Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2004, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 14. MAÍ2004
Fréttir DV
Birtist óvænt
í Bagdad
Donald Rumsfeld, vam-
armálaráðherra Bandaríkj-
anna, birtist óvænt í
Bagdad í gær ásamt Ric-
hard Myers, formanni
bandaríska herráðsins.
Með heimsókninni vildi
Rumsfeld freista þess að slá
á reiðiöldur vegna frétta af
pyntingum og illri meðferð
hernámsliðsins á írökskum
föngum. Ljósmyndir af
pyntingunum hafa valdið
reiði um allan heim og þess
hefur verið krafist að
Rumsfeld segi af sér vegna
málsins. Það hyggst hann
þó ekki gera enda hefur
hann fullan stuðning Bush
forseta. Rúmlega 700
bandarískir hermenn hafa
látið lífið í írak frá því að
Bush tilkynnti að stríðinu
væri lokið fyrir ári.
Nýrforstjóri
Kaupás
Eftir að Kaupás bætt-
ist í Norvíkur-liðið seint
á síðasta ári hefur verið
unnið að endurskipu-
lagningu samsteypunnar
og nýtt skipurit er kom-
ið. Helstu breytingar em
þær, að Sigurður Arnar
Sigurðsson, sem var
framkvæmdastjóri versl-
anasviðs BYKO, tekur nú
við sem forstjóri Kaupáss
og Eysteinn Helgason
verður framkvæmda-
stjóri innkaupasviðs
Kaupáss. Starf fram-
kvæmdastjóra matvöru-
svíðs hefur verið lagt
niður.
Munt þú horfa á
hrúðkaup Friðrilcs
ogMaríu?
Snorrí Ásmundsson
forsetaframbjóöandi
„Nei, ég hefvarla tíma íþað.
Samt finnst mér svona brúð-
kaup mjög rómantísk og
falleg og gaman þegar fólk
giftist - sérstaklega prinsar og
prinsessur.
Hann segir / Hún segir
„Nei, ég ætla ekki að fylgjast
með því. Hefákaflega lítinn
áhuga á kóngafólki. Mér
finnst Dorrit í raun vera
ókrýnd drottning Islands."
Steinunn Ólína,
ieikkona
Davíð Oddsson, settur dómsmálaráðherra, tók við áliti umboðsmanns vegna skip-
anar Ólafs Barkar Þorvaldssonar sem hæstaréttardómara. Umboðsmaður beygður
eftir símtal frá forsætisráðherra. íhugar að tilkynna Alþingi formlega um ógnandi
afskipti ráðherrans.
Forsætisráölm sagður
liafa hátað umboðsmanni
Davíð Oddsson forsætisráðherra er sagður hafa hringt í Tryggva
Gunnarsson, umboðsmann Alþingis, eftir að hann fékk í hendur
álit umboðsmanns um skipan Ólafs Barkar Þorvaldssonar í
embætti hæstaréttardómara sem felur í sér áfellisdóm yfir
vinnubrögðum dómsmálaráðherra.
Forsætisráðherra var á þessum
tíma settur dómsmálaráðherra í fjar-
veru Bjöms Bjamasonar og tók við
álitinu um skipan frænda síns í byrj-
un maí. Heimildir DV herma að
Tryggva hafi verið mjög brugðið eftir
samtalið og að hann hafi reifað þann
möguleika við nokkra aðila að rita Al-
þingi bréf vegna framkomu ráðherr-
ans. Rökin fyrir bréfi til þingsins eru
þau að þarna sé um að ræða óeðlileg
afskipti eins embættis af öðm. Um-
boðsmaður heyri beint undir Alþingi
og því sé eðlilegt að upplýsa það um
gang mála. Meðal þess sem umboðs-
maður lýsti við trúnaðarmenn sína
var að borið hefði á góma í samtalinu
að ráðherrann hefði sagst ganga með
áliti sínu erinda þeirra umsækjenda
sem hafnað var. Þá hefur Tryggvi lýst
því að skilningur hans hafi verið sá að
Davíð hafi hótað því að hann yrði
„Efsatt reynist þá er
þarna um að ræða
samskipti sem ekki
eiga að verða milli
þessara aðila."
ekki skipaður að nýju í stöðu stna
þegar sá tími rennur upp að rúmum
þremur ámm liðnum. Heimildar-
mönnum DVber saman um að
Tryggva sé mjög bmgðið eftir
samtalið sem hann lýsir að
hafi einkennst af heift.
Eiríkur Tómasson
lagaprófessor og einn
þeirra umsækjenda
sem hafnað var seg-
ist hafa heyrt af
meintu símtali for-
sætisráðherra við
Tryggva Gunnars-
son umboðsmann
Alþingis.
„Ef satt reynist þá
er þama um að ræða
samskipti sem ekki eiga
að verða milli þessara að-
ila í stjómkerfinu. Umboðs-
maður starfar sjálfstætt og
er óháður stjórnvaldi á borð
við forsætisráðherra," segir Eirík-
ur.
Helgi Hjörvar, alþingismaður
Samfylkingarinnar, segir að ef þetta
reynist rétt þá sé þarna um að ræða
einræðistilburði. „Þetta er miklu al-
varlegra en að taka höfund
Bláu handarinn-
ar, Hallgrím Helgason, á teppið. Það
er óhjákvæmUegt að taka málið upp á
vettvangi Alþingis. Þingið verður að
verja sjálfstæði sitt og eftirlitsstofn-
ana sinna,“ segir Helgi.
Tryggvi Gunnarsson vUdi ekkert
tjá sig um málið.
m
.c.
S/m
Tryggvi Gunnars- Eiríkur Tómasson Helgi Hjörvar Það
son íhugaði að
skrifa Alþingi bréf
Segir að forsætisráð- er óhjákvæmilegt að
herra eigi ekki að taka málið upp á
vegna afskipta for- hafa afskipti af um- vettvangi Alþingis.
sætisráðherra.
boðsmanni.
>*<
%
>
Davið Oddsson
Umboðsmanni
Alþingis var mjög
brugðið eftir sím-
tal frá settum
dómsmálaráð-
DV sendi Davíð Oddssyni forsæt-
isráðherra eftirfarandi tölvuskeyti
með spurningum:
Ágæti Davíð!
Með bréfi þessu óska ég eftir upp-
lýsingum um símtal sem þú áttir við
umboðsmann Alþingis eftir að þú
fékkst í hendur, sem starfandi
dómsmálaráðherra, álit
umboðsmanns vegna
ESjföl ' 7-V skipunar Ólafs Barkar
Þorvaldssonar sem
hæstaréttardómara.
1. Hvert var tílefni
«S símtalsins af þinni
hálfu?
2. Hvert var
efnislegt inni-
hald þess sem
þú hafðir fram
að færa í símtai-
inu?
3. Hver er
skoðun þín á áliti
umboðsmanns?
4. Telur þú að
umboðsmaður
hafi gengið erinda
umsækjenda sem
hafhað var sem
hæstaréttardómurum?
Davíð hafði enn ekki
svarað þegar DV fór í prent-
un.
rt@dv.is
Hæstiréttur telur Stein Ármann ósakhæfan
Sýknaður af ákæru um manndráp
Steinn Stefánsson Var sýknaðurvegna ósakhæfis.
Steinn Ármann Stefánsson var
sýknaður af því að hafa orðið öðrum
manni að bana. Hæstiréttur stað-
festi dóm héraðsdóms þess efnis í
gær. Manndrápið átti sér stað í íbúð
við Klapparstíg í september 2002.
Héraðsdómur taldi sannað að
Steinn hefði stungið manninn með
hnífi í brjóst, kvið og framhandlegg.
Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu.
Steinn Ármann Stefánsson hlaut
á sínum tíma dóm upp á sjö ár fýrir
kókaíninnflutning. Hann var hand-
tekinn eftir mikinn eltingarleik við
lögreglu. Þegar Steinn losnaði úr
fangelsi drap hann manninn á
Klapparstíg. Þá hafði fjölskylda hans
leitað úrræða fyrir hann þar sem
Steinn átti við geðræn vandamál að
stríða. Fjölskyldan óttaðist að hann
myndi hugsanlega fremja voðaverk
vegna veikinda sinna.
Héraðsdómur mat svo að Steinn
væri ósakhæfur og allt benti til að
hann stríddi við geðklofa með of-
sóknarkennd. Því hafi hann ekki ver-
ið sakhæfur þegar morðið var
framið. Hæstiréttur féllst á þau rök
og á Steinn því að sæta öryggisgæslu
á viðeigandi stofnun; enda hættu-
legur umhverfi sínu.
Vilja baðverði af
báðum kynjum
Foreldrafélag Víðistaðaskóla
hefur sent frá sér beiðni um aukið
íjármagn til baðvörslu í íþrótta-
húsi skólans. Félagið telur með
öllu óviðunandi að aðeins er ann-
að hvort karl eða kona á vakt
hverju sinni. í tilkynningunni
segir að í öllum öðrum íþrótta-
húsum séu bæði karl og kona á
vakt og krefjast því foreldrarnir að
baðvarsla verði með sama hætti í
Víðistaðaskóla. Sigurður Björg-
vinsson skólastjóri segir viss
óþægindi geta hlotist af því að
hafa ekki bæði konu og karl á vakt
á sama tíma. Oft láti krakkarnir
illa inn í klefanum og þá geti karl-
kyns baðvörður ekki farið inn í
kvennaklefann og öfugt. Sigurður
segir foreldrana taka undir hans
sjónarmið. Það vanti einfaldlega
fjármagn til að kippa þessu í lið-
inn.