Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1879, Page 62

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1879, Page 62
Gordianus og Epimachus. Gordianus fékk þá skipun af Julianus keisara, að láta hinn helga Januarius, sem er síðan varnaðar- maður kristinna manna í Neapelsríki, fórna til goðanna, því þá var ofsókn móti kristnum mönnum, en fyrir játníng og prédikan Januarius varð hann snúinn til réttrar trúar, ásamt með konu sinni. Þá er Julianus keisari fékk þetta að víta, lét hann taka Gordianus, og þegar hann vildi ekki sverja af sér trúna, lét hann fyrst slá hann með svipum og hálshöggva síðan. Líkinu var kastað fyrir hunda, en þegar þeir vildu ekki snerta það, tóku hinir kristnu menn það burt og grófu það eigi langt frá Róm við hliðina á píslarvottinum Épimachus. 12. Mai. Pankratiusmessa er kennd við höfðíngja einn af Frygíalandi; hann fór úngur til Rómaborgar, og var honum þar kennd kristin trú og skírn veitt. Hann hélt svo fast trú sína, að engin hótan eða loforð gátu fengið hann til að hopa af trúnni, var hann því hálshöggvinn í einni ofsókninni á dögum Diocletianus keisara, en síðan tóku kristnir lík hans og grófu. Nú er hann grafinn í kirkju, sem er reist honum til vegsemdar í Rómaborg, en höfuð hans er grafið í Lateran- kirkjunni. Heilagur dómur hans er sýndur víðar í kirkjum, bæði á Ítalíu, í Érakklandi, á Hollandi, Spáni og víðar, og hin elzta kirkja í Kantaraborg á Englandi er helguð honum. — Þenna dag er ákveðið, að vorvertíð skuli byrja 1869 á Suðurlandi, en daginn eptir á að byrja markaður í Reykjavík og standa þrjá daga, en daginn þar á eptir (14. Mai) er vinnuhjúa skildagi. 15. Mai er helgaður minníngu Hallvarðs hins helga. Hann var frændi Ólafs konúngs Haraldssonar og hefir verið saga af honum frá fornu, en ekki er til af henni nú, nema fáeinar Knur á skinnbók einni í safni Árna Magnússonar, og er það brot gefið út í Heilagra manna sögum eptir Unger. Til er og kvæði á íslenzku um hinn helga Hallvarð, og er ekki prentað enn. Hallvarður hinn helgi var skotinn til dauðs og sökktur niður í DrammsQörð. Á prímstöfum er Hallvarðsmessa merkt með mylnusteini, af því hinum helga Hallvarði var sökkt niður með mylnusteini, en stundum var dagurinn merktur með dropum, sem átti að þýða kornsáð, því Hallvarðsmessa var talin bezti sáðdagur. Sá sem ekki sáði þá, bjó sig undir árþrot, þ. e. að hann þryti vistir á því ári. 10. Mai. Með fimta sunnudegi eptir páska byrjar þá uppstigníngardags vikan eða gángdaga vika. Þessir dagar voru, eins og fyr var getið, til þess helgaðir, að gánga yfir tún og engjar og biðja til árs og gróðrar. Dagur þessi, 18. Mai, er helgaður minníngu Eiríks Svía konúngs, Játvarðssonar, sem féll 1160 á þessum degi. Sumir láta þenna Eirík konúng vera Eirík plógpenníng, Dana konúng. Eiríkur Svía konúngur Ját- varðsson var dóttur-sonur Blót-Sveins, Svía konúngs og var mjög kappsamur að halda fram kristinni trú. Magnús Hin- riksson frá Danmörku, sonur Hinriks skötulærs, kom með her til Svfþjóðar, sigldi upp eptir Fýrisá til Uppsala, og kom þar (60)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.