Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2004, Page 10
7 0 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004
Fréttir DV
Handtekin
með
amfetamín
Lögreglan í Reykjavík
lagði í fyrrinótt hald á
nokkra tugi gramma af am-
fetamíni. Lögreglan var við
reglubundið eftirlit þegar
hún handtók tvo einstak-
linga. Þegar málið var
kannað nánar, fannst am-
fetamínið. Fólkið var við yf-
irheyrslur í gær og þykir
málið liggja nokkuð ljóst
fyrir. Tæknideild lögregl-
unnar rannsakar efnið og
vigtar það. Fólkinu var
sleppt eftir yfirheyrslur.
Starfshópur
skilar tillög-
um fljótlega
Engar tillögur hafa
borist frá starfshópi þeim
er skipaður var til að kanna
leiðir til að koma til móts
við þá íslendinga erlendis
er hættu að fá meðlög send
um áramótin. Hætt var að
senda meðlög úr landi
þann 1. nóvember sam-
kvæmt nýjum barnalögum
en skammur fyrirvari olli
mörgum Jslendingum er-
lendis miklum vandræð-
um. Karl Steinar Guðnason,
forstjóri Tryggingastofn-
unnar, sem sér um úthlut-
un meðlagsgreiðslna, segir
að búast megi við að hóp-
urinn skili af sér fljótlega.
Pétur Blöndal
Árás á 87 ára gamla konu á fyrrum meðferðarheimilinu Víðines hefur vakið óhug
meðal þjóðarinnar. Forstjóri Hrafnistu kvartar undan leka og segist hafa viljað
halda atburðinum leyndum. Heimilisfólk á Víðinesi fékk ekki leyfi til að tjá sig við
DV þrátt fyrir að vera ekki svipt forræði. Einn vistmaður kvartar þó undan slæm-
um aðbúnaði þó starfsfólkið sé yfirleitt alminnilegt.
„Fólk sér fyrir sér
varnarlaust gamal-
menni og auðvitað
kemur það illa út."
„Við vildum halda þessum atburði leyndum en
grunaði svo sem að þetta myndi berast út,“ segir
Sveinn H. Skúláson, forstjóri Hrafnistu. „Það eru
50 manns sem vinna hérna og trúlega hefur ein-
hver kjaftað frá.“ Atburðurinn sem um ræðir er
árás sjúkraliða á hjúkrunarheimilinu Víðines á 87
ára gamla konu. Fréttir af árásinni hafa vakið
óhug meðal almennings og vakið upp spurningar
um öryggi þeirra sem dvelja á vistheimilum fýrir
aldraða.
Manniegur harmleikur
„Auðvitað hörmum við atburðinn," segir
Sveinn. „Þó svona mál hafi vafalaust komið fyrir
áður þá er þetta mál sérstaklega alvarlegt." Sveinn
lýsir atburðinum á þá leið að maðurinn hafi verið
að aðstoða konuna um nóttina og trúlega hafi
hún veitt einhverja mót-
spyrnu. „Það er samt ekk-
ert sem segir að viökom
andi aðili hafi neytt mikils
afls og auðvitað sést mik-
ið á gömlu fólki." Sveinn
setur spurningarmerki
við hvernig málið er sett
fram í fjölmiðlum. „Fólk
sér fyrir sér varnarlaust
gamalmenni og auðvitað
kemur það illa út."
Sveinn lýsir atburðin- Sveinn H. Skúlason, for-
um á þessa leið. „Það stjóri Hrafnlstu Auðvitað
sést mikið á gömlu fólki
kemur eitthvað yflr manninn þess nótt og á
augnabliki er. ferill hans á enda,“ segir Sveinn.
„Hann var með góð meðmæli og stóð sig afar vel
en eftir eina óhugsaða athöfn er allt búið.“ Sveinn
segist ekki vera að afsaka atburðinn en vissulega
sé þetta mannlegur harml'eikur.
Kvartað yfir reglum og aðstöðu
Þrátt fyrir að nokkrir heimilismenn voru til-
búnir að tjá sig við DV bannaði Sveinn Skúlason
blaðinu að tala við vistmennina. Óljóst hvaða rök
standa á bak við ákvörðun Skúla en það vekur tví-
mælalaust upp spurningar af hverjuhverju fólk
sem ekki hefur verið svipt forræði fær ekki að
njóta málfrelsis. Einn af vistmönnunum, Frtða
Björk Ólafsdóttir, lét tilmæli Skúla hins vegar sem
vind um eyru þjóta og kvartaði yfir aðbúnaðinum.
„Við erum til dæmis látin dúsa í örsmáum
reykkompum; með engum gluggum og lélegri
loftræstingu." Varðandi starfsfólkið segir Fríða að
þeir séu yfirleitt alminnilegir. „Manni svíður hins
vegar þessi ofuráhersla sem þeir leggja á strangar
reglur," segir Fríða. „Við verðum alltaf að fara eft-
ir reglum heimilisins."
Óljós svör frá lögreglunni
Stjórn Hrafnistu hefur kært málið til Lögregl-
unnar í Reykjavík sem hóf rannsókn sfna í gær-
morgun. Síðdegis í gær var rætt við tvö aðila sem
voru vitni að árásinni. „Við munum taka skýrslu af
sjúkraliðanum á morgun (föstudag)," sagði Sigur-
björn Víðir Eggertsson rannsóknarlögreglumaður
í gærkvöld en honum er ekki kunnugt um að
starfsmaðurinn sem grunaður er um árásina hafi
áður komið við sögu hjá lögreglu. „Það er stefnt
að því að hraða rannsókninni svo það geti komist
til saksóknara eftir helgi."
simon@dv.is
_
Hjúkrunarheimil-
ið að Viðinesi
H Bæði starfsmönn-
■ um og vistfóiki er
■ óheimilað ad tjá sig
■ um atburðinn
Kvennasalerni
á Víðinesi Hérna
átti atburðurinn
sér stað
Pétur er ákaflega trúr sann-
færingu sinni, hreinskilinn í
framkomu og opinskár. Hann
er tilbúinn að ræða málin við
alla sem áhuga hafa. Þótt á
hann sé ráðist heldur hann
stillingu sinni og útskýrir mál
sitt yfirleitt í róiegheitunum, en
er fastur fyrir. Flestir eru sam-
mála um að þarna fari gegn-
heiðarlegur maður, léttur í
lund og skemmtiiegur, sem sér
óvæntar hiiðar á máiunum.
Kostir & Gallar
Hann þykir nokkuð undarleg-
ur á köflum og sérvitur í skoð-
unum sínum og athöfnum.
Vegna þess hversu trúr hann
er hugsjónum sínum og heið-
arlegur þykir hann ekki sýna
mikla plotthæfileika, enda
ekki hans stfii, og gæti það
háð honum í pólitíkinni. Þrátt
fyrir að skoðanir hans falli
saman við skoðanir Sjálfstæð-
isflokksins er hann stundum
einn á báti, eins og nú.
Fjárhagsvandi HÍ ræddur á þingi um leið og stúdentar mótmæltu skólagjöldum
HÍ gæti þurft að vísa 900 nemendum frá
Um tvö hundruð stúdentar tóku
höndum saman hringinn í kringum
aðalbyggingu Háskóla íslands til að
mótmæla hugmyndum um skóla-
gjöld og fjöldatakmarkanir við Há-
skólann.
Það var Röskva, samtök félags-
hyggjufólks við skólann, sem stóð
fyrir mótmælunum, en samtökin
hafna öllum hugmyndum um skóla-
gjöld. Rétt áður hafði Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamála-
ráðherra sagt á Alþingi að hún teldi
skólagjöld einn þeirra valkosta sem
stjórnmálamenn hlytu að velta fyrir
sér.
„Ég er með þessu ekki að segja að
ég telji rétt að taka upp skólagjöld.
Hins vegar tel ég rétt að við hefjum
hér hreinskilna umræðu um kosti
jafnt sem galla skólagjalda," sagði
hún þegar ijárhagsvandi skólans var
ræddur utan dagskrár.
Fær ekki sjálfkrafa aukið fé
„Að óbreyttu þarf Háskóli Islands
annaðhvort að vísa um 900 nýnemum
frá námi næsta haust eða taka upp
harkalegar fjöldatakmarkanir," sagði
Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, sem hóf umræð-
una. Þar vísaði hann í minnisblað frá
fulltrúum skólans sem lagt var fram við
fjárlagagerð, en þar vom nefnd dæmi
um þær aðgerðir sem skólinn þarf að
grípa til ef ekki verður veitt meira fé til
hans í takt við fjölgun nemenda.
„Háskóli íslands á ekki heimt-
ingu á því að fá sjálfkrafa aukið fé úr
ríkissjóði með því að taka inn fleiri
nemendur en gert væri ráð fyrir á
fjárlögum," sagði Þorgerður. Hún
sagði að framlög til skólans hefðu
verið aukin til muna á undanförnum
árum, en hún væri reiðubúin að láta
fara fram úttekt á fjárhag og stjórn-
un skólans. brynja@dv.is
Mótmæli við Háskóla fslands Um 200 stúdentar slógu hring um skólann til að mótmæla
hugmyndum um skólagjöld og fjöldatakmarkanir.