníska fíkn,
áhuginn er stöðugt fyrir hendi," sagði hann. „Sá sem
beitir ofbeldinu telur sér trú um að þolandinn vilji það
sem hann er að gera ... Þetta er með erfiðari málum að
meðhöndla."
Stóra Mínus-málið
Harma lög á
sölu Spron
Frjálshyggjufélagið
harmar stjómarfurmvarp
um sparisjóðina og telur
félagið að skaðinn af þessari
lagabreytingu
verðiseint
mældur. Ótækt
sé að gera
inngrip í frjálsa
samninga með
þessum hætti,
segir í ályktun
félagsins.
Jafnframt segir að annarleg
sjónarmið þingmanna í
þessu máli muni valda því
að traust innlendra og
erlendra íjárfesta á íslandi
muni minnka.
Eftir því sem fréttaneysla Svart-
höfða eykst, þeim mun ruglaðri
verður hann í ríminu - hvor er dón-
inn, Davíð eða Ólafur Ragnar? Og
ekki batnar Birni við að snúa sér að
dægurmálunum og unglingamenn-
ingunni. Að ekki sé talað um ef Hafn-
arfjöröur blandast í málið.
Stórfúrðulegu máli skolaði á síður
Fréttablaðsins nú í vikunni og verður
hér eftir kallað Stóra Mínus-málið.
Þar er auðvitað óbein innbyrðis mót-
sögn sem er reyndar við hæfi. (Nú
bíður Svarthöfði eftir Litla Bónus-
málinu.)
Þannig er að Árni æskulýðsfulltrúi
í Hafnarfirði hafði gert saming við
hljómsveitina Mínus þess efnis að
þeir drengir spiluðu á grunnskóla-
hátíð Æskulýðs- og tómstundaráðs
Hafnarijarðar. Einhverja bakþanka
hefur Ámi æskulýðs fengið því hann
vildi láta þá drengi - sem eins og
landsmenn flestir vita eru að rembast
við að þykjast lifa kynlffs-, dóp- og
rokk&ról-h'femi í takt við ímyndina -
kvitta upp á plagg þess efnis að Mín-
us-piltar hefðu aldrei á sinni lífs-
fæddri ævi komið nálægt ólöglegum
vímuefnum! Sem er svona svipað og
ef grænmetisbændur væm búnir að
bóka Guðna Ágústsson til að
skemmta á ársháú'ð sinni, fengju svo
bakþanka og vildu að Guðni gæfi út
opinbera yfirlýsingu þess efnis að
hann hefði aldrei bragðað Iambakjöt.
Svarthöfði er helst á því að æsku-
lýðsfulltrúi, sem ekki þekkir ímynd
Mínus-drengja, sé með hugann við
eittlivað allt annað en hvað æskan er
að rövla. Og það er bernskt í meira
lagi, jafnvel á hafnfirskan mæli-
kvarða, að ætla sér að neyða Mínus-
menn til að skrifa undir einhverjar
yfirlýsingar sem greinilega brjóta í
bága við allt sem hljómsveitin er að
standa fyrir.
Miðaldra æskulýðsfulltrúi sem
heldur að hann nái að snúa ungling-
um frá villu síns vegar með því að
banna Mínusana á þeim forsendum
að þeir séu ekki heilbrigð fýrirmynd,
finnst varla nema í Hafnarfirði.
Svarthöfði