Akranes - 01.09.1950, Side 17

Akranes - 01.09.1950, Side 17
Olafur B. Bjömsson Þœttir úr sögu Akraness, V. 29 HVERSU AKRANES BYGGBIST 4. kafli. — 1870—1900. — Byggingar batna. 70. Oddsbœr, frh. hér í Canada að ná til nauðsynlegra heim- ildarrita um svona löguð íslenzk efni. — Auk þess virðist mér sá siður vera hér að ryðja sér til rúms, einkum hjá hinni yngri kynslóð, að vita sem minnst um það, sem gerst hefur á ættlandinu okkar gamla Is- landi, þó oss finnist hrein ættjarðarást hjá ýmsum hinna eldri og meira hugs- andi manna, en hjá miklum meirihluta hinna, virðist, að langt of mikið prjál, stefnuleysi og hugsunarleysi um flest ann- að en að sýnast, er kappið til þess svo mikið í þessa áttina, að menn gefa sér ekki tíma til að líta til baka yfir það, sem gerst hefur á undanförnum árum. Mætti þó margt af því læra. Getur verið að ég sé orðinn of bölsýnn af elli, en ekki er mitt að segja um það. Þó væri betur það væri svo. Þetta er eiginhandarrit mitt, skrifað 1884, var ég þá á Akranesi á Islandi, en ég fór þaðan 1887 til Canada, og hætti bá við það, svo það er eins og ég skildi við það 1884 — ófullgert, — en nú er árið 1913, og ég ófær til allra verka, bæði fyrir elli-sakir og á'fall, sem ég hef orðið fyrir á heilsunni og ástvinamissir, þó ég eigi nóg fyrir mig til að lifa af. Yona ég að lifa ekki lengur en það endist, er líka orð- inn nógu gamall, fœddur 1852“. Næst kemur að Oddsbæ hinn dugmikli formaður, Björn Ölafsson, bróðir Guð- mundar i Mýrarliolti og Sesselju i Innsta- Vogi. Kona hans var Melkjörína Sigriður, dóttir Jóns Guðlaugssonar frá Götuhúsum. Byggðu þau Oddsbæ upp að nýju. Við lát Björns Ölafssonar, 16 nóvember 1890, orti Jónatan Þorsteinsson síðast á Vatnshömr- um eftir hann, en þar í er þetta erindi: „Nú er fallinn Fróns að velli firna herkinn sjós að verkum, hetju maki hreint einstakur huga sem lét aldrei bugast. Það var Bjöm, sem beitti vömum bezt með drengjum líf svo fengju, þegar IJoffmann heljar offur hlaut að verða á Skekkils-brautum“. Björn var aðeins 33 ára er liann féll frá. Árið 1893 byggði ekkja hans sér lít- inn bæ, Sigurvelli, — rétt fyrir ofan Steinsstaði, — þar verður hennar nánar getið og bama þeirra. Sigríður lét svo sem ekki hugfallast, þótt hún yrði að hrökklast frá Oddsbæ, er hún missti mann sinn, og hefði ekki heilan fót. Sigriður var framúrskarandi dugleg ágætiskona, og vel að sér um saumaskap. Árið 1892 kemur svo Einar Gíslason frá Hliði að Oddsbæ og kona hans Guð- laug Sigurðardóttir frá Jaðri. Þau eru þar þangað til árið 1904, er þau byggðu Ak- urprýði og flytja þangað, en þá fer Odds- bær í eyði. 1 sambandi við Akurprýði verður þeirra hjóna nánar getið. 71. Hjallhús. Heyrt hef ég að þetta hús sé að stofni til fiskhjallur, (með rimlum að neðan en súð að ofan, og þannig byggður af Jóni halta Sigurðssyni í Melshúsum, bróður Ambjargar i Melshúsum, Péturs i Króki og þeirra systkina). Hefur þetta sennilega verið rétt eftir 1870. Að þetta sé rétt, bendir þetta til, úr virðingabók hreppsins 1890: „Lítið timburhús 6x5 al. með hjall- grind og skúr að utan. Lítil eldavél, geymsla upp á loftinu“. Hjall þennan kaupir Jón Helgason (hins lipra frá Neðranesi) og gerir hann íbúðar- hæfan, líklega rétt eftir 1880, því 1882 býr hann þar. Árið áður voru þau á Mel. Kona Jóns Helgasonar, var Halldóra Vig- fúsdóttir bónda á Grund í Skorradal, al- systir Elínar á Jörfa. Eitt bam þeirra hjóna er enn á lífi, Kristín, ekkja Guð- mundar á Sigurðsstöðum. Jón Helgason drukknaði hér á víkinni 30. október 1886. Síðar giftist Halldóra, Sigurði Sigurðssyni frá Sýruparti, og verður þeirra nánar get- ið í sambandi við Sigurðsstaði. Árið 1887 flytur Brandur Brandsson að Hjallinum, frá Bjargarsteini í Stafholts- tungum. Brandur er fæddur í Þingeyrar- sókn, en kona hans Dýrfinna Eggertsdótt- ir í Breiðabólstaðarsókn í Vesturhópi. - — Vegna fátæktar þeirra urðu einhver átök innan hreppsnefndarinnar, um hvort leyfa skyldi þeim búsetu. Hallgrímur hreppstj. dró þeirra taum, og sagði að ekki væri vert að bola þeim í burt, sem vildu bjarga sér sjálfir, því að þeir væru ekki of margir. Hefur Hallgrimur sýnilega haft af því ein- hver kynni eða sögusagnir, sem hann hef- ur metið gildar. Böðvar kaupmaður lánaði þeim 50 kr. til að kaupa hálfan Hjallinn. svo að þeim yi'ði ekki bolað burt. Brandur stækkaði svo húsið og gerði því til góða. Brandur andaðist 27. júli 1903 aðeins /59 ára gamall. Hann var greindur og allvel hagmæltm’. Ekkja hans og börn fluttu héðan búferlum 1905, fyrst til Reykjavík- ur og síðan til Hafnarfjarðar. Börn þeirra voru: 1. Eggert, sem um langa hríð hefur verið fisksali í Reykjavík. Hann mun líka vei'a vel hagmæltur. 2. Kristján, sjómaður í Hafnarfirði. Hann átti (fyrir konu, Guðbjörgu Þorláks- dóttur, (systur Sigríðar, sem seinna átti heima hér i Miðengi). Þau áttu mörg börn. 3. Ragnheiður, sem giftist Guðmundi Helgasyni frá Lambhúsum. Síðan hafa ýmsir eignast Hjallhús, svo sem Sigurður Sigurðsson frá Akrakoti og Sumarlína Sumarliðadóttir frá Krossl. — Sigurður bjó þar i nokkm ár. Hans afdrif urðu hörmuleg, þvi hinn 13. janúar 1917 kafnaði liann þar inni af kolsýrureyk frá lampa eða ofni, ásamt bústýru sinni Jónínu Jónsdóttur. Hann 27 ára að aldri, en hún 23 ára. Einnig Guðrún Sigríður systir Jónínu. Þegar komið var þar að læstum dyrum mn morguninn, var Sig- urður dáinn, en þær báðar með lifsmarki. Jónína mun hafa andast fljótlega. I kirkju- bókinni er talið að Guðrún hafi andast næsta dag, en kunnugt fólk úr næsta húsi, minnir að hún hafi líka andast sama dag og þau Sigmðm og Jónína. Sonur þeirra Sigurðar og Jónínu var hjá afa sínum i Akrakoti er þetta vildi til, mun hann hafa fljótlega átt að flytjast til foreldra sinna. Þessi sonur þeirra heitir Sigmðm, og mun vera kvæntur og búsett- ur á Húsavik. Sumarlína var feikna harðger, dugleg og vinnusöm kona, sem fyrr og seinna vann baki brotnu fyrir börnum sínum,. sem voru mörg. Sumarlína hafði áður búið lengi á Krossi, með Sigríki Eirikssyni. Sigrikur sonur þeirra Sumarlínu og Sig- ríks á Krossi, fetaði þegar á barnsaldn dyggilega í fótspor móðm sinnar um vinnusemi og dugnað, enda var það Sum- arlinu mikill styrkur i baráttunni fyrir hennar stóra barnahóp. Faðir Sigríks á Krossi var Eirikur Pálsson, sem lika bjó lengi á Krossi. Mun hann hafa verið aí Húsafellsætt. Faðir Sumarlinu var Sumar- liði Gunnarsson, bróðir Gunnars kaup- manns Gunnarssonar í Hafnarstræti i Reykjavík og þeirra systkina. Þau munu hafa verið ættuð úr Kjósinni. Eftirtalin börn Sigriks og Sumarlínu lcomust til aldurs: 1. Ingibjörg, giftist Gísla Þórðarsyni, ætt- uðum úr Þykkvabæ. Þau bjuggu í Reykjavík. Þeirra börn: Katrín, gift Guðmundi Eyleifssyni frá Lögbergi og Sigurlína, ógift, á heima í Reykjavik. 2. Finnm, ólst upp í Akrakoti, og dó um tvítugt. 3. Sigríkur, kvæntist Elku Aradóttm frá Sólmundarhöfða, skildu samvistir. Þeirra böm: Bryndís Bára og Hregg- viður Ingi. Síðar átti Sigríkur bam með annarri konu, heitir það Ingibjörg Dröfn. 4. Sigríður, giftist Júliusi Benediktssyni í Ivarhúsum. Þeirra son, Benedikt. 5. Guðrún, giftist Guðmundi Þórðarsyni, AKRANES 113

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.