Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2004, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2004, Blaðsíða 10
10 MÁNUDACUR 21. JÚNl2004 Fréttir DV Baldur Ágústsson forsetafram- bjóðandi er heiðarlegur og kemur til dyranna eins og hanner klæddur. Hann þykir skemmtilegur og hefur góða sagnagáfu. Hann er alþýðu- maður fram í fmgurgóma og þrátt fyrir að vera vellríkur er hann með báða fætur á jörðu. Hann hefur unun afþví að skipuleggja hluti og koma þeim á koppinn. Baldur Ágústsson forseta- frambjóðandi á það til að vera einþykkur og þrjóskur efhann bítur eitthvað ísig. Hann er þunglamalegur í framgöngu og lítt afger- andi. Baldur hefur stirð- busalega framsögn sem er stundum beinlínis óskýr. Ber ekki fullkomið skynbragð á það hvað öðru fólki kann að finnast um hann. „Baldur er ákaflega alþýðlegur og góður húmoristi. Hann á auðvelt með aö tala við fólk. Baldur ólst upp I Skátahreyfíngunni og erafskaplega hreinn og beinn I framgöngu. Hann berst lltið á þrátt fyrir að hafa komist I álnir, snobb og hroki þekkjast ekki I fari hans." Þorleifur Agústsson, doktor í lifeðlis- fræðl. „Baldur er heiðarlegur og fylg- inn sér í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann er skemmti- legur og hefur mikinn og góðan húmor. Hann segir skemmtilega frá og kann margar góðar sögur. Baldur hefur alltaf verið leið- togi i eðli sínu og hefur frábæra skipulagsgáfu. Grimur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Ispan. „Baldur er hreinskiptinn og al- veg laus viö hræsni. Hann er mjög snjall og rökfastur. Baldur er óhemju fyndinn og skemmti- legur. Hann á hafsjó afsnilldar- frásögnum og iróníu. Hann get- ur verið ákaflega hlýr og gefandi með návist sinni einni þurfi fólk á þvi að halda. Hann hefur ákaflega gagn- rýna hugsun og hefur sjaldnast látið skipa sér fyrir verkum." Helga Agústsdóttlr kennarl. Baldur Ágústsson er i framboði til forseta islands. Baldur er fæddur l Reykjavik 16. september 1944 en rekur ættir slnar vitt og breitt um landið. Baldur útskrifaðist úr Loft- skeytaskólanum árið 1963. Hann vann hjd Flugmdlastjórn I rúm 20 ár. Meðfram starf- inu stofnaði hann fyrstu islensku öryggis- þjónustuna, Vara. Slðustu drin hefur Baldur stundað fasteignaviðskipti d Bretlandi. Komst niður eftir átta ár Hinn 89 ára gamli Randolph HaU komst nú í vikunni loksins niður á jarðhasð í fjölbýlishúsinu sem hann býr í í höfuð- borg Trinidad. Hann hafðist við í íbúð sinni á áttundu hæð í átta ár. Lyftur hússins höfðu ver- ið bilaðar allan tímann og treysti hann sér ekki í stigana. Árni Johnsen ánægður þrátt fyrir lítt sóttar hjólabátsferðir að Látrabjargi. Sturla Böðvarsson styrkti tilraun Árna. Einn farþegi í fyrstu ferðinni, 8 í þeirri næstu. Fáir m$ttu ferðin Arna Fyrsta stórvirki Árna Johnsen sem ferðamálafulltrúi Vestur- byggðar fdr heldur brösuglega af stað, en fyrir tilverknað hans var fenginn hjólabáturinn Larkinn frá Vík í Mýrdal með ærnum kostnaði vestur, til að sigla með ferðamenn frá Látravík að Látra- bjargi, nokkrar ferðir á dag í fjóra daga. Síðasta ferðin var farin í gær, en í þeirri fyrstu, á fimmtudag, var aðeins 1 farþegi í 60 manna hjólabátnum. Átta farþegar voru í næstu ferð og raunar vart hægt að tala um farþega að ráði fyrr en á laugardaginn þegar boðuð hafði verið heimsókn Omars Ragnarssonar sjónvarpsfréttamanns að taka myndir. Ómar flaug yfir að taka myndir og sigldi síðan meðfram hjólabátnum á slöngubát að taka fleiri myndir. Þá loks varð nánast bátsfyllir. Um -jtriiL er ræ®a ' tilraun í tilefni 10 ára af- $j mælis ' Vestur- byggðar. Fyrsta stórvirkið Sjálfur er Árni Johnsen ánægður meö hjóla- bátstilraunina þrátt fyrirdræma aðsókn. Styrkt af samgönguráðherra í fyrstu ferðinni, með einn far- þega, varð báturinn reyndar að snúa við eftir að farþeginn hafði fyllst ofsahræðslu vegna hins úfna sjávar, en ekki síst þegar hjólabáturinn tók að leka þegar oh'uventill losnaði. Ljóst er að tilraun þessi stendur langt í frá undir kostnaði, en á móti því kemur að Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og flokksbróðir Árna styrkir tilraunina úr rfkissjóði. Að líkindum munu skattgreiðendur borga flutningskostnað hjólabáts- ins, sem var tekinn á dráttarbíl frá Vík til Hafnarfjarðar og þaðan fluttur vestur á ffagtskipinu Jaxhnum og á að fara sömu leið til baka suður. Kunnáttumenn telja kostnaðinn við slíkan flutning vart undir 500 þús- und krónum hvora leið. Ferðirnar með bátnum fyr- vestan kostuðu 3.000 krónur fyrir fuhorðna en 1.500 fyrir börn, en 12 ferð- ir voru á dagskrá. Hefði því þurft yfir 300 farþega th að brúa flutnings- kostnaðinn, ef ríkið hefði ekki tekið hann á sig. Raunin varð sú að farþegar urðu eitthvað á annað hundrað ahs. Ekki mikil traffík Árni Johnsen ferðamálafuhtrúi fuhyrðir þó að thraunin hafi heppnast Hrikalegt fuglabjarg Einn farþegi var / fyrstu ferð og hann fylltist ofsahræðsiu. og að sýnt hafi verið fram á að þetta væri möguleiki sem ætti að skoða vel í framhaldinu. „Þetta gekk ágætlega þótt traffík- in væri ekki mikh. Þetta hefur aldrei verið reynt áður og því eðlilegt að þetta hafi farið treglega af stað, en menn eru samt á því að þetta sé snjaht ráð og góð lausn. Þama er hafnleysa og erfitt að sigla með fólk að upphfa Látrabjarg nema um langar leiðir og þá er hjólabátur frá Látravík augljóslega góður kostur. Vissulega eru svona ferðir nokkuð háðar veðri og vindum, en í dag er th dæmis algert logn,“ segir Árni, en viðurkenndi að þrátt fyrir það væri „ekki biðröð“ í síðustu ferðina í gær. Hann segir að fólk hafi komið frá Reykjavík í ferðirnar og einnig hafi bjargmenn frá Vestmannaeyjum komið til að upplifa mesta fugla- bjarg Evrópu. fridrik@dv.is Auglýsingastofur keppa Auglýsingamenn bíða eftirSímanum Veitingastaðurinn í Þrastaskógi Fyrsta brúðkaupið í Þrastalundi „Nei, ákvörðun er ekki fyrirliggj - andi. Við erum að skoða nokkra að- ha. Ákvörðun verður ekki fyrirliggj- andi fyrr en í haust,“ segir Katrín Olga Jóhannesdóttir framkvæmda- stjóri markaðs- og sölusviðs Símans. Gríðarleg spenna ríkir nú innan auglýsingageirans því einhver feit- asti biti sem nokkurri auglýs- inga- stofu getur hlotn- ast, Sím- inn, er á lausu. Ármann Kr. Ólafsson Aðstoðar- maður Árna Mathiesen isjávarút- vegsráðuneytinu. Hann erManninn I Nonna og Manna nafninu en Nonni og Manni hefur lengi séð um verkefni fyrir Símann og vonast til að fá verkið Ihaust. Samkvæmt heimildum DV eru það einkum Gott fólk McCann, Nonni og Manni, Hvíta húsið og Fíton sem th greina koma en Katrín Olga taldi ekki rétt á þessu stigi að upplýsa ná- kvæmlega th hvaða auglýsingastofa þeir Símamenn horfa einkum. I DV fyrir nokkru var greint frá því að þrír lykilmenn, þeir Sveinn L. Jóhannsson, Hjörvar Harðarson og Dagur Hhmarsson gengu út af aug- lýsingastofunni Gott fólk McCann og fóru þaðan yfir á Nonna og Manna. Ekki aðeins þótti eftirsjá í þeim sem slílcum heldur ohi brott- hlaup þeirra ekki síður skjálfta vegna þess að þeir voru helstu tenghiðir við Símann. Síminn sagði upp öhum samningum við Gott fólk og Nonna og Manna í vetur sem leið og er nú að endurskipuleggja sín auglýsingamál. Nonni og Manni hefur verið með verkefni fyrir Símann um árabh. „Ég er fuhur bjartsýni á framtíð- ina,“ segir Snorri Sigurfinnsson, sem tekið hefur veitingastaðinn Þrastalund í Þrastaskógi á leigu til næstu tíu ára. Þrastalundur hefur hafið rekstur í nýju og margfalt stærra húsi sem stendur kippkorn fjær þjóðvegin- um en gamla húsið. Veitingasalur- inn snýr að Soginu og Ingólfsfjalli í stað þess að snúa mót veginum eins og áður. Ungmennafélag íslands á Þrastaskóg og Þrastalund. Snorri leigir ekki aðeins veitingastaðinn heldur jörðina Þrastaskóg alla. Með henni fylgir útleiga á tjaldsvæði og veiðiréttindi í Soginu. Opnað var fyrir gesti í nýja Þrastalundi 12. júní. Hægt er að taka á móti 120 gestum í sæti í margfalt stærri húsakynnum en áður. „Það líst öhum gríðarlega vel á,“ segir Snorri. Miklir möguleikar felast f stærðinni: „Fyrsta brúðkaupsveislan verður Þrastalundur Glæsilegt útsýni eryfir Sogið og Ingólfsfjall í gegn um glervegg veitinga- salarins I nýja Þrastalundi / Grlmsnesi. hér á laugardaginn (um hðna helgi). Þá ædar Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, að ganga að eiga heitkonu sína," segir Snorri. Að sögn Snorra verður Þrasta- lundur fyrst um sinn opinn frá klukk- an tíu á morgnana th klukkan tíu á kvöldin. Þó kunni hann að hafa opið lengur á bamum um helgar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.