Akranes - 01.12.1944, Side 6
138 . 1 i ■ AKRANES
B Y R O N , ævisaga hans eftir Maurois, Sigurður Einars-
son þýddi. Skínandi fallega skrifuð bók, prýdd mörgum
fallegum mýndum úr lífi skáldisns.
NÝJAR SÖGUR eftir Þóri Bergsson. Smásögur Þóris
Bergssonar eru með því bezta, sem nú er skrifað á ís-
lenzku. Bókin fæst í ekta geitarskinnsbandi.
MINNINGAR SIGURÐAR BRIEM. Fróður
maður og minnugur segir þar þætti úr sögu þjóðarinn-
ar. Bókin er fróðleg og skemmtilega rituð, prýdd mörg-
um myndum. Fæst í skinnbandi.
BYGGÐ OG SAGA eftir Ólaf Lárusson prófessor.
Olafur Lárusson er tvímælalaust einn af okkar beztu
fræðimönnum. Bókamenn geta ekki kosið sér betri jóla-
gjöf.
KRISTÍN SVÍADROTTNING, eftir Dunbar,
Sigurður Grímsson þýddi. Bókin er prýdd mörgum
myndum, og er ein af skemmtilegustu ævisöguin, sein
nú eru til á íslenzku.
v ' " r:v c-; vs
ÍSLENZK ÚRVALSLJÓÐ. Fyrir þessi jól kein-
ur 10. bindi úrvalsljóðanna: Jón Thoroddsen. Látið liana
ekki vanta í safn ykkar.
ÚR BYGGÐUM BORGARF J ARÐ AR, eftir
borgfirzka fræðaþulinn Kristleif Þorsteinsson á Stóra-
Kroppi.
H U G A N I R , eftir Guðmund heitinn Finnbogason. Hug-
anir er bók, sem hver góður bókamaður þarf að eignast,
en upplag hennar er nú nærri þrotið.
Næstu daga koma í bókaverzlanir: SÓLHEIMAR,
eftir Einar P. Jónsson, ritstjóra í Winnipeg, H E L D R I
MENN Á HÚSGANGI eftir Guðmuríd^Daníels-
son, HAFIÐ BLÁA, eftir Sigurð Helgason, og
EVUDÆTUR, eftir Þórunni Magnúsdóttur.
7
Bókaverzlun ísafoldarprentsmiðju
i