Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2004, Qupperneq 3
DV Fyrst og fremst
FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 3
Gott aö elga tvífara
á somardagian fyrsta
„Þetta er alveg stórkostlegur
dagur," segir Þórólfur Árnason,
borgarstjóri en mikið var um
dýrðir í miðbæ Reykjavíkur í gær.
Leiktæki fyrir krakkana á hverju
horni, skrúðgöngur og víðavangs-
hlaup. Meira að segja sólin tók þátt
í hátíðarhöldunum og lék við hvem
sinn fingur - langt fram eftir degi.
Hátíðarhöld voru um allt land í gær Þórólf-
urArnason borgarstjóri átti góðan dag i gær
með fjölskyldu og vinum.
Voru flestir sammála um að nú væri sumarið loksins hafið.
„Já, ég er ennþá með sólgleraugun á mér," segir Þórólfur að-
spurður um þetta góða veður. „Við stoppuðum hérna á Austur-
velli og fengum okkur hressingu en það hefur verið mikið að
gera hjá mér í dag - í rauninni þyrfti maður að eiga tvífara á
svona dögum."
Hátíðarhöldin fóru vel fram og hvarvetna mátti sjá fólk
með ís og blöðrur. Ekki vantaði að krakkarnir létu mála á and-
litið íslenska fánann; eitthvað sem er orðin hefð á sumardag-
inn fyrsta. Að lokum vildi Þórólfur koma sumaróskum til
Reykvíkinga „og bara allra landsmanna - nær og fjær,“ bætir
hann við og heldur áfram röltinu um miðbæ Reykjavíkur - í
sumri og sól.
Spurning dagsins
Ersumarið komið?
„Dagatalið segir að það sé komið sumar og það er eins með
það og margt annað, þetta hefst allt innra með
manninum. Eflitið er til þess þá er sumarið komið.
Manneskjan er misjöfn eins og hún er mörg en það
er til fólk sem lifir við eilíft haust innra með sér. Hjá
þannig fólki er aldrei sumar og aldrei vor. í minn-
ingunni hefur sumardagurinn fyrsti alltafverið góð-
ur, þeir slæmu hafa allir horfið úr minningunni."
Gunnar Eyjólfsson leikari og
fyrrverandi skátahöfðingi fsiands.
„Nei, sumarið
er ekki komið
en það nálgast
hratt. í mínum
huga er ekki
komið sumar
fyrr en allt er
orðið laufgað. Ég á allt eins von
á að það verði komið um miðj-
an maí sem er í fyrra lagi en ég
hef trú á að það verði algjör
gróðursprening fram yfir helgi
og það grænki hratt."
Páll Bergþórsson fyrrum
veðurstofustjóri.
Já, ég held að
sumarið sé
komið en það
er ekki endi-
lega afþví
sumardagur-
inn fyrsti var í
gær. Ég held samt að sumarið sé
komið því það er svo gott veður.
Einar Marteinsson nemandi í
fsaksskóla.
Sumarið fer al-
veg að koma
því bráðum er
skólinn búinn.
Skólinn er
aldrei á sumr-
in því þá fara allir krakkarnir í
frí. Það fer líka að koma því það
er svo gaman að leika sér úti. Ég
er búin að fara í sólbað úti og
það gerir maður bara á sumrin.
Sara Líf Guðjónsdóttir nem-
andi í fsaksskóla.
Ég er ekki í vafa
sé komið, bú-
inn að bretta
upp ermarnar
og allt farið að
grænka. Sum-
arið er tví-
mælalaust að
bresta á.
Ragnar Sigurðsson smiður.
Sumardagurinn fyrsti var í gær og samkvæmt því er sumarið
komið. (reynd er ekki á vtsan að róa með hvenær sumarið lætur á
sér kræla á íslandi.
39 f.Kr.-14 e.Kr.
Júh'a var algengt nafn í fjöl
skyldu Júlíusar Sesars og hét
dóttir hans t.d. Júlía. Sú gekk
að eiga fjandvin hans Pompei-
us mikla þegar þeir félagar
voru einu sinni sem oftar í
bandalagi en það var fyrir bí eft-
ir að Júlía dó af bamsförum.
Frægasta Júlían var hins vegar
einkadóttir Ágústusar keisara. Hún
ólst upp hjá föður sínum og Livíu
stjúpmóður
sinni og þótti
snemma óstýri-
lát nokkuð. Til að reyna að hafa hem-
il á henni lét faðir hans hana giftast
Marcellusi noldcrum er hún var 25
ára en hann dó skömmu síðar.
Þá gifti Ágústus Júlíu gömlum
Sú gamla
Frelsi er ekki þess virði
að öðlast það,
efþað felur
ekkiísér
frelsitilað
gera mistök.
Gandhi.
vopnabróður smum, Marcusi
Agrippa, og hún ól honum
fimm börn áður en hann dó.
Voru meðal þeirra tveir piltar
sem Ágústus batt miklar vonir
við að myndu reynast verðugir
arftakar keisaradæmisins, þeir
Gaius Sesar og Lucius Sesar, en
báðir létust ungir að árum. Þriðji
sonurinn Agrippa reyndist hins vegar
illfygli hið mesta og var sendur í út-
legð á smáeyju eina fyrir ósiðleg at-
hæfi alls konar.
Eftir að Agrippa eldri dó neyddi
Ágústus Júlíu til að giftast kjörsyni
sínu, Tíberíusi, sem þá var orðið ljóst
að yrði arftaki hans á keisarastóli.
Hún bar honum eitt bam en það dó í
frumbernsku. Tíberíus lagði hatur á
Júlíu, enda hafði hann verið neyddur
til að skilja við konu sem hann
elskaði til að kvænast Júlíu. Að lokum
fór hann í útlegð til Ródos frekar en
búa með henni.
Skömmu síðar varð uppskátt
um þátttöku Júh'u í samsæri gegn
Ágústusi föður sínum og var hún þá
sjálf send í útlegð á aðra smáeyju
þar sem hún átti ömurlega vist og
dó sama ár og Ágústus geispaði
sjálfur golunni.
Kvikmyndaleikstjórarnir Asdís Thoroddsen og Guðný Halldórsdóttir eru systrabörn.
Guðný er dóttir Auðar Sveinsdóttur Laxness og Ásdís er dóttir Ásdisar Sveinsdóttur
Thoroddsen, sem er látin. Þær frænkur báðar eiga að baki langan feril í kvikmynda-
gerð sem of langt mál væri að telja upp hér. Alsystkini Ásdísar eru Halldóra mynd-
listarmaður, Guðbjörg leikkona og Jón Sigurður. Hálfbróðir Ásdísar var Dagur Sig-
urðarsson, Ijóðskáld og myndlistarmaður, sem lést 1994. Guðný á eina alsystur, Sig-
ríði, og hálfsystkini samfeðra; Éinar Laxness og Maríu Halldórsdóttur.