Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2004, Blaðsíða 25
24 LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 Fókus XSV DV Fókus LAUGARDAGUR 27. MARS 2004 25 ■ I I Víman felst í valdinu „Ég var sjö ára þegar ég misnotaði einstakling í fyrsta skiptið. Ég lokkaði fimm ára dreng inn í gamla skemmu um mitt sumar. Það var hlýtt í veðri og hann var ekki í neinu nema stuttbuxum. Ég fékk hann til að fara úr þeim þannig að hann stóð nakinn íyrir framan mig. Þótt ég hafi ekki átt líkamlega snertingu við drenginn var það mikið kikk þegar ég náði að brjóta hann niður og láta hann fara að mínum vilja - mér leið eins og ég hefði fengið raflost. Ég naut þess að láta hann standa þarna fyrir ffarnan mig nakinn en það voru smámunir samanborið við tilfinninguna sem fór um mig þegar ég fann að hann laut mínum vilja," segir í viðtali við bamaníðing í bókinni Conversations With A Pedophile eftir Dr. Amy Hammel-Zabin. Umræddur níðingur varð ekki sjálfúr fyrir misnotkun sem barn en segist hafa haft þessar hvatir allt frá því að hann man eftir sér. Sfðar í samtalinu segir hinn dæmdi barnaníðingur frá því þegar hann var settur á lyfið Lupron sem minnkar testósterónframleiðslu í líkamanum. „Fram að lyfjagjöfinni man ég ekki eftir neinum tímapunkti í lífi mínu þar sem ég var ekki fastur f minni brengluðu veröld þar sem alit snérist um að skipuleggja hvernig ég kæmist að næsta fórnarlambi. Það var ekkert sem að gat brotið þessa löngun mína á bak aftur þangað til ég fór á lyfið." Galdurinn að öðlast traust foreldranna Viðtal við dæmdan bamaníðing, David Hernandez, var sýnt í þætti dr. Phils ekki alls fyrir löngu. David er nú í fangelsi, en hann segir fórnarlömb sín vera yfir hundrað talsins. Hann notaði háþróaðar aðferðir til að koma sér í mjúkinn hjá foreldrum barnanna. Hann var vinalegi nágranninn, fjölskylduvinurinn og góðhjartaði starfsmaðurinn í kirkjunni sem gerði allt til að hjálpa meðbræðrum sínum. David kemur fyrir sem rólegur, greindur og vinalegur maður. „Tælingarferlið, það að undirbúa barnið áður en ég ræðst til atlögu, getur tekið langan tíma. Ég nota ekki peninga, eiturlyf eða annað. Foreldrar gætu séð við mér með því að taka eftir því að ég væri að leggja mig of mikið ffarn við að ná tengslum við þau og barnið." David segist oft hafa notfært sér vandamál í fjölskyldum, til dæmis hjónabandserfiðleika, eða að bamið skorti föðurímynd. „Þá kom ég inn í spilið, aðstoðaði við að sækja bamið í skólann, fara með það á fótboltaleiki og annað slíkt. Ég bíð þangað til foreldrarnir fara að treysta mér fyrir barninu áður en ég fer að misnota það.“ David segist ekki líta á börnin sem fórnarlömb heldur jafningja sína, en það er ein af mörgum hugar- brenglunum sem barnaníðingar ala með sér. Kynferðisleg misnotkun á bömum og barnakiám hafa verið mikið í umræðunni eftir að tveir þungir dómar í þessum málaflokki féllu á fimmtudag. Þar var maður dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir vörsiu á gríðarlegu magni afbarnaklámi og grófa misnotkun gagnvart sex drengjum. Annar maður var sama dag dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa nær daglega haft samræði við stjúpdóttur sína í meira en áratug. Rannsóknir á barnaníðingum hafa leitt það í Ijós að hinn dæmigerði barnaníðingur er ekki til og því er ómögulegt að segja til um hver hafi og hafi ekki kynferðislegar hneigðir til barna. Níðingurinn geturþví verið hver sem er. Fyrir helgi féllu tveir dómar í kynferðisbrotamálum gegn börnum. Ágúst Magnússon var dæmdur í hérðasdómi í fimm ára fangelsi fyrir gróf og ítrekuð kynferðisbrot gagnvart 6 drengjum og fyrir að hafa haft gríðarlegt magn barnakláms í sinni vörslu. Þá staðfesti Hæstiréttur fimm og hálfs árs fangelsi yfir öðrum manni fyrir að hafa nær daglega haft samræði við stjúpdóttur sína frá því hún var 5 ára fram til 18 ára aldurs. Fáa grunaði að umræddir menn hefðu þessar hvatir enda sýna rannsóknir á kynferðisbrotum gegn börnum að hinn dæmigerði barnaníðingur er ekki til. Hann getur því verið hver sem er og leynst hvar sem er. Óhugur meðal almennings Barnaníðingar og barnaklám eru meðal þess sem vekur upp hvað mestan óhug á meðal almennings. Á síðasta ári handtók lögreglan Agúst Magnússon sem hafði í fórum sínum mesta magn af bamaklámi sem gert hefur verið upptækt hér á landi. Grunur vaknaði þá þegar um að Ágúst hefði framleitt eitthvað af efninu sjálfur og hefur það nú verið staðfest með dómi. Á meðan Ágúst beið dóms var hann handtekinn aftur grunaður um að hafa reynt að tæla til sín unga drengi á netinu. Hann var færður „Hérlendar rannsóknir synaaðum 17% íslenskra barna, um fimmta hver stúlka og tíundi hver drengur, verðurfyrir kynferðislegri misnotkun fyrir 18 ára aldur." niður á stöð og við yfirheyrslur gat hann gefið upplýsingar sem leiddu til þess að lögregla komst á snoðir um séra Baldur Gaut Baldursson. Hann hefur nú viðurkennt að hafa í tvígang á síðasta ári haft mök við 15 ára pilt. Þessi mál og mörg fleiri hafa vakið mikla reiði í samfélaginu og ekki bætir úr skák þegar dómstólar dæma slíka einstaklinga til vægra refsinga líkt og algengt er. Barnaníðingar hafa oftast fengið nokkurra mánaða fangelsisdóm fyrir brot sín sem jafnvel hafa staðið ámm saman. Dómarnir sem féllu fyrir helgi em því í þyngra lagi enda um mjög gróf brot að ræða. Hærri tíðni hér en í samanburðarlöndum Eins og áður sagði hafa rannsóknir sýnt fram á að barnaníðingar geta verið í öllum þrepum þjóðfélagsstigans og á öllum aldri. Hver sem er getur haft kynferðislegar hneigðir til barna - bróðir, faðir, frændi, afi, nágranni og jafnvel móðir. Ómögulegt er að segja til um það en oftast er þó um einhvern sem er nákominn fjölskyldu fornarlambsins að ræða og hafa nýlegar rannsóknir Hrefnu Ólafsdóttur, klínfsks félagsráðgjafa, m.a. sýnt fram á þetta. Þar kemur einnig fram að 17% íslenskra barna, um fimmta hver stúlka og tíundi hver drengur, verður fyrir kynferðislegri misnotkun fyrir 18 ára aldur. Þetta eru hærri tölur en þekkjast í nágrannalöndum okkar s.s. Danmörku (11%), Noregi (14%) og Svíþjóð (6%). Ennfremur sýndu rannsóknir Hrefnu fram á að um grófa eða mjög grófa misnotkun væri að ræða í mun fleiri tilvikum en fólk gerir sér almennt grein fyrir. Margir telja að oft sé aðeins um áreiti eða káf að ræða en raunin er sú að í 67% tilvika er um grófa misnotkun að ræða. Með því er átt við að fórnarlambið hafi annað hvort verið látið snerta brotamanninn á kynferðislegan hátt eða að fórnarlambið hafi hreinlega verið látið taka þátt í kynmökum. Þá kemur einnig fram að misnotkun barna hefjist yfirleitt þegar þau eru mjög ung og geri sér enga grein fyrir hverju þau séu að taka þátt í. Stúlkur voru t.d. í 28% tilvika undir 6 , ára aldri þegar misnotkunin hófst á meðan að misnotkun á drengjum hófst yfirleitt síðar en 21% þeirra voru á aldrinum 11-12 ára þegar misnotkun hófst. Felstir tengjast fjölskyldunni Þótt ómögulegt sé að reikna út hvort einhver einn sé lfldegri til að vera barnaníðingur en annar sýna rannsóknir fram á að yfirleitt eru níðingar einhverjir sem eru nijög nákomnir fórnarlambinu líkt og áður hefur verið minnst á. Ef aftur er vísað til hérlendra rannsókna þá kemur í ljós að í nærri 70% tilvika er sá sem misnotar íjölskyldumeðlimur eða vinur fjölsky'ldu fórnarlambsins en aðilar ókunnugir íjölskyldu fórnarlambsins telja um 30%. Feður eða staðgenglar þeirra eru gerendur í rúmlega 10% tilvika á meðan mæður eru gerendur í 2% tilvika. Hin brotin er flest framin af frændum, öfum, bræðrum eða fjölskylduvinum fórnarlambsins. Þrátt fyrir allar þessar tölfræðistaðreynir hefur ekki tekist að finná út sérstakan próffl af hinum | dæmigerða barnaníðingi. Þessir aðilar geta verið hvaðan sem er úr þjóðfélaginu og á hvaða aldri sem er. Þess vegna er atvinnulausi dópistinn ekkert lfldegri en bankastjórinn ^ þess að misnota börn þótt svo að fordómar fólks telji því trú um annað. Margir telja að oft sé aðeins um áreiti eða káf að ræða en raunin er sú að í 67% tilvika er um grófa misnotkun að ræða." Líklega algengara en tölur segja til um Fjöldi kærðra kynferðísbrota hefur farið vaxandi á undanförnum árum en það er þó ekki talið vera til merkis um fjölgun slflaa brota. Opin umræða og breytt úrræði fyrir þolendur hefur skilað því að fleiri þora að koma ffarn og kæra en áður. Þrátt fyrir það er talið að meirihluti kynferðisbrota eigi sér stað án þess að nokkuð sé aðhafst í málinu. Sum komast aldrei upp á meðan önnur eru of viðkvæm fyrir þá sem hlut eiga að máli - sérstaklega þegar fjölskyldumeðlimir eiga í hlut. Sumir ganga jafnvel það langt að segja það ekki taka því að kæra brotin þar sem dómar séu of vægir og að sá tími sem fari í yfirheyrslur og rannsóknir á málinu sé fórnarlambinu og fjölskyldu þess einfaldlega ofviða. Þannig má gera ráð fyrir því að tölurnar sem fjallað er um í sambandi við kynferðisbrotamenn séu í raun öllu hærri en rannsóknir gefa til kynna. Skortur á úrræðum Það er vel þekkt að þótt barnaníðingar séu handteknir, dæmdir og sendir í fangelsi eða meðferð breyti það litlu um kynhneigð þeirra. Auðvelt er að fordæma misnotkunina og láta svo þar við sitja en í raun gerir það ekkert nema að halda hlutunum leyndum áffarn. Það er ljóst að kynferðisglæpamenn af þessum toga þurfa á sérstökum úrræðum að halda því annars halda þeir uppteknum hætti áfram. Nærtækt dæmi er Steingrímur Njálsson sem hefur hlotið á fjórða tug dóma, þar af nokkra fyrir kynferðisbrot gagnvart ungum drengjum. Þrátt fyrir marga dóma og endurtekna veru í fangelsum hefur hann haldið uppteknum hætti og síðast kom upp mál tengt honum á síðasta ári. Þá hefur Steingrímur þurft að sæta ofsóknum, m.a. hefur verið kveikt í heimili hans, hann laminn og hrakinn á brott. „Atvinnulausl dópistinn ekkert Hklegri en banka- stjórinn tilþess að misnota börn þótt svo að fordómar fólks telji þvioft trú úm annað." Með þessu móti er einungis verið að fordæma barnaníðinga og þeirra hneigðir en það breytir ekki hvötum einstaklingsins sem á í hlut. Barnaníðingar eru augljóslega mjög sjúkt fólk sem þarf á hjálp að halda en sú aðstoð er ekki til staðar. Þá þarf að sjálfsögðu ýmis úrræði fyrir fórnarlömb kynferðisbrotamanna og hefur þeim fjölgað á síðustu árum. En betur má ef duga skal og þótt boðið sé upp á ágætis úrræði og hjálp fyrir börn sem hafa lent í misnotkun þarf öflugri aðstoð við þá sem eldri eru. Fórnarlömb kynferðisofbeldis eru oft alla ævi að vinna úr sínum málum og því þarf betri stuðning á síðari ævistigum fyrir þá sem það þurfa. Steinqrímur Niálsson sibnotamaour a pinni Flestir kannast við nafn Steingríms Njálssonar. Hann hefur á löngum glæpaferli margsinnis verið dæmdur fyrir ýmiss konar afbrot. Alvarlegustu brot hans eru án efa kynferðisbrot sem hann framkvæmdi gagnvart ungum drengjum. Steingrímur hefur í það heila hlotið á fjórða tug dóma, flesta fyrir þjófnað og ölvunarakstur en af þessum mikla flölda dóma eru sex vegna kynferðisbrota gagnvart bömum og unglingum. Mál Steingríms komu fyrst inn á borð lögreglunnar árið 1963 þegar Steingrímur var 21 árs. Þá var hann dæmdur til refsingar fyrir kynferðislega misnotkun á tveimur 11 ára gömlum piltum. Síðan liðu mörg ár án þess að hann væri kærður fyrir samskonar brot en árið 1977 var hann aftur kærður - nú fyrir að nauðga nfu ára dreng. Ári síðar réðst hann á 12 ára pilt og fyrir þessi tvö brot hlaut hann tveggja ára fangelsisdóm. Árið 1985 lokkaði Steingrímur svo blaðburðardreng inn í íbúð sína, hélt honum þar í nokkurn tíma og kom síðan fram vilja sínum við hann. í viðtali við DV lýsti faðir fórnarlambsins viðbrögðum sínum þegar drengurinn skilaði sér ekki heim. „Þetta var allt skipulagt... Fyrst byrjaði hann að bíða eftir syni mínum við garðshliðið heima hjá sér og kaupa af honum blaðið. Svo gerðist hann áskrifandi. Tveimur mánuðum síðar lokkaði hann drenginn okkar inn til sín þegar hann var að rukka, skellti í lás og kom fram óeðli sínu ... Ég hafði það sterklega á tilfinningunni að þessi maður væri á einhvern hátt viðriðinn hvarf drengsins... Skömmu síðar komumst við að því að grunur minn hafði reynst réttur, drengurinn okkar hafði verið inni í húsinu og þolað kynferðislegar misþyrmingar meðan við stóðum á tröppunum fyrir utan. Ef ég hefði farið inn væri þessi maður ekki í tölu lifenda." Árið 1998 var Steingrímur svo dæmdur í 9 mánaða fangeisi fyrir brot gegn þremur ungum piltum og að því loknu skyldi hann vistaður á „viðeigandi hæli“ í 15 mánuði. Það hæli var þó ekki til og er ekki enn. Steingrímur fékk því ekki viðeigandi vistun og að sjálfsögðu átti hann eftir að brjóta af sér aftur. Síðan hefúr hann sætt ofsóknum almennings og margsinnis verið hrakinn á brott úr þeim hverfum eða bæjum þar sem hann hefur sest að. Steingrímur hefur verið barinn til óbóta og híbýli hans brennd. Allt þetta sýnir að úrræði vantar fyrir barnaníðinga sem eru greinilega fársjúkir einstaklingar. Þótt menn hljóti dóma slekkur það ekki á hvötum þeirra og ofsóknir almennings breyta ekki neinu heldur. Hvernig er best aö varast harnaníðinga? • Foreldrar eiga að vera á verði gagnvart hugsanlegum barnaníðingum. Vísbending um slflct er þegar menn bjóða of mikla hjálp varðandi fjölskylduna og börnin, eða vita of mikið um börnin þín eða börn yfirleitt, sérstaklega ef þeir eiga engin börn sjálfir. • Foreldrar eiga að ræða við börnin sín um barnaníðinga strax og þau hafa aldur til. Við þriggja til fimm ára aldur eru þau orðin nógu gömul til að geta orðið fórnarlömb barnaníðings. • Foreldrar þurfa ekki að vera hræddir um að þeir skelfi börnin með slikum umræðum, en verða um leið að kunna að ræða við þau þannig að þau skilji. Bömin verða ömggari ef þau vita hvernig þau eiga að verja sig. • Börn þurfa að vita að þau hafa rétt til að segja nei, öskra eða biðja um hjálp. Þetta gæti verið andstætt því sem þeim hefur verið kennt um að hlýða fullorðnum. Segið þeim að ef þeim er ógnað hafa þau leyfi til að öskra eða hlaupa í burtu, og að þau verði ekki skömmuð þó þau hafi kannski rangt fyrir sér. • Tryggið að börnin viti hvað er viðeigandi snerting og hvað ekki, og hvaða hluta líkamans enginn má snerta. • Æfið það sem börnin eiga að gera lendi þau í hættu. Að segja barninu einfaldlega að öskra á hjálp er ekki nóg, ef þau ekki æfa viðbrögðin vita þau ekki nákvæmlega hvað þau eiga að gera. • Minnið börnin á að barnaníðingar ekki ljótir í ffamar. Hættuleg manneskja getur litið ósköp venjulega út.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.