Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2004, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ2004
Fréttir QV
Safnað fyrir
Helga Einar
Stofhaðir
hafa verið tveir
styrktarreikn-
ingar til að
styðja við bakið
á Helga Einari
Harðarsyni
hjartaþega, sem
gengist hefur undir hjarta-
ígræðslu í Svíþjóð í þessari
viku að því er segir í Víkur-
fréttum. Þar segir að Helgi sé
allur að hressast eftir aðgerð-
ina, en hann fékk nýtt hjarta
og einnig nýra. Reikningarnir
em við Sparisjóðinn í Kefla-
vík 1109-05-409899 ogvið
Landsbankann í Grindavík
143-05-60707.
Ætlar ekki að
mæta á RÚV
Ástþór Magnússon
sakar Amar Pál Hauksson
fréttamann útvarpsins um
að heilaþvo íslenska kjós-
endur. Astþór er ósáttur
við viðtal sem Amar Páll
og Broddi Broddason tóku
við hann á laugardaginn.
Ástþór segir að Amar Páll
hafi beitt heUaþvottstil-
burðum með spumingum
eins og: „Er ástæða tU
þess að vera héma að
eyða einhveiju púðri í
þig," og með því að tala
um að þjóðin vUdi ekki
Ástþór. Ástþór hefur
einnig lýst yfir að hann
ædi ekki að mæta í viðtal í
sjónvarpinu þar sem hann
treysti RÚV ekki tíl að
klippa viðtalið. Hann vUl
mæta í beina útsendingu.
Trúirþúátöfra
Jónsmessunœtur?
Hilmar Örn Hilmarsson
Allsherjargoöi.
„Já, tvímælalaust. Ég baða
mig alltafí dögginni á Jóns-
messunótt, mesta furða að
ekki skuli vera búið að hand-
taka mig fyrirstriplið fyrir
löngu. Ég vil lika hampa öðr-
um töfrum þessa nótt, enn á
ég þó eftir að ganga á Helga-
fell. Ég vil nefnilega hafa lífið
fullt afóútskýranlegum töfr-
um, annars væri það svo grátt,
kalt og hrátt."
Hann segir / Hún segir
„Ég trúi sannarlega á töfra
Jónsmessunætur. Lífið sjálft er
töfraheimur og mér finnst
bæði eðlilegt og náttúrulegt
að vera lostin töfrum. Efeitt-
hvað getur hafið mann yfir
hvunndaginn eru það töfrar
eins og þeir á Jónsmessunótt.
Ég hefekki stundað daggar-
böð til þessa, en er að melta
með mér að skella mér í dögg-
ina næstu Jónsmessunótt."
Helga Thorberg
blómasölukona
Hæstiréttur hefur staðfest tíu mánaða fangelsisdóm yfir Rafni Sævari Heiðmunds-
syni fyrir kynferðisbrot gegn tveimur ungum stúlkum. Náinn ættingi annars fórn-
arlambsins vill að tekið sé harðar á málum af þessu tagi og nauðsynlegt sé að fólk
geti verndað börnin sín fyrir barnaníðingum.
Dæmdur barnaníðingup
líklega fvrir Evrópudómstól
Rafn Sævar Heiðmundsson íhugar að fara með mál sitt fyrir
Mannréttindadómstól Evrópu. Hæstiréttur hefur staðfest tíu
mánaða fangelsisdóm yfir Rafni vegna kynferðisbrota gagnvart
tveimur stúlkubörnum.
„Það er ekkert sem styður þetta,
það er dæmt í þessu máli án full-
nægjandi sannana að mínu mati og
ég vísa þessum ásökunum á bug“
segir Rafn Sævar Heiðmundsson
sem hefur haldið fram sakleysi sínu í
málinu allan tímann. Rafn kveðst
búinn að gefast upp á íslenska
dómskerfinu og íhugar nú að skjóta
málinu til Mannréttindadómstóls
Evrópu.
„Eg ætla ekki að vera með nein
gífuryrði. Niðurstaðan kom nú bara
á föstudaginn og ég ætla að ráðfæra
mig við minn lögfræðing en við
erum að skoða það að fara með
þetta til Evrópudómstólsins," segir
Rafn.
Sekt talin sönnuð
Rafn er sakfelldur fyrir að hafa
beitt aðra stúlkuna kynferðislegu
ofbeldi á vinnustað sínum í Njarð-
vík sumarið 2002. Stúlkan var þá
sex ára gömul og er honum gefið
að sök að hafa káfað á kynfærum
hennar innanklæða, lagt getnaðar-
iim sinn við kynfæri hennar og fró-
að sér fyrir framan hana. Stúlkan
bar vitni í Barnahúsi og var það
mat héraðsdóms að framburður
hennar væri skilmerkilegur miðað
við ungan aldur. Rafn neitaði sök
og sagði fyrir dómi að hann hefði
oftsinnis gefið krökkum sem leit-
uðu til hans sælgæti og peninga.
Ástæðan væri sú að hann vildi
koma í veg fyrir að skemmdir væru
unnar á bifreiðum við hús sitt.
Seinni hluti ákærunnar yfir Rafni
snýr að annarri stúlku og er honum
gefið að sök að hafa brotið gegn
henni í bflskúr við heimili sitt í
Sandgerði og einnig um borð í bif-
reið skammt frá Garðinum. Stúlkan,
sem var sjö ára, lýsti atburðinum
skilmerkilega, sagði meðal annars
frá því hvernig maðurinn hefði lyft
sér upp á borð, afklætt sig og síðan
tekið ljósmyndir á Polaroid-mynda-
vél. Að því loknu hafði hann í
frammi kynferðislega tilburði sem
ekki verður nánar lýst hér. Rafn neit-
aði einnig sök í þessum ákærulið en
framburður stúlkunnar þótti trú-
verðugur.
Héraðsdómur taldi sannað að
ákærði hafi gerst sekur um kyn-
ferðislegt ofbeldi gegn stúlkunum,
þrátt fyrir neitun hans sjálfs. Brot
hans gegn stúlkunum voru að mati
dómsins alvarleg og talið er að
hann hafi notfært sér ungan aldur
stúlknanna og misnotað þær kyn-
ferðislega. Hæstiréttur hefur stað-
fest dóm héraðsdóms. Rafni er gert
að greiða allan áfrýjunarkostnað
málsins; þar með talin málsvarn-
arlaun skipaðs verjanda síns,
Brynjars Níelssonar hrl., og þókn-
un til Sifjar Konráðsdóttur sem
annaðist réttargæslu stúlknanna.
Þá var Rafn dæmdur til að greiða
foreldrum beggja stúlkna 300 þús-
und krónur í miskabætur.
Hættum feluleiknum
Náinnn ættingi annarrar
stúlkunnar kveðst ekki sáttur
við dóminn - hefði vilj-
að sjá þyngri dóm.
„Það er afar mik-
ilvægt að tekið
sé harðar á
kynferðis-
brotamál-
um og
flýta verð-
ur rann-
sóknum
mála af
þessum
toga. Þá
verður
að
hætta
þessum
feluleik
með nöfn barnaníðinga. Það er mest
um vert að foreldrar geti verndað
bömin sín fyrir bamaníðingum,"
segir ættinginn. Ekki megi gleyma
því að barnaníðingar rústi lífi ungra
barna og fjölskyldna þeirra.
Fangelsisvist bíður nú Rafris en
hann kvað hafa
látið fara lít-
ið fýrir sér síðustu mánuði og hefur
leigt út verkstæðið þar sem kynferð-
isbrotin gegn annarri stúlkunni voru
framin.
„Við erum að
skoða það að fara
með þetta til
Evrópudóm-
stólsins."
Dómur staðfestur
Rafn Sævar Heiðmundsson
var dæmdur í tíu mánaða
fangelsi íjanúar sl. fyrir níð-
ingsskap gagnvart tveimur
ungum stúlkum. Hæstirétt-
ur hefur staðfest dóminn.
í
Tvíhöfði til Tyrklands
Félagamir Davíð Oddsson og Hall-
dór Ásgrímsson halda undir lok vik-
unnar saman til Istanbúl í Tyrklandi á
hinn árlega leiðtogafund NATO.
Búast má við að aðalumræðuefn-
in verði írak, Afganistan og hryðju-
verkaógnin í heiminum. Ekki em
komnir á dagskrá sérfundir, en sam-
kvæmt heimildum DV má búast við
því að Davíð og Halldór reyni að
nálgast leiðtoga Bandaríkjanna,
menn á borð við Colin Powell utan-
rfldsráðherra og George Bush for-
seta Bandaríkjanna að ræða varnar-
mál íslands. Framkvæmdastjóri
NATO, Jaap de Hoop Scheffer sem
kom hingað til lands fýrir helgi segir
að Bandaríkjamenn og fslendingar
eigi að leysa málin sjálfir en heitir
velvilja við sjónarmið íslands.
Óvenjulegt er að Davíð og Halldór
sæki fundi saman en fyrir helgi hittu
þeir báðir NATO framkvæmdastjór-
ann. Ekki hefur verið upplýst hvort
Davíð hafi notað ferð sfna til Banda-
Halldór og Davfð Fara saman á NATO
fund til Tyrklands I vikunni.
ríkjanna um síðustu helgi til að hitta
bandaríska ráðamenn eða hvort
hann hafi sóst eftir fundi við George
Bush á þeim tíma sem hann dvaldi í
Washington. Davíð og Halldór geta
notað ferðina til að útkljá ýmis mál í
stjórnarsamstarfinu enda eru þeir
sterkir leiðtogar. Svo sterkir að ríkis-
stjórnin er í máli manna kölluð Tví-
höfðastjórnin.
Verjandi barnaníðings segir verið að
skoða hvort fara eigi með tvö svipuð mál
til Mannréttindadómstólsins í Strassborg
Tveir níðingar líklega
til Evrópu
„Við erum að skoða það hvort við
förum með þetta mál til Evrópu-
dómstólsins, það kostar einhverja
peninga og það fer m.a eftir því
hvort við gerum það. Það er annað
svipað mál sem var kveðinn upp
dómur í í vikunni á undan þessu
sem snýr að sönnunargögnum eins
og þetta sem við erum lflca að skoða.
Annaðhvort málið eða bæði fara
væntanlega út" segir Brynjar Níels-
son, verjandi Rafris Sævars. En
Hæstiréttur staðfesti tíu mánaða
fangelsisdóm yfir Rafni á föstudag-
inn var vegna kynferðisbrota.
T1I Strassborgar
Brynjar lögmaður
segir annað eða
bæði málin líklega
fara til Evrópu.
Brynjar seg-
ist ósáttur með
að svona mál
teljist sönnuð með þeim sönnunar-
gögnum sem stuðst var við. „Það er
alveg ljóst að dæmt var eftir ein-
hverjum öðrum brotaflokki en átti
að gera sama hvað menn segja.
Dómstólar fara þessa leið að gera
minni kröfur til sönnunar í þessum
málum en öðrum og því miður verð-
um við bara að lifa við það."