Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2004, Side 9
Fréttir
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 9
Landsbankinn
stækkar um
helming
Eignir Landsbankans
jukust um rúm 60% á síð-
asta ári eða um 170 millj-
arða króna. I tilkynningu
írá bankanum segir að
eiganaukningin væri
sambærileg stækkun
á fyrstu 113 árum í
starfi bankans.
Heildareignir bank-
ans í lok ársins voru
448 milljarðar
króna. Það sem
skýrir þennan mikla vöxt
ert aukin starfsemi verð-
bréfasviðs og fyrirtækja-
sviðs bankans, en í tilkynn-
ingu bankans segir að fjöl-
mörg öflug fyrirtæki hafi
leitað í auknum mæli til
bankans með viðskipti sín.
Einnig skýri aukin starfsemi
Landsbankans erlendis að
hluta til hinn mikla vöxt.
Samskip fær
nýtt skip
Samskip hafa leigt þrjú
þúsund tonna frystiskip
sem hefur fengið
nafnið Jökulfell.
Þetta er gert til að
mæta aukinni þörf
fyrir flutninga til og
frá íslandi. Jökulfeil
verður í siglingum á
milli íslands og
Eystrasaltslandanna. Skipið
var formlega tekið í notkun
í gær og var fyrsta verkefnið
að flytja húseinignar frá
Noregi til Reyðarfjarðar þar
sem Jökulfell mun lesta
frosinn fisk. Ekki kemur
fram í tilkynningu frá Sam-
skipum hvort íslendingar
verði í áhöfn skipsins.
Neysla
upp á krít
Heldur á að draga sam-
an í einkaneyslunni á þessu
ári samkvæmt spá fjármála-
ráðuneytisins. Gert er ráð
fyrir að einkaneysfa
heimilanna aukist
um tæp 3% í ár bor-
ið saman við rösk-
lega 6% aukningu í
fyrra. Samtök at-
vinnufífsins velta
upp þeirri spurningu hvort
aukning einkaneyslu í fyrra
sé til marks um að heimilin
hafl enn á ný spennt bog-
ann of hátt og hvort aðlög-
unar að lægra neyslustigi
verði þörf innan skamms.
Einar Oddur Kristjánsson Al-
þingismaður.
„Ég sit nú bara ósköp rólegur
á fundi efnahags og viðskipta-
nefndar," segir Einar Oddur
Hvað liggur á?
Kristjánsson, alþingismaður.
„Auðvitað hefursumum legið
mikið á að setja lög um spari-
sjóðina en að mínu mati
gengur þetta bara sinn gang
samkvæmt lögum þingsins.
Annars erum við almennt
nokkuð rólegir hérna á þing-
inu þó menn æsi sig stöku
sinnum. Menn mega ekki
gleyma sér og það er nauð-
synlegt í þessu starfi að gefa
sér tíma til að anda."
Pétur Blöndal var einn á móti öllum á Alþingi í gær
Frumvarp um Sparisjóðina samþykkt
Frumvarp Valgerðar Sverris-
dóttur um sparisjóðina var lagt fyr-
ir á alþingi í gær og samþykkt.
Fundur í efnahags og viðskipta-
nefnd stóð yfir í gær og skilaði Pét-
ur Blöndal séráliti eftir fundinn.
Hann var því einn á móti hinum
nefndarmönnunum sem studdu
frumvarpið þó nokkrar breytingar
hafi verið gerðar á því. í gærmorg-
un sakaði'Pétur til dæmis Samfylk-
inguna um einelti og einnig nýtur
hann ekki stuðnings samflokks-
manna sinna.
„Pétur er að mörgu leyti sér-
kennilegur en um senn ágætur
stjórnmála-
maður," seg-
ir Björgvin G.
Sigurðsson,
þingmaður
Samfylking-
arinnar.
„Hann ber
að virða fyrir
það að hann
er alltaf sam-
kvæmur
sjálfum sér
og það hlýtur
að vera erfitt
hlutskipti að vera einn á móti öll-
um í eigin
flokki."
Björgvin tek-
ur ekki undir
orð Péturs að
Samfylkingin
væri að
leggja hann í
einelti og
segir að
menn hafi
einfaldlega
rætt út um
málin.
Nú þegar frumvarpið hefur ver-
ið samþykkt stendur eftir sú
spurning hvort eðlilegt hafi verið
að þingið greip inn í ákveðna at-
burðarrás sem var í fullu samræmi
við gildandi lög. Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstri grænna,
segir að það sé ekki æskilegt að
fara út í aðgerðir af þessu tagi.
„Það merkir samt ekki að það sé
ekki hægt að gera það.“ Steingrím-
ur segir að ef lögin hefðu verið
ótvíræð frá upphafi hefðu þessir
atburðir aldrei gerst. „Ég er ófeim-
inn við að gagnrýna markaðsöflin
og þau eiga ekki að ráða vilja al-
þingis."
simon@dv.is
Björgvin G. Sigurðsson
Pétur eraðmörgu leyti
sérkennilegur en um senn
ágætur stjórnmálamaður
Blómabúðin
BióM/þ
Grensásvegur 50, s 581 1330
r" \o°i° \
\ \
Grænar pottaplöntur
hæð 1-1,50 cm
kr 1490
MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
Sendum
heím
Allar
tegundir
skreytínga
Opið
10-20
virka daga
föstudaga
og
laugardaga
10-21
sunnudaga
11-19
Fallegir túlípanar
10 stk allir litir
kr 990
MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
Stórar rósir
10 stk
kr 1490
MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
ÞAR SEM BLÓMIN HLUSTA