Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1879, Qupperneq 23

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1879, Qupperneq 23
skærleik sínum i9da dag í mánuðinum; en upp þaðan mínkar hæði skærleikurinn og fjarlægðin frá sólinni mjög svo mikið, svo að hún er komin í sólnánd 24ða dag ( þessum mánuði. Þaðan í frá verður hún morsunstjarna og fjarlægist sólina í vestur-stefnu með vaxandi skærleik þartil 31. Oktober. Síðan mínkar skær- leikurinn, og í Novembers lok fer hún 4mælistigum norðanfram hjá Axinu í Meyjarmerki, en 4. December kemst hún lengst í vestur frá sólinni og verður þá sýnileg á morgnana það sem eptir er ársins. Mars kemur í byrjun ársins upp hérumbil þrem stundum á undan sól, en þessi mismunur mínkar nokkuð um fyrstu mánuðina, þángað til í miðjum April, að hann er orðinn minni en hálf stund, en þar á eptir vex hann aptur svo mikið, að í lok Juni- mánaðar kemur Mars upp um miðnætti; umnæstu mánuði hraðar hann uppgaungu sinni, og verður með því móti sýnilegur alla nóttina, er það einkanlega svo í miðjum November, þá er hann er hæst á lopti um miðnætti. í byrjun ársins er hann í sporð- dreka merki, en hreyfir sig austur á við ígegnum bogmannsmerki, steingeit, vatnsbera, fiskamerki, hrútinn og uxamerki, og þar stað- næmist hann í byrjun Oktober-mánaðar á milli sjöstjörnunnar og auga uxans (Aldebarans). Þar eptir er hann á apturleið það sem eptir er af árinu, og um árslokin er hann í hrútsmerki. Jnpiter gengur undir í byrjun ársins um sjöttu stund(kl. 5V2), verður hann því sýnilegur hérumbil þrjár stundir eptir sólarlag; en eptir því sem dagurinn verður lengri, flýtir Jupiter niðurgaungu sinni, svo að hann er kominn úr sýn þegar í Februar mánuði. Þegar hann kemur (ljós á ný á morgnana, þá er hann á hreyfíng austur á við í vatnsbera merki. í byrjun Julimánaðarheldur hann kyrru fyrir, en þar eptir kemur hann í hreyfíng vestur á við. Þá um leið færist hann frá sólinni, og verður sýnilegri þar til 31. August, að hann er komiun anspænis sól, og er þá sýnilegur alla nóttina. I lok Oktobermánaðar er kominn aptur stans á hann, og nú verður hreyfíng hans aptur austur á vtð, öll í vatnsbera- merki, sem hann fer ekki úr árlángt. Frá því hann kom úr and- stæði við sólina hraðar hann jafnan niðurgaungu sinni, og gengur undir ( byrjun Oktohersmánaðar kl. 2 um nóttina, í byrjun Novembers um miðnætti og um árslokin kl. 9 að kvöldi til. Satnrnns sést ( byrjun árs hérumbil kl. 8V2 eptir sólarlag og er þá f hreyfíngu austur á við í fiskamerki; fer hann ekki úr því merki á þessu ári. En jafnframt nálgast hann sólina mjög, svo að hann hverfur að sýn í miðjum Martsmánuði. í miðjum Juni kemur hann aptur í Ijós um stutta stund fyrir sólar upprás. I lok Junimánaðar kemurhann uppummiðnætti,ílokJulimánaðar kl. 10 á kvöldin og í lok Augustmánaðar kl. 8. 5. dag Oktbr. mánaðar er hann anspænis sólinni, og er þessvegna um það leyti sýniiegur alla nóttina. Þar á eptir gengur hann undirfyrá nótt- inni, svo sem við byrjun Novembers kl. 4 eptir miðnætti og í árslokin, seinast í December, hálfri stund eptir miðnætti.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.