Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2004, Side 18
ct MMKwOnaaTnuD^ooTaöa
18 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004
Hoc'1.
Sport DV
Mancini talar
viðTottenham
Roberto Mancini, þjálf-
ari Lazio, hefur staðfest að
hann hafi rætt við forráðæ-
menn Tottenham um að
taka við knattspyrnustjóra-
stöðunni hjá félaginu í
sumar. Mancini segist þó
ekki hafa ákveðið hvort
hann hafi áhuga á því að
taka við Tottenham í
sumar. „Við töluðum
saman með það fyrir
augum að kynnast og fara
yfir stöðuna. Ég er hins
vegar með langan samning
við Lazio en ég hef alltaf
sagt að ég vilji þjálfa enskt
félagslið því að ég naut
andrúmsloftsins til hins
ýtrasta þegar ég var hjá
Leicester á sínum tírna,"
sagði Mancini. Hann er af
flestum talinn líklegastur til
að taka við Tottenham
ásamt landa sínum
Giovanni Trapptoni, þjálf-
ara ítalska landsliðsins.
Áfrýjun Anelka
klikkaði
Enska knattspyrnu-
sambandið tilkynnti í gær
að það myndi ekki breyta
rauða spjaidinu sem Frakk-
inn Nicolas Anelka hjá
Manchester City fékk í
leiknum gegn Arsenal.
Anelka reyndi að áfrýja
spjaldinu en hafði ekki
erindi sem erfiði og þarf að
taka út þriggja leikja bann.
Anelka mun missa af útileik
gegn Bolton 21. febrúar og
heimaleikjum gegn Chelsea
og Manchester United í
framhaldinu.
I
Úrslitaleikur í
Tyrklandi
Knattspyrnusamband
Evrópu hefur ákveðið að
úrslitaleikur meistaradeild-
ar Evrópu 2005 muni fara
fram á nýbyggðum Ataturk-
Ólympíuleikvanginum í
Tyrklandi. Lítil ánægja er
meðal annarra þjóða með
ákvörðun sambandsins þar
sem ólæti áhorfenda og
lítið öryggi hafa sett svip
sinn á íeiki sem þar hafa
farið fram á undanförnum
árum.
Árni Gautur Arason lék sinn fyrsta leik með Manchester City á miðvikudagskvöldið ge\
hægt að segja annað en fyrsti leikurinn hafi farið vel því að Manchester City tókst að si
tryggja sér sigur í leiknum.
Arni Gautur Arason spilaði sinn fyrsta leik með Manchester City gegn
Tottenham á miðvikudagskvöldið. Eftir slæma byrjun þar sem hann þurfti
að hirða boltann þrívegis úr netinu í fyrri hálfleik átti hann frábæran sfðari
hálfleik og frammistaða hans var stór þáttur í því að leikmönnum
Manchester City tókst að snúa dæminu við og tryggja sér sigur en sigurinn
tryggir þeim stórleik gegn grönnum sfnum í Manchester United í næstu
umferð.
DV Sport ræddi við Árna Gaut í
gærmorgun en hann var þá á
leiðinni á æfingasvæði Manchester
City. Aðpurður sagði Árni að sér liði
bara mjög vel og hann gæti varla
beðið um meira heldur en hann fékk
á miðvikudagskvöldið í sínum fyrsta
leik.
Engin óskabyrjun
„Ég fékk ekki óskabyrjun og
þurfti að hirða boltann úr netinu
strax eftir tvær mínútur. Annað og
þriðja markið voru ekki óverjandi
skot en bæði mörkin voru vel gerð.
Auðvitað vill maður verja allt sem
kemur á markið en í ljósi þess að ég
fékk þrjú mörk á mig er ég ekki
sáttur við fyrri hálfleikinn. Seinni
hálfleikurinn var hins vegar alveg
frábær, við sýndum mikinn karakter
og það var eiginlega ekki hægt að
fara fram á meira heldur en þetta.
Við vorum einum manni færri allan
seinni hálfleikinn en náðum samt að
skora fjögur mörk. Vonandi verður
þetta vendipunktur hjá liðinu og að
það komist á beinu brautina eftir
heldur erfitt gengi í deildinni," sagði
Árni Gautur.
Ekkert stressaður
Árni Gautur sagði að hann hefði
verið spenntur fyrir leikinn en að
stressið hefði verið lítið.
„Það var frábær umgjörð í kring-
um leikinn og ég var vissulega
spenntur áður en hann hófst. Þetta
var fyrsti leikurinn sem ég spilaði frá
því í lok nóvember og því renndi ég
„Davld Jam§i §r
markvörður númtr
§ltt / dag og ág h§ld
að þáð þurfl að§lnt
m§lra tllað ég tlál
hann út"
kannski svolítið blinti sjóinn. Ég var
hins vegar ekki streslaður enda hef
ég ágætis reynslu af |vona leikjum,
bæði með landsliðinu og Rosen-
borg. Eins og ég sagði áðan þá
byrjaði þetta ekki vel en seinni hálf-
leikurinn bjargaði deginum."
Hrós frá Keegan
Árni Gautur sagði að Kevin
Keegan hefði hrósað sér eftir leikinn
enda þungu fargi af létt af karlinum
eftir leikinn. Árni Gautur varði
frábærlega í seinni hálfleik, sér-
staklega þegar hann hirti boltann á
ótrúlegan hátt af tánum á Gustavo
Poyet sem stóð einn fyrir opnu
marki.
„Ég veit ekki alveg hvað ég á að
segja um þessa markvörslu. Eg hef
séð þetta aftur á myndbandi en
þetta gerðist svo hratt að ég man
lítið eftir þessu. Ég er bara sáttur við
að hafa náð boltanum á undan Tott-
enham-leikmanninum. Varðandi
Keegan þá var hann skiljanlega
ekkert sérstaklega sáttur eftir fyrri
hálfleikinn en bað menn samt um
að gefast ekki upp og reyna að halda
heiðrinum. Það áttu sennilega fæstir
von á því að við myndum vinna
þennan leik í síðari hálfleik og því
var hann mjög ánægður í leikslok.
Hann hrósaði mér eftir leikinn eins
og reyndar öllu liðinu enda var þetta
ansi gott hjá okkur að ná að snúa
þessum leik."
Erfitt að slá James út
Árni Gautur sagðist ekki búast
við þvT að þessi frammistaða hans
yrði til þess að hann næði að slá
David James, aðalmarkvörð liðsins,
út en hann má ekki spila með liðinu