Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2004, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004
Fréttir DV
Gjöf Kína til
Kóreu sprakk
Óvíst er um afdrif þús-
unda manna eftir að tvær
flutningalestir með eldfim
efni skullu saman í gær.
Samkvæmt fréttum frá
Norður-Kóreu í gærkvöld
var útlit fyrir að hátt í þrjú
þúsund manns hefðu farist
eða slasast í gífurlegri
sprengingu sem varð við
áreksturinn. Áreksturinn
varð á lestarstöðinni
Ryongchon, um 50 kíló-
metra suður af landamær-
unum við Kína. Kraftur
sprengingarinnar var slíkur
að brak úr lestunum flaug
hátt upp í loft og lenti í
bænum Sinuju, sem er við
kínversku landamærin.
Svæðið í kringum
Ryongchon er í rúst.
Nokkrum stundum fyrir
sprenginguna ferðaðist Kim
Jong II, leiðtogi Norður-
Kóreu, um lestarstöðina á
leið heim frá Kína. Hluti
eldflma farmsins var gjöf frá
Kínverjum til Norður-Kóreu
vegna heimsóknar Kims
Jong II. Fréttir frá atburðin-
um bárust fyrst og ffemst
frá Suður-Kóreu í gærkvöld,
en ástæða þess var að yfir-
völd í Norður-Kóreu lokuðu
öllum símalínum til út-
landa, að því er virtist til að
hindra fréttaflutning.
Sumardagurinn
fyrsti nœr
sumrinu?
Vaigerður Matthíasdóttir
arkltekt.
J raunirwi væri eðlilegast að
flytja sumardaginn fyrsta
þannig að það snjóaði ekki
alltafá okkurog dagurinn
virki eins og tímaskekkja. En
það er eitthvað ákaflega
sjarmerandi við þennan dag
vegna þess að mér finnst
hann lýsa svo vel bjartsýni
þjóöarinnar," segir Valgerður
Matthíasdóttir.
Hann segir / Hún segir
„Þó ekki væri nema aftilltis-
semi við skátahreyfinguna þá
væri það fallega gert að færa
sumardaginn fyrsta þar til það
er orðið hlýrra í veöri. Það er
einhver sú sorlegasta sjón sem
sést - og fær mann kannski
ekki til að horfa vonbjörtum
augum á sumarið - að sjá
skátana standa krókloppna úr
kulda, haldandi á fánum, til
þess að viðhalda bjartsýni ís-
lenskrar þjóðar," segir Viðar
Eggertsson.
Viðar Eggertsson
leikstjóri.
Þungir dómar yfir Hells Angels-mönnum í Noregi fyrir að smygla hundruðum
kílóa af hassi frá Danmörku. Einn hinna dæmdu er foringi Hells Angels í Noregi
sem fékk níu ara fangelsi. Hann var á íslandi að reyna að efla tengslin við íslend-
inga sem vildu vera í samstarfi við hann um skipulagða glæpastarfsemi að sögn
lögreglunnar. —
Hells Angels Islands-
vinur dæmdup í Noregi
Leif Ivar Kristiansen, 44 ára gamall foringi Hells Angels í Noregi,
hlaut níu ára fangelsisdóm fyrir að smygla 350 kílóum af hassi
frá Danmörku.
Níu vítisenglar voru £ fyrradag
dæmdir í undirrétti í Noregi fyrir að
smygla á bilinu 150 til 450 kílóum af
hassi inn í Noreg. Vítisenglamir voru
dæmdir í samtals 66 ára fangelsi.
Þyngsta dóminn hlaut danskur vítis-
engill, tólf og hálft ár. Tveir Þjóðverj-
ar voru einnig dæmdir. Lögmaður
Kristiansens segir hann hafa verið
dæmdan fyrir mistök og að hann
njóti minni réttarvemdar en almenn-
ir norskir borgarar þar sem hann er
félagi í Hells Angels.
ísland hluti af glæpasvæðinu
Mennimir m'u vom dæmdir fyrir
þátttöku í skipulagðri glæpastarf-
semi. Sú glæpastarfsemi hefúr teygt
sig til íslands. DV hefur heimildir fyr-
ir því að í hópi þeirra dæmdu séu
menn sem hafi komið á vegum Hells
Angels til íslands. Það staðfesti sér-
fræðingur hjá ríkislögreglustjóra sem
hefur tekið þátt í samstarfi norrænna
lögregluþjóna í baráttunni við glæpa-
starfsemi vítisengla. Lögregla á Norð-
urlöndunum fylgist náið með ferðum
vítisengla og heldur skrá yfir þá sem
em taldir virkir í glæpaverkum
þeirra. Lögregla hafði afskipti af
Kristiansen þegar hann kom hingað
en hindraði ekki för hans þar sem
þetta var áður en norrænir ríkislög-
reglustjórar hófu samstarf um að
stöðva glæpastarfsemi Hells Angels.
Heimildir segja að Kristiansen hefði
verið stöðvaður ef hann hefði reynt
að koma aftur til íslands.
Fylgst með Kristiansen
Jón H. Snorrason saksóknari hjá
ríkislögreglustjóra staðfestir að Leif
Ivar Kristiansen hafi komið til ís-
lands. „Kristiansen kom hingað til
lands og það var fylgst með honum,"
segir Jón. „Þessir klúbbar ferðast ein-
kennisklæddir og sækjast eftir því að
Úr Leifsstöð Mikil ólæti urðu þegarstór
hópur vítisengla sóttist eftir inngöngu í land-
ið i vetur.
ná yfirráðum
yfir svæðum
til að stunda
þar smygl á
eiturlyfjum
og aðra
skipulagða
glæpastarf-
semi. Við höf-
um enga
ástæðu til að jón u Snorrason Segir
ætla annað norska vítisengla-foringj-
en að þeir ann hafa komið hingað til
hafi komið lands i vafasömúm til-
Iiingað til að 9°n9'-
reyna að
byggja upp starfsemi og hafa áhrif á
þá sem vilja vera í samstarfi við þá
um eiturlyfjasmygl og annað glæpa-
starf,“ segir hann.
„Þessi dómur staðfestir að að-
gerðir okkar gegn Hells Angels hafi
Leif Ivar Kristiansen Foringi norskra vitisengia dæmduriniu ára fangetsi. Kom hingað til að
liðka fyrir samstarfi um giæpastarfsemi. Látið okkur vita efþið hafið orðið vör við ferðir þessa
manns hérá landi.
verið réttlætanlegar," segir Jóhann R.
Benediktsson sýslumaður á Keflavík-
urflugvelli. „Við fögnum þessari nið-
urstöðu og sjáum ekki ffarn á að
þurfa að vísa þessum mönnum frá
landi á næstunni þar sem þeir verða
geymdir bakvið lás og slá.“
kgb@dv.is
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfés eyddi milljónum
Lögreglan varar við svikamyllum
„Okkar verkefni er að vara fólk
við því að falla fyrir svona svika-
myllum," segir Högni Einarsson hjá
ríkislögreglustjóra. Jón Rúnar
Hilmarsson, framkvæmdastjóri
Samfés, stal á dögunum fimm millj-
ónum af samtökunum. Peninginn
notaði Jón í viðskipti sín við níger-
íska kaupsýslumenn. Sjálfur segist
hann vera fórnarlamb afrískrar
svikamyllu.
„Þessir menn reyna að ná per-
sónulegu sambandi við þann sem
þeir svíkja," segir Högni. „Þeir telja
þér trú um að stóra summan sé
alltaf hinum megin við hornið og
þannig ertu dreginn á asnaeyrun-
um.“
Högni segir svikamyllur sem
þessar ekki nýjar af nálinni. Ríkis-
lögreglustjóri safni að sér þessum
bréfiun en réttarstaða þeirra sem
lenda í þessum svikum sé erfið.
„Við getum ekki kært þessa menn
því þeir stunda svik sín einhvers
staðar úti í heimi,“ segir Högni. „Við
tökum hins vegar við ábendingum
og getum komið þeim áfram til við-
komandi lögregluyfirvalda."
Högni segir netið hafa stóraukið
svik af þessu tagi. Ódýrt sé að senda
póst víðs vegar um heiminn og alltaf
séu einhverjir sem láti gabbast. „Það
nýjasta £ þessu eru svokölluð „lottó-
svik“. Þar er fólki talið trú um að það
eigi von á stórum vinning en þurfi
að greiða ákveðnar upphæðir til að
leysa hann út,“ segir Högni og bætir
við: „Það þarf svo engan að undra að
stóri vinningurinn kemur aldrei."
Högni segist vita um slatta af
fólki sem hefur tapað á svikamýll-
um sem þessum en engan sem hafi
grætt á þeim. „Þetta er bara tapað
Jón Rúnar Hilmarsson Stal fimm milljón-
um frá Samfés og segist hafa misst þær i
afriska svikamyttu.
fé,“ segir Högni. Hann segir það
hlutverk þeirra hjá ríkislögreglu-
stjóra að vara fólk við svikamyllum
sem þessum - ganga þurfi út frá því
að það sé ekkert fundið fé á netinu.
Það sé hinn harði sannleikur.
simon@dv.is
Blaðamenn
íslands
í fyrradag voru blaðamanna-
verðlaun íslands afhent í fyrsta
sinn. Mikið var um dýrðir á Hótel
Borg þar sem afhendingin fór
fram. Reynir Traustason, frétta-
stjóri DV, og Brynhildur Ólafs-
dóttir, Stöð 2, hlutu bæði verð-
laun. Reynir fyrir bestu umfjöllun
ársins og Brynhildur fyrir rann-
sóknarblaðamennsku ársins.
Blaðamaður ársins var hins vegar
Agnes Bragadóttir fyrir „afhjúp-
andi greinaflokk sinn - Baráttan
um íslandsbanka." Mál manna
var að kvöldið hefði Verið vel
heppnað og að verðlaunin séu
komin til að vera.
i