Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2004, Qupperneq 31
r
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 31
DV Síðast en ekki sist
• Nokkra athygli vakti smágrein
Sveins Andra Sveinssonar lög-
manns í Morgun-
blaðinu á dögun-
um, þar sem hann
kvað Ólaf Ragnar
Grímsson, forseta
íslands, hafa
„móðgað íslensku
þjóðina" með því
að vera ekki við-
staddur skemmti-
dagskrá í Þjóðmenningarhúsinu til
minningar um upphaf heima-
stjórnar. Hefur reyndar þegar verið
vakin athygli á því í dálknum Fyrst
og fremst hér í
blaðinu hversu
mjög grein Sveins
Andra svipaði til
ámóta greinaskrifa
Jóns Steinars
Gunnlaugssonar
prófessors í Morg-
unblaðinu og var
Jón Steinar þar tal-
inn hafa eignast efnilegan læri-
svein. Samsærissmiðir hafa nú
spunnið þá kenn-
ingu að með grein-
inni hafi Sveinn
Andri reyndar ver-
ið að taka meðvit-
að að sér hlutverk
arftaka prófessors-
ins í þessum
greinaskrifum - en
þau einkennast áf
stuttum, snaggaralegum og oft
hæðnislegum athugasemdum um
mótstöðumenn Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra.
Og ástæðan fyrir
því að Jón Steinar
þarf á arftaka að
halda er sögð sú
að fari svo fram
sem enn er ætlun-
in, að Davíð láti af
embætti forsætis-
ráðherra í haust,
þá verði það eitt af síðustu emb-
ættisverkum hans að skipa Jón
Steinar í Hæstarétt. Sæti gæti losn-
að hvenær sem er þar sem Guðrún
Erlendsdóttir hæstaréttardómari er
komin með réttindi til eftirlauna
og gæti raunar verið hætt fyrir all-
nokkru. En þegar Jón Steinar verð-
ur kominn í Hæstarétt þarf eftir
sem áður knáan lögmann til að
skjóta skildi fyrir Davíð þegar þörf
krefur, og það er það hlutverk sem
nú mun eiga að ala Svein Andra
upp í.
• Margir velta því fyrir sér hvað
Davíð Oddsson forsætisráðherra
fari að gera þegar hann lætur af
embætti í haust. Ekki er nýtt að fólk
velti fyrir sér hvað
verði um Davíð.
Fyrir síðustu kosn-
ingar vildu margir
spá honum brott-
hvarfi úr pólitík en
Davíð hefur mörg
líf. DV hefur heyrt
úr innsta liring að
þegar Morgun-
blaðið íliugaði að breyta yfirstjórn
sinni er Matthías Johannessen lét af
starfi, hafi komið til greina að Davíð
fengi stólinn. Stjórnarmenn í Ar-
vakri ámálguðu þetta við Davíð,
sem hafnaði því ekki þá að þeir
héldu áfram að ræða þessar hug-
myndir. Ekki reyndist samstaða um
þessa niðurstöðu enda hefur Davíð
sjálfsagt langað til að vera áfram í
pólitík...
• Á sama tíma sótti annar forsæt-
isráðherra, Þorsteinn Pálsson ,það
fast að snúa aftur til íslands úr
sendiherrastól í ritstjórnarstól á
Mogganum. Þor-
steinn hafði
reynslu sem rit-
stjóri á Vísi á átt-
unda áratug síð-
ustu aldar. Rit-
stjórastarfið á
Morgunblaðinu
hefur því verið eft-
irsóknarvert enda
hafa einhverjir látið hafa eftir sér að
það hafi verið ígildi ráðherrastóls.
Þar situr þó enn Styrmir Gunnars-
son, sprækari en nokkru sinni fyrr,
þótt hann sé að nálgast eftirlauna-
aldurinn...
■■ r,
Hrossarækt Litforottur bonus
„Við teljum skyldu okkar að leggja
rækt við öll séreinkenni hrossa-
stofnsins og vorum orðnir hræddir
um að litförótti‘hrossastofninn væri
að deyja út. En Vonandi er hann nú
aftur að komast f sókn,“ segir Kristinn
Guðnason, formaður fagráðs í
hrossarækt. Landbúnaðarráðherra
hefur á Alþingi lagt fram skriflegt svar
við fyrirspurn þriggja þingmanna
Samfylkingarinriar um litförótt hross
í íslenska stofninum. I svari ráðherr-
ans, Guðna Ágústssonar, kemur fram
að tíðni litföróttra folalda sé um 0,4%
í hverjum árgangi, eða um 20 folöld á
ári. Út frá þeirri tíðni ættu um 300 lit-
förótt hross að vera í landinu, en lita-
afbrigðið stafar af einum ríkjandi
erfðavísi. Þá segir að af þeim stóð-
hestum sem nú eru í almennri notk-
un sé enginn litföróttur hér á landi.
Sárafáir litföróttir stóðhestar hafi
komið fram á síðustu árum.
„Við höfum viljað ýta á menn
varðandi þetta, til dæmis með því að
heita eigendum þremur fyrstu litför-
óttu hestanna sem kæmu fram á
stóðhestasýningu verðlaunum úr
Stofnverndarsjóði sem næmu 300
þúsund krónum á hvem grip. Enginn
hesturinn hefur komið ffam ennþá,
né nokkur hryssueigandi vitjað um
þær 6.500 kr. sem við höfum boðið.
En það hefur verið svolítill áliugi á lit-
föróttu síðustu árin, og þá sérstaklega
eftir að Páll Imsland jarðfræðingur
fór að vekja athygli manna á þessu
fyrir nokkmm árum," segir Kristinn.
Hann bætir því við að litförótt í ís-
lenska hestastofninum sé vitaskuld
bara bónus á alla hina eiginleika
þessa stofns, sem sé sá eini í
veröldinni með fimm gangtegundir.
Þetta skapi fslenska stofninum al-
gjöra sérstöðu. „íslenskir hestamenn
eru í sókn núna, eftir lægð sem hesta-
mennskán hefur verið í á undanföm-
um ámm. Nú erum við komnir á
beinu brautina," segir Kristinn
Guðnason.
Kristinn Guðnason „Skylda að leggja rækt
við séreinkenni," segir formaður fagráðs i
hrossarækt.
MITAC MINOTE 8080 CENTRINO
GLÆSILEG HONNUN...
ÖFLUG VÉL í ALLA VINNSLU!
5ME %
fEEgKKRi,
>STGRÚfvl/tVSKt
M'TAC MINOTE 8080 15 ", SXGA+
PENTIUM M (BANIAS) 1,5GHZ 1MB CACHE
256MB DDR333 VINNSLUMINNI
8X DVD / 24X GEISLASKRIFARI - COMBODRIF
INNBYGGT STEREO HLJÓÐKORT
VANDAÐIR INNBYGGÐIR STEREO HÁTALARAR
40GB HARÐUR DISKUR 5400SN
INTEL EXTREME II 64MB SKJÁKORT TV-OUT
15" SXGA TFT SKJÁR - 1400X1050 UPPLAUSN
ÞRÁÐLAUST NETKORT - 10/100 NETKORT - 56K MÓDEM
VANDAÐ LYKLABORÐ MEÐ ÁBRENNDUM ÍSL. STÖFUM
NÁKVÆM SNERTIMÚS - FRÁBÆR HÖNNUN - ÞÆGILEG í NOTKUN
WINDOWS XP HOME
CD MUSIC PANEL - USB2 - FIREWIRE - VGA TENGI OG FL.
AÐEINS 2.7KG - BATTERÍ í NOTKUN ALLT AÐ 6 KLUKKUTÍMA
Opið :
9-19 VIRKA DAGA
11 - 1 7 LAU
13 - 17 SUN
00
000
0000
BHHEl
BH
HHH
HHHH
HHHH
TASK - ÁRMÚLI 42 - 108 RVK. - SI 588 1000 - WWW.TASK.IS