Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2004, Qupperneq 31
DV Síöasten ekkisíst
FÖSTUDAGUR23. APRÍL 2004 31
----------------------------------------------- 4
Frumvarp hins brennandi anda
Nú bendir allt til þess að Davíð
ætli að vera búinn að setja lög um
fjölmiðla áður en hann fer úr forsæt-
isráðuneytinu. Þetta er nokkuð
óvænt atburðarás. Enn veit enginn
hvað stendur í boðuðu fjölmiðla-
frumvarpi Davíðs; menn hafa ekki
einu sinni fengið að sjá skýrsluna
sem var undanfari þess. Tíminn er
naumur. Þinginu er ekki ætlað að
sitja nema ffam yfir fyrstu vikuna í
maí; það þarf að leita afbrigða til að
koma málinu svona seint á dagskrá.
Varla er þetta svo mikið þjóðþrifamál
að þingtíminn verði lengdur ffam á
sumar út af því?
Skrítin framvinda
Þetta er skrítin ffamvinda. Það er
skipuð nefnd. í henni sitja sérstakir
trúnaðarmenn ríkisstjórnarinnar,
menn sem áður hafa reynst trausts-
ins verðir. Þeir fá að sönnu ekki lang-
an tíma til að skoða þessi flóknu mál
- aðeins um átta vikur. Enda fer svo
að störf nefndarinnar dragast um
mánuð, fram yfír 1. apríl. Þá er til-
kynnt að skýrslan sé á leiðinni; ég átti
samtal við einn ne&idarmanna um
það leyti og hann taldi að ég myndi
geta rætt efrú hennar í síðasta þætt-
inum mínum fyrir páska. Síðan eru
liðnar þrjár vikur - það var fyrst núna
á þriðjudaginn að skýrslan var kynnt
fýrir þorra ráðherranna í ríkisstjóm-
inni.
Og frumvarp lagt ffam um leið,
öllum á óvart.
Hvaða pukur er þetta?
Hvaða pukur er þetta með eina
litla skýrslu sem fjallar varla um neitt
sem telst vera ríkisleyndarmál? Er
það til að hægt sé að krukka í plaggið
eftir á - voru skýrslubeiðendur svona
óánægðir með efni þess? Eða var
kannski talið heppilegra að láta efni
skýrslunnar leka út smátt og smátt,
Kjallari
„Siguröur Kári, Birgir og Guðiaugur Þór geta varla verið
áhugasamir um hugmyndir um að efla RÚV og þrengja að
einkaframtakinu ..."
Egill Helgason
skrifar um
fjölmiðlafrumvarp
Davíðs.
Liggur nokkuð að baki þessu annað
en sú hugsun að ríkið sé í rauninni
heppilegri eigandi fjölmiðils en
einkaaðilar?
svona til að búa jarðveginn undir
ffumvarpið sem er smellt fram í kjöl-
farið?
Hver veit? Lekarnir hafa altént
verið talsverðir; fýrst í Ríkisútvarpinu
stuttu eftir að rætt var um að skýrslan
væri tilbúin og svo nokkuð ítarlegar í
Viðskiptablaðinu fýrir síðustu helgi.
Menn hefur greint á um hvaða tíð-
indum niðurstöðurnar sæti, sumir
segja að þær séu hvorki fugl né fiskur
- en það er alls ekki víst.
Manni skilst - án þess að hafa les-
ið nema lekana úr skýrslunni - að þar
sé lagt til að fjölmiðlarnir verði í
auknum mæli settir undir sam-
keppnislög, að beita megi veitingu
útvarpsleyfa til að hafa áhrif á eignar-
haldið og að efla skuli Ríkisútvarpið
til að tryggja „fjölbreytni" á fjölmiðla-
markaði.
og Sýn renna út 2007 og 2009. Það er
lfka boðað að hefja eigi stafræna
væðingu sjónvarps á íslandi - og þá
ættu sjónvarpsleyfi að verða að
mestu úrelt.
Svo er hætt við að mörgum þyki
það hjákátleg rök að efling Ríkisút-
varpsins, stærsta fjölmiðlafý'rirtækis
landsins, verði til að auka fjölbreytni.
Þetta getur varla gerst nema á kostn-
að fjölmiðlanna sem eru í einkaeigu
og hljóta að teljast skelfmg veik-
burða, að minnsta kosti ef miðað er
við hræringar undanfarinna ára.
Aðrir stjórnmálamenn að
mestu leyti áhorfendur
I þessum hugmyndum felast ein-
hverjar skorður. En við komumst
samt ekki til botns í því - að minnsta
kosti ekki með beinum og skjótum
hætti - sem Davíð Oddsson hefur
talið vera höfuðmeinsemdina í fjöl-
miðlalífinu hér. Það er spumingin
um hvers konar fjármagn megi koma
inn í fjölmiðlana, fyrirtækjafjölmiðl-
ana sem Davíð hefur orðið tíðrætt
um, og spurningin um hvernig fjöl-
miðlafyrirtæki skuli vera samansett -
má til dæmis sami aðillinn eiga dag-
blað og sjónvarpsstöð?
Þegar þetta er skrifað árla á sumar-
daginn fyrsta veit maður enn ekki ná-
kvæmlega hvað felst í frumvarpinu
hans Davíðs. Fréttamenn Stöðvar 2
telj a sig hafa heimildir fyrir því að í því
sé vaðið beint í Norðurljós. Alla vega
bíður maður í ofvæni eftir því hvort
frumvarpið hefur einhver svör við
þessum spumingum hér að ofan. Og
hvort svörin em nógu kröftug til að
allt logi í deilum næstu vikum-
ar.
Annars ber
þetta brátt að -
maður var
jafnvel farinn
að halda að
málið hefði
gufað upp.
En það
lýsir lík-
lega van-
mati á
einurð
forsæt-
isráð-
herr-
„Efling Ríkisútvarps-
ins"
Ekkert af þessu,
getur talist vera ,
skjótvirk leið til að ,
koma böndum i
yfir hina meintu I
óæskilegu eig-1
endur fjölmiðla. [
Þótt samkeppn-,
islögum verði,
breytt er varla j
hægt að láta,
þau gilda aftur ,
í tímann. Leyfi j
Norðurljósa til I
að reka Stöð 21
ans. Það er hann sem brennur í and-
anum vegna málsins og knýr það
áfram. Aðrir stjórnmálamenn hafa að
miklu leyti verið áhorfendur - og
flestir gætt þess að láta ekki í ljósi
sterkar skoðanir um það.
Vinstri grænir alltaf tilkippi-
legir
Að minnsta kosti em svo margir
tvístígandi að maður hlýtur að spyrja
hvemig málinu reiðir af í þinginu.
Ekki er alltaf gott að vita hvað Fram-
sóknarflokkurinn er að hugsa - hami
er foringjahollur og hugsjónalítill - en
það er ljóst að þar ríkir ekki almenn
hrifning. Vegna ráðherraskiptanna í
haust hefur Davíð hins vegar ansi gott
tak á Framsókn. Ungu tyrkirnir í Sjálf-
stæðisflokknum, Sigurður Kári, Birgir
og Guðlaugur Þór geta varla verið
áhugasamir um hugmyndir um að
efla RÚV og þrengja að einkaffamtak-
inu - hvað þá Pétur Blöndal?
Það er því spuming hvort svona
frumvarp hefur yfirleitt meirihluta í
þinginu - nema þá að úr óvæntri átt
berist atkvæði, til dæmis frá Vrnstri
grænum, sem alltaf em tilkippilegir
að auka hlut ríkisvaldsins.
Til að bjarga andliti Davíðs
Ég heyri Össur segja í útvarpinu
að Davíð finnist hann þurfa að leggja
fram ffumvarp um samþjöppun á
fjölmiðlamarkaði til að bjarga andlit-
inu. Hann sé búinn að láta svo mörg
stór orð falla. Má vera rétt. En maður
hlýtur þá að ætla að Davíð reyni að
keyra frumvarpið sitt í gegn af hörku
- hitt gæti verið neyðarlegt fyrir hann
að horfa á málið renna út í sandinn £
þinglok, allt liðið tvístrast burt £ sum-
arfrí', vitandi að hann hverfur sjálfur
úr forsætisráðuneytinu eftir fjóra og
hálfan mánuð og að þá verður þetta
mestanpart komið úr höndunum á
honum.
• íslandsmótið í knattspymu hefst £
næsta mánuði og em sparkáhuga-
menn að vonum orðnir spenntir.
Þessa dagana leika liðin hvern æf-
ingaleikinn á fætur öðrum og til að
mynda fara íslandsmeistarar KR f
heimsókn til Færeyja um helgina.
Þar leika þeir við HB í Atlantic-bik-
amnm sem er einskonar meistarar
meistaranna hjá okkur og frændum
okkar. Þetta þýðir það að KR-útvarp-
ið hefur útsendingar um helgina á
bylgjulengdinni 98,3 en flestir em
sammála um að það er jafiian mikið
ævintýri að hlusta á það. Meðal
þeirra sem fastagestir em við lýsing-
amar em Haukur Holm, Egill Helga-
son, Kristinn Kjæmested, Bogi
Agústsson, Þorsteinn Jónsson, Heim-
ir Guðjónsson, Ami Snævarr og
Þröstur Emilsson sem mun vera for-
maður útvarpsráðs eins og
það heitir. Þulimir hafa
það orð á sér að vera með
eindæmum hressir og
hýrir á brá við lýsing-
amar og þvf við
hæfiaðhvetja
fólk til að leggja •
við hlustir...
Hannes Hólmsteinn
Varar nemendur við Evrópusambandinu
Það hafa allir skoðun á Hannesi
Hólmsteini Gissurarsym, prófessor
við Háskóla íslands. A vef stjórn-
málafræðinema em tenglar á fjöl-
margar bloggsiður þar sem nem-
endur geta rasað út. Ekki virðist
mikið fara fyrir pólitfskri umræðu en
sumir geta ekki staðist að skjóta á
prófessorinn sem var þrátt fyrir allt
kosinn vinsælasti kennarinn við
deildina. Hildur Einarsdóttir hefur
til dæmis þetta að segja um Hann-
es...
„Það hlaut að koma að því eftir
heila önn f tímum hjá Hannesi
Hólmsteini að hann segði eitthvað
sem ég gæti verið fullkomlega sam-
mála og tekið mark á. ... hann ráð-
lagði okkur líka að gera
eitthvað öðruvísi;
„Ekki fara í London
School of Economics
og skrifa milljón-
ustu ritgerðina
um Evrópu-
sambandið".
Annar nem-
andi sem
kallar sig
Heims-
borgara
lýsir því
hvernig týpískur dagur í lífi stjórn-
málafræðinemans gengur fyrir sig.
Fyrsta færslan hljóðar svona; „Byrj-
aði á því að sleppa tíma hjá Hannesi
Hólmsteini, ég var bara ekki í and-
legu skapi til þess að takast á við
skoðanir hans og málróm, hafði svo
litla mótspyrnu að eftir tíu mínutur
hefði ég tileinkað
mér allar
skoðanir
hans."
SMS LEIKUR
FERÐ ÞU A LEIKINN?
'-N
tAKTO
pATTi
/ i
' /
< ‘f /
i v /,
' > *-
\ s
/ \ \ - —
/ „ - -.
/ / /
/ / /
/ l ^/ ,
/
/
' V
I /\ V
' I \ N
' I \ \
____________/ I X \
I / N X
\------------------ X \ /
\ \ 1
\ \ '
\ \\
\ ✓
----/ / \
\ \ \
\ \ '
l
a\
/ /» '
/ / l »
/ /11
/ ' I \------------
/ / l 1
/ ' N._________/
/ /
/ /
/ /
v /
Glaumbar býður þér út á
Man. Utd - Liverpool 24. apríl.
Glaumbar býður þér og vini þínum á Old Trafford að sjá Man Utd-Liverpool
Sendu SMS skeytið á númerið og þú gætir unnið.
Við sendum þér 2 spurningar. Þú svarar með því að senda SMS skeytið
eða á númerið
Þú gætir unnið ferð fyrir 2 á Man Utd-Liverpool* • Glaðning frá Adidas
Fótbolta tölvuleik • Enn meira af leikjum, VHS og DVD myndum
og margt fleira.
*Ferðin á leikinn er dreginn 22. april úr öllum innsendum skeytum í beinni á SkonRokk
Ef þú vinnur ekki þá ferðu á Glaumbar þar sem boltinn er alltaf í 100% beinni
^ysr,
Fyrir þá sem ekki vinna aðalvinning • Rosaleg ferð, 23.-26.apnT
Man.Utd - Liverpool, 24.mars.
Úrval Útsýn í Smáranum býður upp á beint leiguflug til Manchester á þennan
stórleik sem þú mátt ekki missa af.
Bókanir og nánari upplýsingar hjá Úrval Útsýn i Smáranum í (aÍ/I' llRVAL' ÚTSÝN
síma 585-4100 eða á netfangi ludvik@uu.is
www.glaumbar.is PlayStation 2 0
Vinningar verða afhentir hjá BT Skeifunni 11. Reykjavík, Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb BT. 99 kr/skeytið