Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2004, Side 12
12 MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ2004
Fréttir 0V
Aldraðir í
dópsölu
Öldruð hjón í Perth í
Ástralíu hafa verið kærð fyr-
ir eiturlyfjasölu. Verði hjón-
in, sem eru 81 árs og 77 ára,
fundin sek íyrir dómstólum
komast þau á spjöld sög-
unnar sem elstu fíkniefha-
salar heims. Hjónin neita
sök í málinu en lögregla
fann 19 kíló af kannabisefn-
um á heimili þeirra í fyrra.
Sonur hjónanna mun hafa
beðið þau að geyma efnið
og kveðst hann hafa verið
eigandi þess. Fíkniefnalög-
gjöfin í Astrahu er hins veg-
ar þannig að gömlu hjónin
eiga yfir höfði sér dóm - því
bannað er að fela fikniefni
fyrir annan mann.
Gamlir oq las-
burða í búðir
og bíó
Búist er við að Qöldi
ítalskra ellilífeyrisþega sæki
í loftkælda stórmarkaði og
kvikmyndahús um alla ítal-
íu þegar kæfandi sumarhit-
inn fer að hrjá þá. í fyrra-
sumar létust tugir þúsunda í
Evrópu í hitabylgju og var
stór hluti þeirra ellilífeyris-
þegar. Talið er að átta þús-
und manns hafi látist á ítal-
íu. Haft er eftir Girolamo
Sirchia heilbrigðisráðherra
að í Bandaríkjunum hafi yf-
irvöld í nokkur ár flutt
gamla og lasburða í stór-
markaði og kvikmyndahús
yfir heitasta tíma dagsins
með góðum árangri. Heil-
brigðisráðherrann sagði
einnig að yfirvöld hefðu
þegar gert ráðstafanir til að
fylgjast með ellilífeyrisþeg-
um sem væru einir í sumar
og aðstoða þá ef önnur hita-
bylgja skellur á.
Hermann Gunnarsson j
sjónvarpsmaöur.
„Ég sit hér á hlaöinu á Hrafns-
eyri og boröa vöfflurmeö góð-
borgurum aföllum stærðum
og geröum og úr öllum lands-
hlutum. Hér er glaöasólskin og
blankalogn eins og nánast
alltafá Vestfjöröum. Hér er
stór hópur reykvískra eldri
borgara sem njóta þess veru-
lega að vera á einum
merkasta staö á ístandi, fæö-
ingarstaö frelsishetjunnar
Jóns Sigurössonar. Hingað
hefur legiö stööugur straumur
feröa-
Landsíminn
enda
ætla flestir landsmenn, sam-
kvæmt skoöanakönnunum,
að sækja Vestfirði heim á
þessu sumri, baða sig I sól-
skini, magnaðri náttúrufegurö
og njóta gestrisni Vestfiröinga.
Hérleiöi ég fólk um fæðingar-
bæ Jóns og fræði þaö á léttum
nótum. Um miðjan júlí held ég
suöur en sný aftur ísæluna
um miöjan ágúst".
Bæring Gunnarsson, eigandi dagabáts í Bolungarvík, segist aldrei hafa stundað
millilöndun eða kvótasvindl. Hann veit af svindli dagabáta en segir stórútgerðar-
mönnum nær að líta í eigin barm. Bæring ætlar ekki að selja kvótann sinn.
Bolungarvík Smábátamenn
þar vilja sameinast gamia
kvótakerfinu og græða meira.
W!j\. swfAv -. ~1!
yj&ij
mar/n . V\ ./sL^í
Sr*- <«,'5. ’ * . ...
Jr?rL- . £
IíSí 1 Hu líípv * _ *fl|
Trillukarl vill ekki vera
stimplaðiir sem svimllari
„Ég er ekki sáttur við að vera stimplaður sem svindlari,“ segir
Bæring Gunnarsson, eigandi dagabátsins Gunnars Leós ÍS,
vegna þeirrar umræðu sem orðið hefur um miUilöndun úr
kvótabátum í dagabáta sem nú hafa fengið svindlfiskinn metinn
sem veiðireynslu.
DV hefur kannað þetta mál og
líklegt er að um 10 prósent af kvótan-
um sem dagabátamir fengu sé illa
fenginn fiskur. Það þýðir að útgerðir
bátanna fá um 700 tonn af fölskum
kvóta á silfurfati. Sá kvóti er að verð-
mæti um 6 milljarðar króna. Bæring
viðurkennir að hann viti af svindli
dagabátanna og telur ekki ólíklegt að
þar sé um að ræða 10 prósent kvót-
ans. En sjálfur segist hann ekki hafa
stundað neitt slfkt á báti sínum held-
ur veitt um 60 tonn á ári.
„Ég hef veitt sjálfur allt sem land-
að hefur verið úr bátnum. En mér er
kunnugt um að einhverjar útgerðir
hafa stundað þetta. En svindlið í
dagakerfinu er hjóm eitt miðað við
það sem gerist í gamla kvótakerfinu
þar sem brottkast og annað á sér
stað,“ segir Bæring.
Hann er óhress með ummæli
Jóns Guðbjartssonar útgerðarmanns
sem nýfluttur er ffá Bolungarvík
vegna stefnu bæjaryfirvalda sem
hann segir ganga erinda smábáta-
manna. Jón, sem gerir út togskipið
Gunnbjöm, lýsti í DV megnustu
óbeit sinni á fr amferði trillukarlanna
sem rakað hafi að sér miUjónum í
kvóta á kostnað þeirra sem eigi
stærri fiskiskip. Bæring segir að þótt
Jón sé frændi hans þá sé hann
ómerkilegur.
„Jón Guðbjartsson er ómerkileg-
ur gagnvart okkur Bolvíkingum. Þeir
sem hæst hafa ættu að líta í eigin
barm,“ segir Bæring.
„Ég ætla að veiða
sjálfur minn kvóta."
Bæring fær tæplega 50 tonna
kvóta 1. september að andvirði um
35 miUjónir króna. Lagabreytingin
hækkaði verð á báti hans um hart-
nær 10 milljónir króna. Hann segist
þó ekki ætla að selja kvótann eins og
sumir kollega hans hafa gert.
„Ég reikna með að kaupa kvóta til
viðbótar og gera þetta að heilsársat-
vinnu,“ segir Bæring.
Raddir em uppi um það meðal
trillukarla í Bolungarvík að opnað
verði á milli smábátakerfisins og
gamla kvótakerfisins. Ef slíkt yrði
gert myndi það stórauka verðmæti
trillukvótanna. Til dæmis myndi 50
tonna kvóti Bærings hækka um 20
miUjónir króna. Hann segist alls ekki
vilja sameina kerfin.
„Ég er algjörlega á móti því þótt
mér sé ljóst að það getur orðið erfitt
að ná kvótanum vegna erfiðara tíð-
Jón Guðbjartsson Bolvíkingar eru ósáttir
við að hann skuli ræða um svindiið á smá-
bátunum.Jón fluttiifússi frá Bolungarvík.
arfars og minni fiskgengdar. Ég ætla
að veiða sjálfur minn kvóta," segir
Bæring.
rt@dv.is
Tapaði máli gegn ríkinu upp á 224 milljónir
Kærir stéttarfélagið fyrir að hjálpa sér ekki
Jón Trausti Halldórsson, sem
tapaði skaðabótamáli gegn íslenska
ríkinu og Árna Magnússyni félags-
málaráðherra af því að kæran var
óskiljanleg, hefur kært Eflingu
stéttarfélag til Alþýðusambands Is-
lands og Starfsgreinasambandsins
fyrir að vilja ekki hjálpa honum í
málinu gegn ríkinu. Jón er bensín-
dælumaður á Ártúnshöfða og telur
að í lögunum séu ákvæði sem
skylda íslenska ríkið til að veita
honum mannsæmandi farborða.
Það þótti honum ekki vera raunin
með sjálfan sig og fór hann því fýrir
Hæstarétt með eigið mál. Þrátt fyrir
að Jón hefði vísað í fjölda lagabálka
þótti Hæstarétti mál hans óskiljan-
legt, lýsing málsins f stefnu Jóns
væri mjög óskýr og veruleg óvissa
um hvert sakarefni væri. í nýrri
kæru Jóns á hendur Eflingu segir
hann: „Ég bað um smá lögfræðiað-
stoð til að ganga rétt frá máli mínu
svo að formgallar væru engir á því
en fékk enga aðstoð. Og var málinu
vísað frá vegna þess.“
Halldór Björnsson, formaður
Starfsgreinasambandsins, segir
ekki fordæmi fyrir því að Alþýðu-
sambandið eða Starfsgreinasam-
bandið taki við kærum á stéttarfé-
lög. „Það er búið að vísa þessu frá
héraðsdómi og síðan Hæstarétti.
Þeir telja málið vera þannig að það
sé óskiljanlegt. Ég fer yfir þetta með
lögmanni okkar, en ég er ekki viss
um að við höfum neina sérstaka
stöðu gagnvart stéttarfélögunum,"
segir hann.