Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2004, Síða 14
74 MÁNUDAGUR 21. JÚNl2004
Fréttir DV
Eðalvörur fá loks niðurstöðu hjá samkeppnisráði eftir áralanga baráttu við Heilsu-
verslun íslands vegna auglýsingaherferðar. Málið fór til umboðsmanns Alþingis og
Hæstaréttar áður en niðurstaða fékkst frá samkeppnisráði. Sigurður Þórðarson hjá
Eðalvörum ætlar í skaðabótamál við Heilsuverslun íslands.
Úthlutun á ýsukvóta
hefur stóraukist á síðustu
árum og nemur aukningin
15 þús. tonnum eða 20% á
næsta fiskveiðiári. Verð á
ýsu í erlendri mynt hefur á
sama tíma gefið mikið eftir.
Greining íslandsbanka seg-
ir að einn stærsti markað-
urinn fyrir ýsu er í Bret-
landi og þar er búist við að
verðið muni ekki gefa ffek-
ar eftir þrátt fyrir aukinn
kvóta. Helsta ástæða þess
er að eftirspurnin hefúr
tekið við sér í kjölfar lægra
fiskverðs og markaðurinn í
raun stækkað. Hæsta verð-
ið fæst sem áður fyrir ýsuna
sem flutt er með flugi á
Bandaríkjamarkað.
Góð staða á
ýsumarkaði
Bakkavör
græðiráGeest
Bakkavör
Group hefur á
síðustu dög-
um haldið
áfram að
bæta við hlut
sinn í Geest og er eign fé-
lagsins nú 20,03% af heild-
arhlutafé Geest. f samræmi
við alþjóðlega reiknings-
skilastaðla hyggst Bakkavör
nú beita hlutdeildaraðferð
við færslu á rekstraraf-
komu, eignum og skuldum
Geest. Ákvörðunin hefur
umtalsverð áhrif á afkomu
félagsins á þessu ári. Hagn-
aður Geest fyrir skatta á
síðasta ári nam 41,4 millj-
ónum punda samanborið
við hagnað Bakkavarar upp
á 14,2 milljónir punda fyrir
skatt.
Efla gæslu
vegna stuldar
Skólanefnd
grunnskólans í
Þorlákshöfn
segist sammála
um það að efla
þurfi öryggis-
og eftirlitskerfi skólans.
Halldór Sigurðsson skóla-
stjóri upplýsti á síðasta
fundi skólnefndarinnar að
nýlega hefði níu tölvum og
einum skjávarpa verið
stolið. Þess utan varaði
Halldór skólastjóri við því
að ástandið í húsnæðismál-
um yrði erfitt í haust þar til
nýbygging skólans verður
tibúin.
Hótel Frón
breiðir úr sér
Hótel
Frón óskar
nú eftir leyfi
borgaryfir-
valda til að
innrétta þrjár
hótelíbúðir á
fyrstu hæð bakhússins á
Laugavegi 24. Hótelið vill fá
að gera dyragat á vegg sem
liggur að næstu lóð til suð-
urs, sem er Klapparstígur
35A, og samnýta hæðina
tímabundið með því húsi.
Hótel Frón er nú þegar
með starfsemi á IQappar-
stíg 35A, Klapparstíg 33 og
á Laugavegi 22. Bergur Rós-
inkranz, eigandi Frónar,
segir hótelið smám saman
hafa stækkað með því að
bora sig milli húsa. Eftir
nýjustu stækkunina verði
hótelið 54 íbúðir og her-
bergi.
Samkeppnisráð telur að Heilsuverslun Islands, sem er í eigu LÍF
hf., hafi með birtingu viðtals við Dr. Luc Demule fyrir þremur
árum brotið ákvæði samkeppnislaga. Jafnframt er Heilsuverslun
íslands bannað að setja fram rangar fullyrðingar um vöru keppi-
nauta í starfsemi sinni.
Sigurður Þórðarson hjá Eðal-
vörum fagnar þvf innilega eftir ára-
langa baráttu að samkeppnisráð
skuli fallast á allar kröfur Eðalvara.
„Með þessu hefur samkeppnisráð
að mati okkar numið úr gildi óop-
inbert veiðileyfi á fyrirtækið og
þannig skapað okkur eðlilegan
starfsgrundvöll á nýjan leik,“ segir
Sigurður. „Við höfum nú endur-
heimt atvinnufrelsi okkar og þessi
niðurstaða leiðir til þess að Eðal-
vörur munu með tilstyrk dómstóla
sækja bætur til LÍF hf. fyrir sann-
anlegt tjón af máli þessu."
Forsaga málsins er að Eðalvörur
hafa um langt skeið flutt inn Rautt
eðalginseng frá Kóreu. Heilsu-
verslun.íslands, sem er deild í LÍF
auglýsti í febrúar árið 2001 að sá
munur væri á vöru sem þeir seldu
og ginsengi frá Kóreu, sem Eðal-
vörur eru umboðsaðili fyrir, að
þeir notuðu ekki skordýraeitur og
önnur kemísk efni. Notkun slíkra
eiturefna var að þeirra sögn mikið
vandamál hjá keppinautunum þar
á meðal Eðalvörum.
Mikið tjón
„Þetta olli fyrirtæki mínu stór-
kostlegu bráðatjóni," segir Sigurð-
ur. „Ég hafði orðið var við vissa
óvild Samkeppnisstofnunar í minn
garð en leitaði samt til þeirra til að
stöðva þessa aðför. Fyrir lágu
óumdeildar sannanir um að þetta
voru ekki bara ósannindi heldur
öfugmæli. Enda varaði Hollustu-
vernd ríkisins sterklega við vöru
LÍF sem hætti dreifingu hennar."
Sigurður segir ennfremur að
viðbrögð samkeppnisyfirvalda
voru mótsagnakennd. Þau leyfðu
samanburðarauglýsingu með full-
yrðingu um að vara Heilsuverslun-
ar íslands væri ómenguð andstætt
því sem gerðist um samkeppnis-
vörur frá Kóreu, þó þau hefðu
undir höndum sannanir sem
sýndu að báðar fullyrðingarnar
væru rangar. Þeir bönnuðu hins-
vegar fullyrðingu Heilsuverslun-
ar íslands á umbúðum vörunn-
ar, sem gekk mun skemur, um að
varan væri ræktuð á ómenguðu
landsvæði.
Vísað til umboðsmanns
Þessari niðurstöðu áfrýjunar-
nefndar samkeppnismála var vísað
til umboðsmanns Alþingis, sem
tók kröftuglega undir gagnrýni Eð-
alvara og taldi m.a. að verulegir
annmarkar væru á rökstuðningi
áfrýjunarnefndar samkeppnis-
mála. Ennfremur lagði umboðs-
maður fyrir áfrýjunarnefnd að taka
nýja ákvörðun í málinu kæmi fram
ósk um það frá Eðalvörum.
í samræmi við tilmæli umboðs-
manns Alþingis óskuðu Eðalvörur
svo eftir því síðasdiðið vor, að
áfrýjunarnefnd samkeppnismála
tæki málið fyrir á nýjan leik og
bannaði umrædda auglýsingu. Um
mikla hagsmuni var að tefla þar
sem Eðalvörur létu dreifingu vör-
unnar frá sér vegna auglýsingar-
innar og töldu ekki verjandi að
taka hana upp aftur
meðan sam-
keppnisyf-
irvöld
bönnuðu ekki auglýsinguna. Áður,
eða 2002, féll dómur í Hæstarétti
þar sem segir að um ólögmæta
samanburðarauglýsingu hefði ver-
ið að ræða, augljóslega byggða á
ósannindum. Hún hefði farið £
bága við nokkrar greinar sam-
keppnislaga og falið í sér órétt-
mæta árás á hagsmuni m.a. Eðal-
vara.
Sigurður Þórðarson Með
j hefur samkeppnisráð
að mati okkar numið úr
veiðileyfi á fyrir-
tækið.
„Með þessu hefur samkeppnisráð að mati okkar numið
úr giidi óopinbert veiðileyfi á fyrirtækið og þannig
skapað okkur eðlilegan starfsgrundvöil á nýjan leik.
Kona þjáðist að óþörfu þegar læknar gleymdu aðskotahlut inni í henni
Gleymdu dreni í sjúklingi
Ágreiningsmálanefnd heilbrigð-
isráðuneytisins hefur nú birt niður-
stöður í kærumálum frá 2000 og
2001. Úrskurðað var í 15 málum á
þessu tímabili og í flestum tilvikum
voru viðkomandi sjúkrastofnanir og
heilbrigðisstarfsfólk sýknað af því að
hafa gert mistök. í þremur málum
var hins vegar úrskurðað að mistök
hafi átt sér stað og er eitt þessara
mála sérlega neyðarlegt.
Málið varðar konu sem gekkst
undir aðgerð á Landspítalanum. Eft-
ir aðgerðina var kvörtunum hennar
um lasleika ekki sinnt og mátti hún
því þjást án viðbragða. Sýking kom í
skurðsárið og þar sem sýklalyf í æð
bar ekki fullnægjandi árangur var
skurðsárið opnað og hreinsað og
sett inn mjúkt gúmmídren (Pen-
rose). Þrátt fyrir sýklalyf kom gröftur
í sárið og eftir að það hafði verið
hreinsað var lagt inn tvöfalt Pen-
rose-dren sem saumað var fast við
húðina. Nokkru síðar var konan orð-
in hitalaus og sýklalyijagjöf því hætt
og hún útskrifuð. Annað drenið virt-
ist hafa losnað af sjálfu sér en hitt
drenið var stytt nokkuð. Sárið lokað-
ist ekki og við röntgenmyndatöku
kom í ljós að 10 sentimetra langt
Penrose-dren hafði orðið eftir í lík-
ama hennar.
Ágreiningsmálanefndin taldi „að
gera yrði þá kröfu til starfsfólks heil-
brigðisstofnana að eftirlit væri það
gott að ekki væri mögulegt að að-
skotahlutir yrðu eftir í líkama sjúk-
lings." Taldi nefndin ljóst að þján-
ingar konunnar eftir aðgerðina hafi
orðið meiri en ella vegna aðskota-
hlutarins. Nefndin taldi hins vegar
„ekki unnt að fullyrða um að hve
miklu leyti varanlegt heilsutjón"
konunnar mætti rekja til þeirra mis-
taka og að hve miklu leyti það staf-
aði af slæmu heilsufari hennar að
öðm leyti og þeim aðgerðum er hún
þurfti að gangast undir.
Nefndin taldi að mistök hefðu
orðið hjá starfsfólki Landspítalans
sem spítalinn bæri skaðabótaábyrgð
á. Nefndin taldi ekki „hægt að full-
yrða um að hve miklu leyti þetta hafi
valdið [konunni) varanlegu heilsu-
tjóni."