Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2004, Blaðsíða 13
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 23. APRlL 2004 13
ísland engin
skattaparadís
Efasemdir um sterka
stöðu íslands í skattamál-
um fyrirtækja komu fram á
morgunverðarfundi Versl-
unarráðs. í erindi Bjarn-
ffeðs Ólafssonar lögmanns
kom fram að jaftivel þótt
tekjuskattur fyrirtækja
hefði verið lækkaður niður í
18%, og sá skattur sé hærri
hjá flestum öðrum ríkjum,
þá geri ýmis konar tak-
mörkuð skattskylda það að
verkum að heildarskatt-
byrði erlendra fyrirtækja
hér á landi er jafhmikil og
oft hærri en í ríkjunum sem
við helst keppum við.
Oddviti
treystir sér
ekki áfram
Málfríður Vilbergs-
dóttir frá Hríshóli, odd-
viti hreppsnefndar Reyk-
hólahrepps, hefur óskað
lausnar frá störfum í eitt
ár af persónulegum
ástæðum. Bókað er hjá
hreppsnefnd að hún
„..treysti sér ekki til að
gegna þeirri ábyrgð sem
felst í þeim störfum að
starfa í hreppsnefnd.
Samþykkt."
NordicCool
opnaríWas-
mngton
Opnuð hefur verið sýn-
ing í hstasafninu National
Museum of Women in the
Arts (NMWA) íWashington
með verkum 159 norrænna
kvenhönnuða, þar af 32 ís-
lenskra. Sendi-
ráð íslands í
Washington,
ásamt hinum
norrænu
sendiráðunum,
að skipulagningu sýningar-
innar í samstarfi við NMWA
sem sá um val á verkum.
Sýningin ber yfirskriftina
Nordic Cool: Hot Women
Designers en um er að
ræða stærsta menningar-
verkefhi sendiráðs íslands á
þessu ári.
Brotist inn á
bæjarskrif-
stofu
Smávaxinn maður
braust inn á bæjarskrifstofu
Vestmannaeyjabæjar aðfar-
anótt miðvikudags. Far-
tölvu Andrésar Sigurvins-
sonar, framkvæmdarstjóra
fræðslu- og menningar-
sviðs Vestmannaeyjabæjar,
var stolið í innbrotinu og er
lögreglan að leita að inn-
brotsþjófnum. „Þetta er
ekkert Watergate, býst ég
við,“ segir Andrés, sem ráð-
inn var af bæjarstjórn V-
lista og Framsóknarflokks.
„Því miður eigum við fíkla í
Eyjum, menn og konur sem
eiga erfitt út af áfengi og
dópi."
Hosni Mubarak harðorður
Hatur án Msmis
„Arabar í Mið-Austurlöndum
hata Bandaríkin heitar nú en
nokkru sinni,, segir Hosni Mubarak
Egyptalandsforseti í nýlegu viðtali
við franska dagblaðið Le Monde.
Ástæðuna segir hann vera innrásina
í frak, aftökur ísraela á Shaikh
Ahmad Yassin og Abd Al-Aziz al-
Rantisi, leiðtogum Hamas samtak-
anna og skilyrðislausan stuðning
Bandaríkjastórnar við fsrael. „Áður
töldu sumir Arabar að Bandaríkja-
menn væru að hjálpa þeim en eftir
innrásina í frak hefur gosið upp hat-
ur án fordæmis og Bandaríkjamenn
vita af því,“ segir Mubarak. „Fólki er
misboðið þegar það sér hvernig
Sharon, forsætisráðherra fsraels
,hagar sér gagnvart Palestínumönn-
um og Bandaríkjastjórn aðhefst
ekkert." Þá segir Mubarak að aftaka
al-Rantisis eigi eftir að hafa ófyrir-
sjáanlegar afleiðingar og óstöðug-
leikinn á Gaza-svæðinu og í írak
þjóni hvorki hagsmunum fsraels né
Bandaríkjanna. „Örvæntingin og
óréttíætið verður ekki eingöngu
bundið við okkar heimshluta, hags-
munir Bandríkjanna og ísraela eru
ekki eingöngu í hættu hér, heldur
einnig um víða veröld.“ Aðspurður
um áform ísraela um að draga sig
frá Gaza-svæðinu segist Mubarak
taka vel í öll áform sem Palestínu-
menn hafa samþykkt og séu sam-
kvæmt friðarvegvísi Bandaríkjanna,
Evrópusambandsins, Sameinuðu
þjóðanna og Rússlands.
Hosni Mubarak Egyptalandsforseti
Tryggðu þér bestu kjörin og bókaðu strax á netinu!
Færdþú
MasterCard
ferðaáiísun?
VR orlofsávísun
i Munið ferða-
* ávísunina
Verðdæmi í 1 viku
á Helios 5. júlí
Verðdæmi í 1 viku
á Cretan Dream 12. júlí
i*
kr.
á mann m.v. tvo fullorðna og 2 börn, 2ja til 11 ára,
í íbúð með 1 svefnherbergi á Hellos.
58.733; 70.422
á mann m.v. tvo fullorðna í stúdfól.
Reiknaðu ferðakostnaðinn og bókaðu á www.urvalutsyn.is
Allt verð er netverð. Bóka þarf og greiða staðfestingargjald,
eða fullgreiða ferð á netinu. Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu,
greiðist bókunar- og þjónustugjald, sem er 2000 kr. á mann.
♦Innifalið: Flug, flugvallarskattar, ferðir til og frá flugvelli erlendis
og íslensk fararstjórn.
www.urvalutsyn.is
Lagmula 4: 585 4000 • Hhðasmára: 585 4100 • Keflavik: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666
Paradís Eyjahafsins
Strendurnar á Krít eru margverðlaunaðar fyrir hreinleika og draumblár
sjórinn er einstaklega tær. Mannlífið er heillandi og ósvikið í litlum
byggðakjörnum með fram strandlengjunni. Þú nýtur lífsins á veitingastöðum
við sjávarsíðuna þar sem í boði er nýveiddur fiskur, ferskt grænmeti,
Ijúffengt kjöt og heimalagað vín. Þarf að segja meira...
Sættu þig aðeins við það
sem er betra!