Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1879, Blaðsíða 35
Juni 12. Lifrarafli á ísafirði mestur 150 tunnur í einni ferð
sumir fengu 100 tunnur. ,
— s. d. Björn Magnússon Olsen tók próf í málfræði við
háskólann í Kaupmannahöfn með beztu einkunn.
— 12. Skip fórst með sjö mönnum í ferð af Akranesi ur
beitufjöru 1 Hvalfirði.
— 14—16. Skýrsla um fund amtsráðsins í Vesturumdæminu í
Stykkishólmi (fulltrúi síra Guðmundur Einarsson og vara-
fulltrúi Hjálmar Pétursson). Akveðin yfirsetukvenna
héruð í vesturamtinu.
— 15. Sýslufundur í Skagafirði (í Hofsós), þar var talað
um skattamálið og fleira.
— s. d. Veittur styrkur, 1000 krónur til Feilbergs jarðyrkju-
manns til búfræðislegra rannsókna á Islandi; veitti hið
danska landbústjórnarfélag helmíng , kostnaðarins en
annar helmlngurinn var veittur af Islands sjóði (sbr.
Isafold IV, iq).
— s. d. Verðlaun veitt úr búnaðarsjóði Vesturamtsins af
amtsráðinu, tveimur mönnum 60 krónur hverjum ogsex
mönnum 40 krónur hverjum.
— 16. Fröken Tvede býður til að setja skóla á komanda
vetri á Berufirði handa úngu fólki, bæði karlmönnum
og kvennfólki.
— s. d. Af fé því sem í fjárlögunum var veitt til jarðabóta,
var úthlutað Jóni Halldórssyni á Laugabóli á Lángadals-
strönd 200 krónur, en 400 krónur ætlaðar Olafi Björnssyni
fyrir að ferðast um og veita tilsögn í jarðabótum.
— Aætlun um tekjur og gjöld jafnaðarsjóðsins 1 vestur-
amtinu fyrir ár 1878.
— 18. Auglýsíng um reglur þær, sem fylgja skal um siglíngar,
meðan ófriðurinn er milli Rússlands og Tyrkjaveldis.
— s. d. FundurRángæingaaðStórólfshvoli.ræddymsalmenn
mál, um brúargjörð á Þjórsá og Olfusá, alþýðu mentun o.fl.
— 19. Teinæríngur af Heliissandi fekk mikinn sjóhraknlng á
leið af Hellissandi undan Jökli til Flateyjar á Breiðafirði.
— s. d. Almennur sýslufundur Arnesínga að Hjálmholti
eptir áskorun Þorláks alþíngismanns; fundarmenn úr
flesturn hreppum sýslunnar voru nálægir.
— 21. FundurÞórnesínga í Stykkishólmi, fundarstjóri rórðnr
Þórðarson alþíngismaður, rætt um gufuskipsferðir kríngum
land, og ýms önnur mál.
— 25. Próf í forspjallsvfsindum í prestaskólanum, gengu
fimm undir prófið.
— s. d. Fannst örendur Thomas kaupmaður Thomsen ekki
lángt frá Blönduósi. Hann hafði fyrstur stofnað þar verzlun
í fyrra.
— s. d. Veittur styrkur 200 kr. handa Benedikt Gröndal
til að búa til myndasafn af íslenzkum dýrum handa
latínuskólanum.
[1879 3]
(33)