Akranes - 01.12.1944, Side 7

Akranes - 01.12.1944, Side 7
III. árgangur Jólablað 1944 11.—12. tölublað Jólin eru ævarandi boðskapur um batnandi heim Eftir hartnær tvö þúsund ára túlkun þessa eilífa boðskapar, finnst mörgum sem yfir- skriftin sé vafasöm staðhæfing, þegar litið er yfir eymd þá og ógnir, sem þeir hafa valdið, sem boðskapurinn er stílaður til. Allar þær ógnir og eyðilegging á manns- lífum og margvíslegum verðmætum er vafalaust ein átakanlegasta sönnunin, sem til er fyrir því, að menn noti ekki leiðsögn þeirrar stjörnu, sem öllum stjörnum er fegri. Þeirri stjörnu, sem ein hefur þann eiginleika, að lýsa gegnum kafþykk ský, sem skafheiðan himin. Það er og verður sjálfsagt mannsins mesta mein, að vita ekki eða vilja ekki viðurkenna ætt sína og ei- lífan uppruna. Og á meðan svo er, þarf engan að undra, þó menn leggist lágt, í stað þess að hugsa hátt og sækja á bratt- ann. Það er sitt hvað að þyggja leiðbeiningar eða góðar gjafir, og annað að notfæra sér það í sambandi og í samræmi við það, sem boðið er eða gefið. Þar þarf ekki að vitna til yfirnáttúrlegs heilags boðskapar, sem menn vilja í lengstu lög veigra sér við að taka afstöðu til. — Vér skulum heldur halda oss við þennan heim og heimili vor. Þar verðum vér þráfaldlega þess vör, að ýms boð foreldranna, sem börnin þó hafa reynt að eru sann- prófuð í eldi reynslunnar, eru ekki haldin. Jólin eru tíðast túlkuð sem hátíð barnanna. Sú túlkun, og sá boðskapur verður barninu vafalaust mikils virði, þegar það er vaxinn maður. Jólin eiga líka að vera hátíð hins „volduga“ manns. Þess sem farinn er að fella af, og flýtir sér til grafar. Þau eiga að vera sífelld endurnýjun, og orkulind til endurnæringar þess guðlega neista í mannssálinni, sem ein gerir manninn að mönnum, og lífið þess vert að því sé lifað. Það eitt gefur ein- hverja von um að hver og einn hafi orkað einhverju í þá átt á lífsleiðinni, hvort sem hún hefur verið löng eða skammvinn. Sá, sem aldrei heyrir eða skilur boðskap jólanna eða er ami að saklausu blíðlyndu barni, er ekki til fulls í smræmi við lífsins æðsta takmark, eða samflota við þá hugsjón, sem mönn- um er mikil nauðsyn að glæða hjá sér og viðhalda, til þess að öðlast lífsfyllingu, og sjá heiminn vaxa til þi'oska og full- komnunar meðan hann lifir og getur lagt sitt lóð í skálina til blessunar en ekki böls. Hver heilbrigður hugsandi maður hlýtur að finna sárt, hve þessi volduga, gæðum fyllta veröld, er langt frá því að vera varanlegur samastaður. Það hafa nú flestir fengið að reyna meira eða minna síðastliðin fimm ár. í þeim efnum er engra bóta að vænta, nema að mennirnir lítillækki sig. Nema að

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.