Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2004, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2004, Page 25
DV Fókus FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ2004 25 Jonsi og hinar ' stjörnurnar í Fame. Allir eru stjörnur í Fame, keyrslan er mikil og enginn klikkar. hann Bjami Haukur sem byrjaði ræðu sína á að banna mér að taka myndir og endaði sýninguna á því að skipa mér að koma mér út úr salnum. í nýskapaðri hrifnæmni minni fyrir leikhúsi ætlaði ég að taka viðtöl við leikara, dansara og söngvara sýning- arinnar. Fólkið sem hafði gert þetta fallega kvöld svo skemmtilegt. Þang- að tii hellisbúinn skreið úr greni sínu og kastaði mér úr helli sínum. Megi guð og gæfa gefa honum þau örlög að hann nái að þroskast til nútímalegri viðhorfa, áður en þessi fyrrum FM- plötusnúður kafnar úr listamanna- komplexum. Markaðsstjóri sýningar- innar afsakaði hann kurteislega enda hafði hann boðið mér að koma til þess að taka myndir og viðtöl, „stundum fara hugmyndir markaðs- fólks illa í listamennina," sagði mark- aðsmaðurinn þegar hann fylgdi mér Út í sólsetrið. freyr@dv.is Glæsilegur bæði I Fame og Flashdance hommi eða gagnkynhneigður Rómeó. Það fer hins vegar aldrei á milli mála að Sveppi elskar konur þó hann kæri sig ekki mn hlutverk Rómeó, sem hann vill að sé nútíma- legur villimaður en ekki rómantískur miðaldagaur. Það er nú alltaf svolítið notafegt að láta koma sér á óvart og ég held að öllum í þessari sýningu hafi tekist það, alla vega hvað mig varðar sem fullkominn leikhúsamatör. Nema kannski leikstjórinn, hellisbúinn Söngleikir eru að verða allsráðandi í starfsemi íslenskra leikhúsa. Páll Baldvin Baldvinsson skoðar dagskrána í sumar og veltir fyrir sér hvað er á seyði. Fyrir hundrað árum töluðu menn í Reykjavík um söngleikjafarganið þegar þeim þótti nóg um innihalds- litla smáþætti með skrautlegum bak- tjöldum, glæsilegum búningum og fléttu sem einatt snerist um stelpu og strák sem sungu. Hvað er í gangi, spurði ungur leikstjóranemi í fram- haldsnámi á meginlandinu í fyrra: jú, nýlokið er sýningum í bili á Chicago í Borgarleikhúsinu fyrir um 25 þúsund áhorfendur á ríflega 50 sýningar- kvöldum. Fyrr í vor slúttaði Grease í sama húsi á vegum fyrirtækis sem heitir 3 sagas í eigu Árna Vigfúss, Kristjáns Ra(gnars) og Bjama Þórs og vom áhorfendur langt í 40 þúsund. Piaf hætti í fullum gangi í Þjóðleik- húsinu og Paris by night í Borgarleik- húsi á vegum Felix Bergssonar. Framundan em frumsýningar á fjór- um söngleikjum. Fame byrjar annað kvöld. Fame er lame Nú þykir mörgum heldur púkalegt að hrista saman söngleik úr söng- prógrammi eftir sjónvarpsþáttum sem vom framhald af kvikmynd - en þannig er það. Þegar Alan Parker tók að sér að leikstýra kvikmynd um krakka í tilteknum menntó í New York og tókst vel til gat engan gmnað að úr yrði fimm ára framhaldsþáttur sem sópaði að sér verðlaunum, eink- um fyrir vinnu Debbie Allen sem lék og samdi dansa fyrir kvikmyndina og þættina. Það var síðan Debbie sem dró restina af kastinu til Evrópu og gerði úr öllu músikprógram sem fór um álfuna og rakaði inn peningum. Söngleikurinn sem frumsýndur verð- ur annað kvöld er síðgotungur úr sömu rollu. Meira um það seinna. Framundan eru... Fame er bara fyrsta sýningin í langri röð: á eftir koma Hárið (9. júlí held ég) í Austurbæjarbíó; Happy End eftir Elisabetu Hauptmann, Bert Brecht og Kurt Weill í íslensku Óper- unni (7. ágúst); Sweeney Todd eftir Stephen Sondheim í íslensku Óper- unni (8. okt.). Þá verða komnar í fullar gang Chicago, Piaf og Paris by night. Samkeppnin verður blóðug enda má áætla að frá 9. júlí verði minnst 3 þúsund sætí að seljast á söngleiki í hverri viku, frá 7. ágúst 4 þúsund og í byrjun september verður að selja í hverri viku yfir 5 þúsund sæti viku- lega á söngleiki! Þjóðin mun eyða tugum, hundruðum milljóna í söng- leikjaskemmtan á næstu sex mánuð- um - ugglaust hátt í milljarð á einu ári þegar upp er staðið í árslok 2004. Af hverju svona mikið í einu? Það er erfitt að útskýra hversvegna það hrúgast inn á markaðinn sams- konar stöff: á þessu stigi veit ég ekkert um Fame annað en það sem allir þekkja úr bíó og sjónvarpi. Það sem er merkilegt við það dæmi er ekki bara að Þrísaga er einkafyrirtæki án styrkja, undirleikur verður af bandi sem lækkar eitthvað kostnað á hvert sýningarkvöld og svo að Smáralind er búin að rigga upp nær áttahundruð manna sal með sviði fyrir sýninguna: svo stórt áhorf- endasvæði hefur ekki verið sett sam- an til lengri tíma í Reykjavík síðan Há- skólabíó reis 1961 (990 sæti) og þar áður Austurbæjarbíó 1946 (810 sæti). Sýning þeirra verður því að teljast tímamót í einhverjum skilningi. Þeir eru með miðlungskast á sviði - 20 leikara/dansara sem er frekar al- geng stærð á sólístum og kór í mörg- um verkum. Þeir hafa sett upp þræl- skipulagt auglýsingaplan og ætía að ná inn 30-50 þúsund áhorfendum sem gefa þeim í brúttótekjur á bilinu 100 til 150 miljónir. Athugið brúttó - þá á eftir að borga allt. Menn eru heppnir að halda eftir 20-30% af brúttóinnkomu. Monní, monní Það eru sem sagt peningar sem keyra mörg fíflin útí söngleikina í þeirri glópsku að það sé auðveldara að græða á þeim en öðru. Þess vegna er verið að vekja Hárið af tíu ára dvala og verður það í þriðja sinn sem það kemur upp á næstum-atvinnu- manna vegum í Reykjavík: 1970 í Glaumbæ, 1994 í Óperunni og nú í Austurbæjarbíó. Menn halda sem- sagt að það sé hægt að græða á söng- leikjahaldi á þessum örmarkaði. Ójú - sagan segir að hér má skrapa upp yfir 50 þúsund áhorfendur ef vel tekst til og markaðurinn er ekki mettur: Fiðlarinn í fyrra sinn (69-70) nærri 53 þúsund, Hryllingsbúðin í fyrra sinnið (85) nærri 51 þúsund. En það fer ekki alltaf þannig: algengara er að menn merji 20 þúsund áhorf- endur. Allt endarvel? Happy end verður frumsýndur á vegum Sumaróperunnar í ágúst og er það frumflutningur verksins á ís- landi. Það er gerólíkt dæmi og Hárið og Frægðin: Sumaróperan er losara- legur hópur undir stjóm Hrólfs Sæ- mundssonar söngvara sem hefur sett upp tvær barokk-óperur á liðnum sumrum. Þau ætía sér takmarkaðan sýningaríjölda, hafa þröngan stakk og em fyrst og fremst að þessu fyrir list- ræna hugsjón, þjálfun og ný verkefni. Þau kalla til hóp nýrra starfskrafta og eldri: þannig mun Kolbrún Halldórs- dóttir leikstýra og er ánægjulegt að sjá Kollu halda sínum fyrri ferh gangandi samfara þingstörfum. Sú sýning verð- ur í íslensku Óperunni eða Gamla bíó eins og húsið heitir. Sjá hér hve illan enda.. Nýráðinn leikhússtjóri á Akureyri ætíar svo að skutíast í bæinn og setja upp stórkostíegt verk eftir ókrýndan konung ameríska söngleiksins á síð- ari hluta 20. aldarinnar: Stephen Sondheim. Verður það fyrsta verk Sondheim á íslandi og meira að segja sungið á íslensku. Það er ekki sjálf- sagt. Sondheim á langan feril að baki, nær hálfa öld, og hefur skrifað fjölda söngleikja sem em rólega að síga inn í verkefniskrá óperuhúsa um allan heim. Hann er brilljant tónskáld og yrkir ofaní línuna sem hann skrifar eða er það öfugt? - allavega sönglesið og tónmálið em eitt hjá Sondheim. Gísli Rúnar Jónsson þýðir verkið og fáa veit ég hæfari að takast á við frá- bært ljóðmál Sondheim. Glenniverk Það er flnn hópur nýrra krafta og eldri sem kemur að sýningu Óper- unnar, m.a. leikhússtjórinn á Akur- eyri, Magnús Geir Þórðarson, sem er þar búinn að segja upp öllum nema sjálfum sér og ætíar að bytja af krafti fyrir norðan - með því að leikstýra verkefhi fyrir annað kompaní í Reykjavík. Ég veit ekki hver er mestur asninn: Bjarni Damelsson ópem- stjóri, Magnús Geir sem vill alltaf gleypa heiminn eða formaður leik- húsráðs sem réði manninn sem leik- hússtjóra á Akureyri án auglýsingar. Alla vega em vinnubrögðin forkast- anleg og lýsa fullkomnu virðingar- leysi fyrir öllum starfsmönnum sem koma að málinu - og áhorfendum líka. Við skulum vona að Magnús Geir riflii ekki að neðan þegar hann er að glenna sig þetta milli landshluta í tvö full störf á sama tíma. Hverferá hausinn? Það er farin að safnast saman nokkur þekking í rekstri af þessu tagi: sumarsöngleikir komu hér á landi fram á ný 1994, höfðu sprottíð upp lítillega 1985, en tími þeirra var hér í kringum 1960. Þetta er aðeins öðm- vísi bransi: hann nýtir gjarnan ungt talent, leikara- söng og dansnema, jafnvel nýútskrifað fólk fullt af krafti og líkamlegri fullnægju að vera á sviði. Rekstur af þessu tagi verður gjama til í litíum ífumkvöðlafyrir- tækjum með ekkert eigið fjármagn og þótt upp safnist reynsla, hagnaður og há laun um stuttan tíma, er listin sú að kunna að sigla skútunni lengra. Það er sögulega séð mikil nauðsyn að hér spretti upp fyrirtæki sem em rekin alfarið á þeim forsendum að hagnast fyrst og fremst. Mér sýnist þeir þriggja sögu menn með frægðina hafa komið sér svo fyrir í Smáranum að þeir eigi sjens á því að ná saman endum. Við sjáum hver syngur lengst. Páll Baldvin Baldvinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.