Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Page 9
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 19. JÚLl2004 9
Aukið eftirlit
í Firðinum
Lögreglan í Hafnarflrði
vill, nú sem endranær,
hvetja íbúa til þess að íylgj-
ast vel með og láta vita um
grunsamlegar mannaferðir.
Lögregla hefur kappkostað,
til dæmis með aukinni
notkun ómerktra bifreiða,
að hafa eftirlit sem mest í
íbúðahverfum og á svæð-
um þar sem innbrot hafa
verið tíð. Samvinna lög-
reglu og íbúa er og eitt
lykilatriða í þeirri viðleitni
að fækka innbrotum og
þjófnuðum.
Fjölmenni á
ísafirði
Siglingadagar á ísa-
flrði stóðu ýfir um helg-
ina og er það mál manna
að vel hafi tekist til að
Íiessu sinni. Lögreglan á
safirði hafði ekki ná-
kvæma tölu á fjölda
gesta en sagði að mikið
hefði verið um manninn
yflr helgina og í gær var
enn mikið af fólki. Meðal
þeirra sem skemmtu
Vestfirðingum var Kalli
Bjarni ídolstjarna, sem
eitt sinn var sjómaður og
bjó áður í Bolungavík.
Almenningur
á klámhátíð
Fyrsta klámmyndahátíð
á Bretlandseyjum stendur
fyrir dyr-
um í
London í
septem-
bermán-
uði og
hefur al-
menn-
ingi þar i' landi verið boðin
þátttaka á henni. Xplicit-
kvikmyndahátíðin býður
öllum sem vilja að koma
með heimamyndir sínar á
hátíðina og í boði eru verð-
laun og kvikmyndasamn-
ingur fyrir bestu heima-
myndina. Amanda Kiss
einn af aðstandendum há-
tíðarinnar segir að hátíðin
sé tímamótaatburður í
Bretlandi þar sem hún sýni
að kynlíf er ekki lengur
bannorð í landinu.
Nóg
af rækju
Grænlenskir rækjutogar-
ar eru fengsælir ef marka
má þann afla sem tveir
þeirra komu með til Siglu-
íjarðar fyrir skemmstu.
Þannig kom Regina C frá
Nuuk í síðustu viku með
um 610 tonn af frystri
rækju. Fiskifréttir hafa eftir
F. Steinar Svavarssyni,
gæðastjóra Þormóðs
ramma-Sæbergs að þessi
afli hafi fengist við vestur-
strönd Grænlands á 12 til
13 dögum. Meðalaflinn var
rúm 50 tonn á sólarhring.
í fréttatilkynningu frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar er því neitað að gosdrykkir
eigi þátt í því að sífellt fleiri íslendingar glíma við offitu. Laufey Steingrímsdóttir,
sviðsstjóri hjá Lýðheilsustofnun, segir að fyrirtækinu finnist sér ógnað og að það
sé ekki nýtt að matvælafyrirtæki reyni að beita stjórnvöld þrýstingi.
„Fyrirtækinu finnst sér einfaldlega ógnað,“ segir Laufey Stein-
grímsdóttir, sviðsstjóri hjá Lýðheilsustofnun. í fréttatilkynningu
frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar segir að „Gosdrykkir verði ekki
sakaðir um aukna líkamsþyngd íslendinga." Baráttan milli mat-
vælaframleiðenda og heilsustofnana sem hefur vakið athygli út í
heimi virðist nú hafa náð til íslands.
„Það er staðreynd að stóru mat-
vælafýrirtækin út í heimi hafa beitt
miklum þrýstingi á stjórnvöld," seg-
ir Laufey og bendir á nýlegt dæmi
um sykur. I opinberum ráðlegging-
um frá ríkisstjóm Bandaríkjanna
stóð að sykur væri óhollur. Þetta
sættu sykurframleiðendur sig ekki
við á sama hátt og þegar Alþjóða
heilbrigðisstofnunin sendi frá sér
aðgerðaráætlun sem öll aðfidar-
ríkin skrifuðu undir.
„...þar var einnig varað við
sykri og
á afgerandi hátt,
segir Laufey.
„Sykur og gos-
drykkjaffam-
leiðendur í
Bandaríkj-
unum hót-
uðu því í
kjölfarið
að beita
sér fyrir
því að
Banda-
ríkin
hættu
að
styrkja
Alþjóða-
heUbrigðis-
stofnunina.
Þetta sýnir hve
baráttan er
hatrömm."
Offita er vaxandi vandamál Öl-
gerðin neitar því að gosdrykkir eigi
þáttl aukinni þyngd Islendinga.
Vaxandi
offita
Og nú virðist
ísland hafa bæst í
hópinn. Offita er
vaxandi vanda-
mál og segir Lauf-
ey að þó gos-
drykkir eigi ekki
einir sök á því þá
spUi þeir vissulega
mjög stóran þátt.
Ein af hugmynd-
um lýðheilsustofn-
unar er að koma á sérstöku sykurg-
jaldi. Það er ekki óþekkt að vömr
„Þetta sýnir hve bar-
áttan er hatrömm/'
sem eru hættulegar fóUd séu skatt-
lagðar meira en aðrar. Miklar álögur
eru á sígarettum og tóbaki. Eitthvað
sem stjórnvöld telja að
minnki neysluna.
í tUkynningu Ölgerðar-
innar er sykurgjaldinu
mótmælt. „Rök hafa ekki
komið fram sem sýna
fram á að sérstakt syk-
urgjald muni leiða tU
bættrar heilsu lands-
manna,“ segir
Hörður Harðar-
son, aðstoðar-
maður forstjóra
Ölgerðarinnar, í
fréttatilkynn-
ingu þeirra.
Gos-
drykkir
drepa
Laufey
segist að
nokkru
leyti
sammála
því að
baráttunni
gegn offitu sé
farið að svipa
tíl þess tíma
þegar fólk byrj-
aði að átta sig á hættunni
við tóbak. í kjölfar þess sem
fleiri rannsóknir vora gerð-
ar sem sýndu skaðsemi tó-
baks bragðust tóbaksfram-
leiðendur við með sínum eig-
in rannsóknum sem oftast
sýndu hið gagnstæða. Nú er
ekki deUt um hættu reykinga
og viðvaranir eins og „Reyk-
ingar drepa“ sjást á hverjum
pakka.
Getum við búist við svipuðum
viðvörunum á gosdrykkjum og
skyndibitamat í framtíðinni?"
Laufey Steingrímsdóttir, sviðsstjóri hjá
Lýðheilsustof nun „Þaö er staðreynd að
stóru matvælafyrirtækin útíheimi hafa beitt
miklum þrýstingi d stjórnvöid"
„Nei,“ segir Laufey. „Matur lýtur Ég efast um að farin verði sú leið að
öðram lögmálum. Jafnvel gosdrykk- vara við sérstökum matvælum því
ur getur bjargað lífi við ákveðnar að- við þurfum öU á mat að halda.“
stæður en tóbak er aUtaf hættulegt. ' simon@dv.is
Allsherjarnefnd fundar í dag út af fjölmiðlamálinu
Framsókn fer ekki gegn forseta Islands
AUsherjamefnd kemur saman tíl
fundar í dag og þar á að ræða mögu-
lega lendingu í fjölmiðlamálinu.
Samkvæmt heimUdum DV fannst
engin raunhæf lausn á máfinu um
helgina en fleiri en einn möguleiki
var tU skoðunar. Davíð Oddsson for-
sætisráðherra og HaUdórÁsgrímsson
utanríkisráðherra era engu nær sam-
komulagi sem báðir flokkarnir geta
sætt sig við. Og innan Framsóknar-
flokksins snýst umræðan nú meir um
stjómskipunarþátt málsins en efni
fjölmiðlafrumvarpsins. DV hefur
heimUdir fyrir því að hluti ffamsókn-
arþingmanna muni ekki samþykkja
að farið verði gegn forseta fslands í
máUnu með þvf að samþykkja frum-
varpið með einhverjum málamynda-
breytingum.
Engir formlegir fundir vora
haldnir um helgina en farið var yfir
ýmis gögn og skoðað hvaða leiðir era
Stjórnarherrarnir Engin raunhæf lausn á málinu um helgina en fleiri en einn möguleiki var
til skoðunar.
færar. Þær era ekki margar meðan
Davíð stendur fast á sínu og fram-
sóknarmenn vUja ekki standa að
broti á stjómarskránni. Raunar voru
margir stjórnmálaleiðtogar og aUs-
heijamefhdarmenn úr bænum um
helgina þar á meðal Davíð Oddsson
sem ku hafa verið í laxveiði með Jóni
Steinari Gunnlaugssyni hæstaréttar-
lögmanni. Engum sögum fer af afla-
brögðum þeirra.
Litlar lfloir era taldar á að það ná-
ist að afgreiða frumvarpið úr aUs-
herjarnefnd tíl annarrar umræðu í
dag eins og stóð tU. Það gerist ekki
fýrr en formenn stjórnarflokkanna ná
samkomulagi. HaUdór og Davíð
munu hafa ræðst við í síma um mál-
ið en án niðurstöðu.
Samkvæmt heimUdum DV hefur
orðið áherslubreyting hjá framsókn-
armönnum í máUnu eftir að lög-
fræðiáfit lágu fýrir í nefndinni um
stjórnskipunarþátt málsins. Nú viU
hluti flokksins ekki samþykkja frum-
varpið, sama hvaða breytingar verða
gerðar á því, þar sem forseti íslands
muni þá beita málskotsrétti sínum
aftur. Honum sé beinh'ns stiUt upp
við vegg hvað þetta varðar. „Það er
athygfisvert að aðeins einn maður,
Davíð Oddsson, er viss um að forset-
inn geri það ekki,“ segir einn af þeim
þingmönnum Framsóknarflokksins
sem DVræddi við. „Og það getur ekki
verið hlutverk okkar að storka forseta
íslands á þennan hátt.“