Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2004, Side 29
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 29
Frelsi er tískuhugtak í dag. Ef menn eru ekki frjálsir þá eru þeir ófrjálsir. Frels-
isumræðan á það þó til að ganga of langt eins og vinir okkar Bandaríkjamenn hafa
sýnt okkur. Þeir búa jú í frjálsasta landi í heimi og eiga þess vegna aktívista sem
berjast fyrir hagsmunum sínum, hversu fáranlegir sem þeir kunna að vera.
NAMBLA og Butterfly Kisses eru gott dæmi um þetta.
Vilja
Samtökin NAMBLA
Butterfly Kisses
Bandarlkjunum en
þau berjast fyrir
viðurkenningu
samféiagsins á
ástarsamböndum
barna og fullorðina
einstaklinga.
Hagsmunasamtök af alls kyns
stærðum og gerðum gegna sífellt
mikilvægara hlutverki í lýðræðis-
samfélögum nútímans. Hvergi finn-
ast þó fleiri hagsmunasamtök en í
Bandaríkjunum - landi hinna frjálsu
og hugrökku - en þar finnast aktívist-
ar fyrir nánast alla málstaði sem til
eru. Samtök á borð við NAMBLA og
Butterfly Kisses eru gott dæmi um
hversu langt þessi „frelsis- og hags-
munabarátta" ergengin en samtökin
berjast fyrir viðurkenningu á kyn-
ferðislegum ástarsamböndum full-
orðinna einstaklinga og barna.
Stuðningur við dæmda barna-
perra
NAMBLA stendur fyrir North
American Man/Boy Love Associ-
ation og barátta þeirra miðar að því
að binda enda á „fordóma" í garð
karlmanna og drengja sem eiga í ást-
arsambandi. Samtökin voru form-
fega stofnuð í Boston árið 1978 og
hafa síðan reynt að fræða almenning
um ágæti þessara sambanda til að
koma í veg fyrir það sem þeir kalla
nornaveiðar. Ennfremur benda þeir
á hversu djúpar rætur slík ástarsam-
bönd eigi sér í sögunni, og líta m.a. til
Grikklands til forna, en NAMBLA
segir kynferðislegt samband karl-
manna og ungra drengja vera í lagi
svo framarlega sem allir aðilar séu
samþykkir því sem þeir eru að gera.
„Þúsundir karlmanna og drengja
B-k
Butterfly Kisses Svona lítur upphafs-
slða samtakanna Butterfiy Kisses út á net-
inu. Samtökin berjast fyrir rétti kvenna og
ungra stúlkna til að eiga i ástarsambandi
og segja fjölmiðla, stjórnvöld og trúar-
brögð aia á fordómum i garð þeirra.
eru í dag flæktir inn í hið órétdáta
dómskerfi Bandaríkjanna. Kerfið
fordæmir ástarsambönd milli yngra
og eldra fólks jafnvel þótt báðir aðil-
ar séu því samþykkir," er meðal þess
sem segir á heimsíðu samtakanna,
www.nambla.org. Þess vegna reka
samtökin svokallað Prisoner
Program sem styðja einstaklinga
sem sitja í fangelsi fyrir að eiga í „ást-
arsambandi" við aðila undir lögaldri
- þ.e. barnaníðinga sem segja fórnar-
lömb sín hafa samþykkt hinar kyn-
ferðilegu athafnir. NAMBLA ítrekar
þó að þeir styðji ekki athafnir sem
stangist á við lög en samtökin segjast
vera pólitísk mannréttindasamtök
með það að markmiði að fræða al-
menning um jákvæðar hliðar ástar-
sambanda barna og fullorðinna
manna.
Trúarbrögð, fjölmiðlar og
stjórnvöld ábyrg fyrir fordóm-
um
Samtökin Butterfly Kisses eru líka
starfandi í Bandaríkjunum en á bak
við þau standa konur sem vilja fræða
almenning um ástarsambönd full-
orðinna kvenna og ungra stúlkna.
Þeim, líkt og NAMBLA, er tíðrætt um
„fordómana" sem þær verða fyrir af
samborgurum sínum - fyrir það eitt
að laðast kynferðislega að ungum
stúlkum. Þessu vilja þær breyta og
segja trúarbrögð, fjölmiðla og stjórn-
völd Bandaríkjanna ábyrg fyrir þess-
um viðhorfum almennings.
Butterfly Kisses hafa þess vegna
reynt að koma sínum sjónarmiðum
á fram-
færi um það
þau kalla „eðli
þessara sambanda." Þær tala um
ákveðna fordóma gagnvart aldri
fólks og segjast vera mótfallnar lög-
um sem banna ákveðnum aðilum að
ffamkvæma hluti vegna aldurs. Þær
nota svokallaða frelsisreglu J.S. Mill
líkt og karlkynsfélagar þeirra í
NAMBLA og segja frelsið vera þannig
að hver og einn eigi að hafa rétt til
þess að gera það sem hann vill - svo
framarlega sem það skaði ekki aðra.
Kynlíf með börnum á því að vera
leyfilegt ef þau samþykkja það.
Tilvist þessara samtaka sýnir
svart á hvítu hversu fáranleg þessi ei-
lífa frelsisumræða er orðin. Þeir sem
berjast t.d. fyrir lögleiðingu fíkniefna
eða líknardrápa hafa hugsanlega
eitthvað til síns máls en ákveðið
spurningamerki verður að setja við
það þegar samtök eru farinn að berj-
ast fyrir réttinum til að misnota
böm.
NAMBLA North American Man/Boy
Love Association segjast vera póiitísk
mannréttindasamtök sem berjast fyrir
viðurkenningu á þvi sem hefur viðgegnist
siðan á gullöld Grikkja - ástarsambönd-
um karlmanna og ungra drengja.
Berjast fyrir
rétti sínum til
að misnota börn
Brjóstabomban Jordan heldur áfram aö valda usla
Jordan gerir það gott í frum-
skóginum Fyrst var það Beck-
ham og nú Schumacher
Jordan Segist hafa átti ástar-
sambandi við David
Beckham og Ralf
Schumacheren
þeir neita þvi báðir.
Hið barmmikla módel Jordan
heldur áfram að skemmta Bretun-
um í raunveruleikasjónvarpsþætt-
inum I'm A Celebrity - Get Me Out
Of Here. Hún hefur verið að daðra
mikið við Peter Andre sem hefur
meðal annars fengið að lúlla í
svefnpokanum með henni. Nú síð-
ast kysstust þau og í kjölfarið hefur
kærasti Jordan, Scott Sullivan, sagst
ætla að lemja Peter Andre.
Annars er það að frétta af þætt-
inum að knattspyrnukappinn Neil
Ruddock var rekinn út síðast og þá
hefur gamli Sex Pistols söngvarinn
Johnny Rotten hætt keppni. Jordan
hefur samt skyggt verulega á
hina þátttakendurna í þætt-
inum og fjölmiðlar í Bret
landi hafa verið duglegir við
að fjalla um stúlkuna. Þá hefur hún
einnig verið dugleg við að henda
sprengjum inn á borð fjölmiðlanna
en hún sagðist t.d. hafa átt í ástar-
sambandi
rvið Davidi
l Beckham. Hann j
rneitaði þeim ?
’ ásökunum og|
þess í stað hafa'
fjölmiðlar birt frásagnir hennar af
ástarsambandi við Formúlu 1 öku-
þórinn Ralf Schumacher. Þjóðverj-
Hpr hefur líka
^^neitað ásökun-
unum og segist að-
eins hafa hitt hana
einu sinni. Jord
an heldur því samt fram
að þau hafi átt í leyni-
legu ástarsambandi í
meira en þrjú ár.
Stjörnuspá
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur
er 35 ára í dag. „Maðurinn býr yfir styrk
sem er ekki auðsjáanlegur á stundum
og gáfaðurer hann.
Hann birtist viðkvæm-
ur oft á tíðum og býr
yfir þeim hæfileika að
vera fær um að hlusta
vel á undirmeðvitund
sína þegar kemur að
því að kynnast öðru
fólki," segir í
stjörnuspá hans.
Eiríkur Bergmann
VV Vatnsberinn (20.jan.-i8. febr.)
vv -------------------------------
Þú munt komast á leiðarenda
en það tekur tíma og jafnvel átak af þinni
hálfu. Smáatriði sem þú átt til að gleyma
þarfnast athygli þinnar þegar kemur að
líðan þinni sem tengist væntanlegum
breytingum á högum þínum.
H
Fiskarnir (i9.febr.-20.mars)
Stjama fiska virðist dreymin
þessa dagana en draumar eru vissulega af
hinu góða.Tilfinningar þínar koma þér ekki
kunnuglega fyrir sjónir og þú virðist stund-
um eiga það að sofna á verðinum þegar þú
ættir að hlúa betur að eigin líðan.
Hrúturinn (21.mars-19.apnv
Ef dagleg vandamál sem tengj-
ast starfinu flækjast fýrir þér ættir þú ekki
að láta þau fara í taugarnar á þér heldur
einungis leggja þig fram við að undirbúa
þig vel fyrir dagana sem framundan eru.
T
b
NaUtið (20. april-20. maí)
n
Síðustu dagar hafa verið anna-
samir og á hið sama við stjörnu þína
næstu daga. Þú gætir ýtt undir lengri frí-
tíma ef þú skipuleggur þig mun betur en
þú ert vanur/vön. Njóttu hverrar stundar
sem þú upplifir og jafnvel þó að för þín sé
án fyrirheits ættir þú að vera meðvitaðri.
Tvíburarnirp/. mai-21.jiínl)
Veisluhöld einhvers konareru
framundan þar sem félagar þínir virðast
koma við sögu frekar en fjölskylda þín.
Reyndu að breyta tapi þínu í ávinning
með réttu hugarfari næstu misseri. Þegar
þú telur þig vera reiðubúin/n að takast á
við tækifærin sem birtast hérna með opn-
um huga þá mun svarið koma af sjálfu sér.
Krabbinng2.jiim-22.jiiw_______
^■"r Efþúfinnurfögnuðinnsemfylg-
ir tilveru þinni og hlustar á það jákvæða
sem hjartað segir þér hérna er leiðin án efa
greið. Þú virðist vera að taka næsta skref
tengt þroska þínum um þessar mundir.
Lj Ó n Í 5 (23.júlí- 22. ágúst)
Af einhverjum ástæðum ættir
þú ekki að verja þig með skjótri ákvarð-
anatöku næstu daga. Hlýleiki þinn og út-
geislun eru kostir sem þú skalt nýta þér.
Þú ættir aldrei að gleyma þínum innstu
þrám og löngunum kæra Ijón.
Meyjan (21 ágúst-22. septj
Hreyfing og heilsuefling mun
efla þig til muna. Þú ættir að nýta mann-
lega hæfileika þína enn betur yfir helgina
framundan af einhverjum ástæðum og
muna að þú ert með rétta keppnisskapið.
o \loqm (23. sept.-23.okt.)
Þú ættir að hafa vakandi auga á
óvissunni yfir helgina og hinkra eftir að
lausn sem er bæði óvenjuleg og sérstök
vakni hjá þér. Nýtt ævintýri er vafalaust ný-
hafið hjá stjörnu vogar.
ni
Sporðdrekinn (24.okt.-21.Mv.)
Ef þú leitar að auðæfum i þessu
lífi er þér hérna ráðlagt að hjálpa öðrum
að komast af. Fréttir berast þér næstu
daga sem kunna að koma þér á óvart í já-
kvæðum skilningi. Nýr kafli opnar nýjar
gáttir fyrir stjörnu þinni hér í upphafi febr-
/
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.des.i
Þú ættir að setjast niður og
ræða við yfirmann þinn eða lærimeistara
um þau atriði sem kunna að valda þér
vanlíðan (starfi/námi. Þú virðist stjórnast
af sólinni sem ýtir undir athafnasamt eðli
þitt og löngun þina að skara fram úr.
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Þú ættir að einbeita þér fýrst að
því að efla og styrkja jafnvægið og innri
vellíðan þína áður en þú stígur næsta skref
í átt að breytingum á högum þínum. Þér er
einnig ráðlagt að leita eftir svari við spurn-
ingum þínum með því að leita inná við.
Svarið birtist þér sem minnsta smáatriði.
SPÁMAÐUR.IS