Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Síða 4
4 MÁNUDACUR 19. JÚLl2004
Fréttir DV
Malarnámur við Geldingar-
nes Rannsókn lögreglunnar hef-
ur sérstaklega beinst að bílforum
sem fundust I námunni.
stráka
Lögreglan heldur áfram að leita að Sri Rahmawati, indónesísku konunni sem hvarf
fyrir um tveim vikum. Leitað var til björgunarsveita fyrir helgi en lögreglan sá ein
um leitina um helgina. Sigurbjörn Víðir Eggertsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
Lögreglunni í Reykjavík, segist vonast til að sjá fyrir endann á rannsókninni
innan tíðar. ______________
„Okkur miðar áfram og hljótum að vonast til
þess að sjá fyrir endann á þessu innan tíðar"
Jafnframt því sem leitað var að
Sri var skimað eftir ummerkjum
eftir 44“ Dick Cepec dekk sem voru
undir jeppa Hákonar Eydal. Engin
ummerki fundust fyrsta daginn en
á laugardaginn hélt leitin áfram.
Þrír sérfræðingar í sporrakningum
fóru í gegnum malarnámurnar
austan við Vesturlandsveg. Leitin
bar engan árangur en annað var
uppi á teningnum á Geldingarnes-
inu. í malar og grjótnámunni vest-
ast á Nesinu fundust skýr för eftir
44“ Deck Cpec jeppadekk. Lög-
regluhundur var kallaður til og sér-
fræðingur björgunarsveita í
sporrakningum. Ekkert meira
fannst þrátt fyrir mikla leit.
Við grjótnámuna var einnig
könnuð lítil bryggja. Engin jeppaför
fundust í nágrenni við hana en
jarðvegurinn á svæðinu er mjög
þjappaður eftir umferð vinnuvéla.
simon@dv.is
Leit lögreglunnar að Sri Rahmawati, indónesísku konunni sem
hvarf fyrir um tveim vikum, hefur engan árangur borið að sögn
Sigurbjörns Víðis Eggertssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. Leit-
inni var haldið áfram um helgina en ekki var notast við björgun-
arsveitir og þyrlur eins og fyrir helgi. Hákon Eydal, fyrrum sam-
býlismaður Sri, neitar enn að hafa átt nokkurn þátt í hvarfi Sri.
Búist er við niðurstöðu úr DNA-rannsókninni innan tíðar.
„Okkur miðar áfram og hljótum
að vonast til þess að sjá fyrir endann
á þessu innan tíðar," segir Sigur-
björn Víðir, sem hefur borið hitann
og þungann af rannsókn
málsins. Hann segir
að unnið sé í því
að kortleggja
ferðir Hákonar
Eydal en tveggja
vikna gæsluvarð-
haldi yfir honum
rennur út í
vikunni.
Leitin að Sri
hefur aðallega
farið fram á Kjal-
arnesinu. Nánar
tiltekið við
malarnám-
urgegntÁlfs-
nesi og á
Gelding-
a r n e s -
Hákon Eydal Situr I gæsluvarð
haldi vegna hvarfs fyrrum sam-
býliskonu sinnar.
inu. Hákon Eydal vann á Kjalarnes-
inu. Var múrarameistari við sex lóð-
ir. Það liggur því beinast við að hann
hafi farið á þann stað sem hann
þekkti.
Fimmtudaginn 17. júlí hafði
Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu-
þjónn hjá Lögreglunni í Reykjavik,
samband við björgunarsveitina og
og óskaði eftir aðstoð við leitina að
Sri. Klukkan fimm sama dag lögðu
tveir leitarhópar af stað. Annar
þeirra fór í Álfsnes og hinn í malar-
námurnar fyrir neðan Búhamra í
Kollafirði.
Um áttaleytið lauk leitinni í mal-
arnámunum og sameinuðust þá all-
ir um að leita í Álfsnesi. Klukkan hálf
ellefu var leit hætt.
Þeir tveir staðir sem lögreglan
skoðaði sérstaklega á Álfsnesinu
voru annars vegar ræsisbrunnur þar
sem búið var að spenna upp hespu á
loki. Hinn staðurinn er á Gunnunesi
við Þerneyjarsund. Þar eru
tveir slöngubátar geymdir og
var sá möguleiki skoðaður
hvort þeir hefðu verið notað-
ir í tengslum við málið.
9. júlí
Sigurbjörn Vlöir Eggerts-
son sem stjórnar rann-
sókninni segir hana
miða áfram.
10. júlí
Höröur Jóhannesson
yfírlögregluþjónn segir
að lögreglan sé enn í
sömu sporum og þegar
Hákon Eydal var
handtekinn á
þriöjudagsmorgun.
12. júlí
Lögreglan fjarlægði
vinnubíl Hákonar Eydal
og fólksbíl Sri Rahma-
wadi til rannsóknar.
13. júlí
Ekkert að frétta af
rannsókninni.
14. júlí
„Það er ekkert nýtt að
frétta afrannsókninni,"
sagði Hörður Jóhannes-
son. DNA-sýnin sem
flestir bjuggust við að
myndu berast eru sögð
koma siðar.
15. júlí
Ekkert nýtt að frétta af
rannsókninni. Hörður
Jóhannesson segir enga
skipulagða leit hafa farið
fram en lögreglan hafi
kannað ýmsa staði.
16. júlí
Þrýstingur á lögregluna
eykst. Um eftirmiðdaginn
kemur tilkynning þar
sem segirað leitað hafi
verið með þyrlu, björg-
unarsveitum og
lögregluhundum. Svæðið
sem leitað er á er
Kjalarnesið en þar vann
Hákon Eydal.
17. júlí — 18. júlí
Lögreglan heldur áfram
leitinni en án nokkurs
árangurs fram til þessa.
„Okkur miðar áfram,"
segir Sigurbjörn Víðir
Eggertsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn.
Kveikt
ívörubíl
Lögreglan á fsafirði köll-
uð að Stekkjargötu í Hnífs-
dal, í gærmorgun, en þar
hafði verið kveikt í vörubíl.
Hann er talsvert mikið
skemmdur eftir brunann
og ekki er vitað hver eða
hverjir voru að verki. Þá
varð bílvelta í ísafjarðar-
djúpi í fyrrinótt. Talið er að
ökumaður hafi misst stjóm
á bifreiðinni í lausamöl
með fyrrgreindum afleið-
ingum. Þrjú vom í bílnum
en þau sluppu ómeidd.
Flaggað í
hálfa stöng
Náttúruvaktin hvetur
fslendinga til að flagga í
hálfa stöng í dag. Land-
verðir og skálaverðir
flögguðu fyrst í hálfa
stöng víða á hálendinu
þennan dag til að mót-
mæla undirritun viljayfir-
lýsingar Alcoa og stjóm-
valda um álver í Reyðar-
firði 2002 sem og óaftur-
kræfum náttúmspjöllum
vegna Kárahnjúkavirkjun-
ar. í ffétt ffá Náttúmvakt-
inni um málið, en vaktin
er baráttuhópur um nátt-
úmvemd og virkara lýð-
ræði, segir að landverðir
hafi goldið fyrir að setja
skyldur sínar við náttúm
landsins ofar hlýðni við
stjórnvöld.
Tíu ára í
sjálfsheldu
Hjálparsveit skáta í
Hveragerði var kölluð út kl.
11.55 á laugardaginn eftir
að tiUcynning hafði borist
um að tíu ára strákur væri í
sjálfsheldu í klettum fyrir
ofan ölfusborgir. Þegar
björgunarsveitarmenn vom
komnir á staðinn, nokkrum
mínútum eftir útkall, höfðu
tveir sumarhúsagestir kom-
ist til stráksins og voru byrj-
aðir að hjálpa honum nið-
ur, sem tókst að lokum
með aðstoð björgunar-
sveitarmanna og var útkall-
inu lokið á 25 mínútum.
Björgunarsveitarmenn
beina þeim tilmælum til
foreldra að varúðar sé gætt
þegar börn em við leik í
klettum og stórgrýti.
Stórir menn breytast líka í litla
Nú er Svarthöfði vissulega
þannig gerður að hann er hrifinn af
sterkum leiðtogum. Stórum og
stæðilegum foringjum sem þeysast
áffam sama hvað það kostar. Hafa
sýn og kjark til að láta hana verða að
veruleika. En þegar Svarthöfði lítur
yfir stjórnmálaástandið á íslandi
verður honum hálfóglatt yfir því
hversu veiklulegur leiðtoginn mikli
er þessa dagana.
Já, Svarthöfði telcur ekki undir
það sjónarmið margra að Davíð
m
Svarthöfði
Oddsson sé ógurlegur karl sem berji
sitt fólk áfram og fái öllu sínu fram.
Enda er það vægast sagt fáránleg
fullyrðing þegar reynsla undan-
farinna mánaða sýnir að Davíð gæti
varla stýrt nemendafélagi grunn-
skólans á Selfossi svo vel ætti að
vera. Hann er sífellt að reyna að
breyta fjölmiðlalögunum sfnum til
að þóknast samstarfsfólki sínu. Það
Hvernig hefur þú það
„Ég hefþað bara mjög gott ísveitasælunni,"segir Birgitta Jónsdóttir, rithöfundur og
skáld. „Ég erhérf rjómablíðunni íReykholti þar sem ég sit undir styttunni afSnorra og
horfi á drengina mína ærslast og borða ís. Ég er að yfirfara skáldsöguna mína sem kemur
út íhaust og við höfum notið þess í botn að vera til,"segir Birgitta og hlær.
er af sem áður var. Fyrir örfáum
árum síðan hefði hann komið þessu
í gegn leikandi létt. Eins og að drekka
vatn. En nú hamast greyiö eins og h't-
ill smástráJcur sem vill fá að horfa á
bannaða mynd í sjónvarpinu.
Ja, á dauða sínum átti Svarthöfði
frekar von en að Jfinn mildi og ást-
kæri leiðtogi breyttist í lítinn strák-
Ung. Því Davíð var einu sinni góður,
svo ósköp ágætur. Einu sinni var
hann stór kall sem Svarthöfða leist
ágætíega á. Hann kom sínu í gegn
sama hvað tautaði og raulaði. Ef ein-
hver vogaði sér að rífa kjaft var sá
hinn sami umsvifalaust sleginn
niður. Ekld ósvipað þeim stjómar-
háttum sem stundum em kenndir
við Svarthöfða.
Það er af sem áður var.
Svaithöfði