Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2004, Blaðsíða 8
8 MÁNUDACUR 5. APRÍL 2004
Fréttir DV
Ágúst Magnússon, dæmdur barnaníðingur, þorir ekki út úr fangaklefa sínum af
ótta við að aðrir fangar skaði hann. Nýtur stöðugrar gæslu fangavarðar. Trúnaðar-
maður fanga gagnrýnir að þeir fangar sem eiga á hættu að verða beittir ofbeldi séu
innan um aðra. Segir fanga taka sér refsivald. Trúnaðarráð fundar með Ágústi í dag.
Hópur fanga á Litla-Hrauni bíður færis til að skaða Ágúst Magn-
ússon, dæmdan barnaníðing, sem dvalið hefur í viku í fangelsinu
á Litla-Hrauni. Ágúst, sem dæmdur var í fimm ára fangelsi fyrir að
misnota börn og hafa í fómm sínum barnaklám, hefur ekki farið
út fyrir dyr allan þennan tíma en heldur tíl í klefa sínum.
Það er reyndar ekki einsdæmi að
fangar loki sig af því DV hefur heim-
ildir fyrir því að fangi sem dæmdur
var fyrir grófa nauðgun hafi vart farið
út fyrir dyr á þriðja ár af ótta við að
verða fyrir ofbeldi. Eftir að klefar
fanga eru opnaðir að morgni er
fangavörður stöðugt hjá honum til
þess að gæta hans. Ágúst dvelur í
húsi 4 á gangi la eftir að hann var
fluttur úr húsi 3 vegna þess að talið
var að honum væri ekki vært þar.
Atli Helgason, sem sæti á í trúnað-
arráði fanga, segir að í þá viku sem
Ágúst hefur dvalið á Lida-Hrauni hafi
hann ekki þorað út fyrir dyr en fang-
ar mega í hálfa aðra klukkustund dag
hvem njóta útivistar. „Hann hefur frá
fyrsta degi sætt aðkasti. Hér em fang-
ar sem leyfa sér að taka sér á hendur
vald Guðs og refsa mönnum umffam
það sem dómskerfið hefur ákveðið,"
segir hann.
Atii gagnrýnir harðlega að maður
með ólæknandi barnaþrá skuli ekki
vera vistaður með öðmm hætti en
innan um aðra fanga.
„Mér finnst þetta nánast vera
skandall. Þama er um að ræða mann
sem sérffæðingar segja að sé ólækn-
andi. Það þyrfti í það minnsta að
flokka þannig í fangelsið að þeir sem
eiga á hættu að verða beittir ofbeldi
séu hafðir saman,“ segir Atii.
Hann segir blasa við að þau þrjú
og háift ár sem Ágúst eigi eftir að
dveljast á Litla-Hrauni muni hann
sæta stöðugum niðurlægingum ann-
arra fanga. Hann muni því fiklega
koma úr fangelsi enn hættulegri en
nokkxu sinni fyrr.
„Hann gæti þess vegna komið aftur
út í samfélagið ofbeldisfullur, beiskur
og hættulegur," segir Atli og bendir á
að ætlunin sé að betra menn með
fangelsun þeirra. Hann segir að trún-
aðarráð fanga muni hitta Ágúst í dag.
„Við viljum ræða við hann og reyna að
stuðla að öryggi hans,“ segir Atli.
„Hann gætíþess
vegna komið aftur út í
samfélagið ofbeldis-
fullur, beiskurog
hættulegur."
Kristján Stefánsson, forstöðumað-
ur á Iitía-Hrauni, vildi ekki tjá sig um
mál Ágústs Magnússonar. Hann
sagðist bundinn þagnareiði. Hvað
flokkun fanga varðar sagði Kristján
slíkt ekki tíðkast í íslenskum fangels-
um. „Við höfum aldrei flokkað menn
sem afþlána dóma hér eftir glæpum."
Kristján segir vissulega geta kastast í
kekki milli manna og slík mál séu
leyst jafnharðan og þau komi upp.
rt@dv.is, aþ@dv.is
KB banki telur hagstætt að kaupa íbúð áður en lánafyrirkomulagið breytist
lífvÖPQ
f
a
vextir á húsnæðislánum til almenn-
ings munu lækka um 0,8% samhliða
því að yfirverðið hverfur. Lægri
vaxtakostnaður mun hins vegar ekki
bæta upp yfirverðið. Ábatinn vegna
lægri vaxta kemur fram á löngum
tíma, jafnvel 10 til 20 árum - meðan
lánstíminn varir.
í krónum talið þýðir þetta að
íbúðakaupandi sem fær lán sam-
kvæmt nýja íbúðalánakerfinu á 4,3%
raunvöxtum borgar 57 þúsund
Húsnæðismál íbúðarkaupandi sem færlán
samkvæmt nýja Ibúðarlánakerfinu á 4,3%
raunvöxtum borgar 57 þúsund krónum
minna í vexti afláni upp á 9,2 milljónir á ári
en efhann mundi taka húsbréfá 5,1%.
krónum minna í vexti af láni upp á
9,2 milljónir á ári en ef hann mundi
taka húsbréf á 5,1%. íbúðarkaup-
andi þarf hins vegar að bíða í um 14
ár miðað við núverandi kjör á mark-
aði til að vaxtasparnaðurinn jafn-
gildi yfirverði húsbréfa.
,Drífa sig norður. Ég ætla að vera þar um páskana. Ég er að fara með fjölskylduna til Hrís-
eyjar. Annars get ég eiginlega ekki sagt meira án þess að fara út í smáatriði," segir Hall-
grímur Helgason, sem liggur á að drífa sig norður. Hann er annars mjög ánægður með
leikgerð Stúdentaieikhússins á 101 Reykjavíksem var frumsýnt á föstudaginn.
Föngum
sleppt úr
Guantanamo
Pentagon í Bandaríkjun-
um lýsti því yfir að þeir
hefðu sleppt 15 manns úr
haldi í Guantanamo-fang-
abúðunum á Kúbu en þeir
hafa verið í haldi frá því
haustið 2001 þegar Banda-
ríkjamenn réðust á
Afganistan. Áður hafa 119
manns verið fluttir úr búð-
unum með það fyrir augum
að sleppa þeim lausum og
12 hafa verið fluttir til
fangavistar annars staðar,
flestir til Rússlands. Enn
eru 595 manns í haldi í
Guantanamo og hafa
mannréttindasamtök gagn-
rýnt það þar sem engar
kærur hafa verið gefnar út.
Tyrkir reiðir
Áströlum
Tyrkir gagnrýna
stjórnvöld í Ástralíu og á
Nýja-Sjálandi harðlega
fyrir að vara þegna sína
við að ferðast tfl lands-
ins. Á fimmtudag lýstu
yfirvöld í Ástralíu því yfir
að andfætíingar sem
ferðast til Tyrklands
gætu orðið skotmörk
hryðjuverkamanna, án
þess að hafa neina
ákveðna hættu í huga.
ÞúsundirÁstrala og
Nýsjálendinga ferðast til
Tyrídands í apríl ár hvert
tU að minnast orustunn-
ar við GaUipoli, sem er
mannskæðasta orusta
sem þjóðirnar hafa tekið
þátt í.
Öskurkeppni
Ariels
Sharon
Ríkisstjórnarfundur í
ísrael varð að öskurkeppni
á milli Ariels
Sharon for-
sætisráð-
herra og
harðlínu-
manna sem
eru á móti
áformum
hans um að draga sig til-
baka frá Gaza-svæðinu og
hlutum Vesturbakkans.
Áætlun Sharons er til þess
gerð að draga úr átökum á
miUi ísralea og Palestínu-
manna þar sem ekkert
gengur við að gera friðar-
samninga. Áætlunin nýtur
fylgis meðal ísraelsmanna
og ætlar Sharon að fara til
Washington í næstu viku til
að fá samþykki Bush.
Sharon sagði ráðherrum
sínum að enginn væri
skyldur tU að sitja í rfkis-
stjórn sem vUdi það ekki.
Lla-Hrauni
Að mati Greiningardeildar KB
banka er erfitt að færa rök fyrir því
að fyrirhuguö breyting á lánafyrir-
komulagi Ibúðaiánasjóðs geti verið
tUefni til þess að bíða með kaup á
húsnæði. jafnvel er hægt að færa rök
fyrir því að það sé hagstæðara að
kaupa áður en ofangreind breyting á
sér stað. Miðað við ávöxtunarkröfu
húsbréfa í dag er yfirverð á húsbréf-
um um 6,7%. Þetta þýðir að há-
markshúsbréfalán upp á 9,2 miUjón-
Hvað liggur á?
ir er nú 9,81 m.kr. virði og íbúða-
kaupandi hagnast um 610 þúsund
krónur vegna yfirverðsins sem hann
fær á húsbréfin.
Miðað við núverandi ávöxtunar-
kröfu 40 ára húsnæðisbréfa á
skuldabréfamarkaði sem er 3,8% er
lfldegt að vextir af nýju íbúðabréfun-
um verði um 4,3%. Þetta er að því
gefnu að 0,35% álag fari í rekstur
Ibúðalánasjóðs og 0,15% álag verði
vegna aukinnar áhættu við rekstur
íbúðalánasjóðs. Með öðrum orðum;
Ekki klókt að bíða með íbúðarkaup