Akranes - 01.05.1950, Blaðsíða 24
Fyrirliggjandiao
Hangíkjöt
Ralltipylstir
Folaldakjöt
Saltað ærkjöt
Saltað
tryppakjöt
Samband ísl. samvinnufélaga
SlMI 2678.
-------------------------------------------------------------------------—-----------------^
TILKYNNING
um endurnýjun umsókna um lífeyri frá ahnannatryggingum.
Yfirstandandi bótatimabil almannatrygginganna rennur út 30. júní næstkomandi.
Næsta bótatímabil hefst 1. júlí 1950 og nær til 30. júní 1951.
Að þessu sinni verður þcss eigi krafizt, að þeir, scm nú njóta ellilífeyris, örorkulífcyris, barnalifcyris eða
fjölskyldubóla sendi sérstakar umsóknir.
Umboðsmenn Tryggingarstoi.'nunar ríkisins munu, hver í sínu umdæmi, úrskurða þcim, sem nú njótn
framangreindra bóta skv. úrskurði, bætur fyrir næsta bótatímabil á grundvelli fyrri umsókna, mcð hliðsjcn
af nýjum upplýsingum um tekjur og annað, er varðar bótaréttinn. Munu þeir tilkynna bótaþegnum um úr-
skurðinn með nýju bótaskirteini í byrjun næsta bótaárs.
Þeir, sem nú njóta örorkustyrks, ekknalífeyris, makabáta eða lífeyrishœkkunar skv. úrskurði, skulu hins
vegar sækja á ný um bætur þessar, ef þeir óska að njóta þeirra næsta bótatímabil, og gera nákvæma grein fyrir
þeim atriðum, er upplýsa þarf i því sambandi. Umsóknir um endurnýjun bóta þessara skulu ritaðar Trygg-
ingastofnun ríkisins fyrir 20. dag júnimánaðar.
Áríðandi er að örorkustyrkþegar, sem misst hafa 50—75% starfsorku, sæki á tilsettum tima, þar scm ella
er með öllu óvíst að hægt sé að taka umsóknirnar til greina, vegna þess að fjárhæð sú, er verja má i þessu
skyni, er takmörkuð.
Fæðingarvottorð og önnur tilskilin vottorð skulu fylgja umsóknum, hafi þau eigi verið lögð fram áður
Þeir umsækjendur, sem gjaldskyldir eru til tryggingasjóðs, skulu sanna, með tryggingaskírteini sinu eða á
annan hátt, að þeir hafi greitt iðgjöld sin skilvíslega. Vanskil varða skerðingu eða missi bótaréttar.
Umsóknir um aðrar tegundir bóta en þær, sem hér að iframan eru nefndar, svo sem fæðingarstyrki, sjúkra-
dagpeninga og ekknabætur, svo og nýjar umsóknir um lífeyri, verða afgreiddar af umboðsmönnum á venju-
legan hátt, enda hafi umsækjandi skilvíslega greitt íðgjöld sín til tryggingarsjóðs.
Reykjavík, 25 maí 1950.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.
Alíkálfakjöt
Nautakjöt
Kýrkjöt
Ærkjöt
Dílkalífur