Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Árgangur

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1879, Blaðsíða 52

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1879, Blaðsíða 52
Vopnfirðíngar höfðu þesskonar samkomu á einmánuði um það leyti, sem varð víg Geitis í Krossavík seinast á tíundu öld. Þegar sagt er frá um deilur Eyólfs á Möðruvöllum við Ljós- vetnínga um miðja elleftu öld, þá er sagt, að „einmánað öndverðan var samkoma að Háisi í Hnjózkadal (Fnjóska- dal), en nú er (segir Ljósvetnlngasaga) í Kaupángi". Ér því svo að ráða, sem samkoman hafi haldizt þar lengi, en sam- komu staðurinn verið fluttur úr Fnjóskadal til Eyjafjarð- ar. Um einmánaðarsamkomu f Skagafirði er getið 1261, þegar Gizur jarl Þorvaldsson gekkst fyrir áheitum á Stað í Reyni- nesi til þess hallæri batnaði, og var það gjört á „einmánaðar- samkomu". í Jónsbók er talað um, að gjöra stefnu til garðlags „á einmánaðar samkomu", ogmáþar afvita, aðsamkoma þessi muni hafa tíðkazt á hverju ári, um þær mundir. Á Þriðjudaginn fyrstan f einmánuði 1477, var samkoma lærðra og leikra milli Vargjár og Glerár í Eyjafirði, töluðu þeir um „þau undur og ógnir, sem þá yfir gengu af eldgángi, sandfalli og ösku, myrkrum og ógur- legum dunum", svo af þessum undrum þreifst fénaður ei við, en þó var snjólaus jörð; endurnýjuðu þeirnú þau heit, sem áður höfðu gjör verið, að allir búfastir menn eru skyldir (segja þeir) að koma til Grundar í Eyjafirði þriðjudaginn fyrstan í einmán- uði, og halda þar lögsamkomu og hafa þar lofmessu af vorri frú; skal hver maður, sá sem í búi er, gefa slíka ölmusu senr guð skýtur honum í hug, ei minna en alin þeir sem koma, en þeir sem ei koma, og eru í skatti, gjaldi eyri, en þeir sem minni fé eigu, og ei koma, gjaldi hálfan eyri, en búlausir menn, sem eiga tfu hundruð, gefi klippfng, en þeir, sem eiga fimm hundruð, gefi kálfskinn. Skal þessi ölmusa gefast þeim, sem í búi liggja, og lúka ei seinna en í fardögum, og hreppstjórnar- menn gjöra ráð fyrir sitt ár f hverjum hrepp. — Item, að hver maður, sem í búi er, gefi málsverð á Guðmundardag, hálfa þriðju mörk smjörs, eður annan jafnvirðan mat. Hérmeð er hver maður skyldugur að sýngja pater-noster, sá sem er tólf vetrum eldri, og níu sinnum ave-Maria á Maríumessu í föstu. Svo og heitum vér að sýngja skyldi enn fimm messur á hverri al- kirkju: sú fyrsta af heilögum anda, önnur af vorri frú, þriðja af öllum guðs englurn, fjórða af patro^ms þeirrar kirkju (þeim sem kirkjan er helguð), fimmta af öllum helgum; skyldu hér með þeir, sem messurnar láta sýngja, gefa málsverð, eða fæða fátækan mann með hverri messu. Hér til skyldi almúginn sýngja þrjá pater-noster-psaltara og tvo Maríu-versa-psaltara og hafa úti hvorutveggja fyrir páska. Svo og heitum vér að halda heilagt visitatio Mariœ að helgi og tíðagjörð, sem aðrar Marfu messur, og þurrfasta fyrir messudaga johannis hvoratveggju og hins góða Guðmundar. Svo og lofuðum vér, að halda betur drottinsdaga og laugarkveld, og vinna ei framar en kirkjurétt- ur útvísar, og allar hátíðir og svo föstutíðir og einkanlega frjá- daginn........Samþykkir þetta vort heit Herra ábóti Einar á Múnkaþverá, Semíngur prestur Magnússon (sira Semíngur Magnússon var prestur að Saurbæ í Eyjafirði frá 1438 til (50)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.