Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Side 10
t-r mvncAu'u or a\ \r\/vn\ u/iKka
7 0 MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ2004
Fréttir DV
Bjarni er traustur og klár.
Hann er skemmtilegur ígóð-
um hóp. Málefnalegur og hóf-
stilltur en samt skeleggur í
pólitískri umræðu.
Bjarni er enn óreyndur og
það sést í yfírstandandi eld-
skírn. Datt inn í pólitikina
fyrirvaralítið og er enn
fíöktandi í hugmyndafræð-
inni. Frekar óákveðinn og á
það til að vera óþarflega
hörundsár.
„Bjarni er afskaplega þægilegur
samstarfsmaður sem
skemmtilegt er að vinna
með. Hann hefur sem
formaður allsherjar-
nefndar þurft að taka á
mörgum viðkvæmum málum á
undanförnum mánuðum. Það
erkannski einkennandi fyrir
Bjarna að hann hefur ekki látið
það taka sig á taugum þótt
stundum hafi hvesst allhraust-
lega Ikringum embættið."
Birgir Armannsson, samherjt íails-
herjarnefnd.
„Mér þykir sem hann komi ætlð
til dyranna eins og hann er
klæddur og Bjarni er
bæði vandaður og yfir-
vegaöur maöur. Þá hef-
ur hann mikinn kraft I
sér til að takast á viö
hlutina. Og I persónulegri viður-
kynningu er hann mjög
skemmtilegur sögumaður og
hefur gaman afað segja sögur.
Og siðast en ekki slst er Bjarni
mjög góður faðir sem er
kannski einn helsti kostur hans I
mínum augum."
Asdls Halla Bragadóttir, bæjarstjóri I
Garðabæ.
„Bjarni er Ijúfur og skemmtileg-
ur drengur þótt mér llki kannski
ekki viö stjórnmála-
skoðanir hans. Hann er
hinsvegar prýðilegur I
öllum samskiptum og
það hefur veriö gott að
kljást við hann I allsh-
erjarnefnd. Bjarni er glöggur
maður og snöggur að átta sig á
hlutunum. Og hann hefur góða
yfirsýn yfir þau mál sem hann
hefur á sinni könnu á hverjum
tlma."
Össur Skarphiðlnsson andstæðingur I
allsherjarnefnd
Bjarni er fæddur I Reykjavlk 26.jan. 1970,
sonur hjónanna Benedikts Sveinssonar hrl.
og Guðríöar Jónsdóttur húsmóður. Hann er
kvæntur Þóru Margréti Baldvinsdóttur flug-
freyju og eiga þau tvö börn.í
Tölvuleikur
um smokka
Landlæknisembættið
hefur stofnað til smokka-
leiks. Verðlaun standa til
boða þátttakendum í
leiknum sem formlega
var opnaður á veraldar-
vefnum nýlega. Smokk-
urinn er eina getnaðar-
vörnin sem komið getur í
veg fyrir kynsjúkdóma-
smit. Leikurinn gengur út
á að skjóta með smokka-
byssu á kynsjúkdóma-
veirur og sæðisfrumur.
11.500 manns sóttu
heimasíðu leiksins á
fyrstu fimm dögunum.
Burðardýr sem flytja fíkniefni til íslands verða sífellt fjölbreyttari í þjóðfélagsstöðu
og aldri. Þau fá borgað um 300 til 500 þúsund krónur fyrir flutninginn. Ólétt kona
er nú í gæsluvarðhaldi fyrir tilraun til fíkniefnasmygls og óttast Jóhann R. Bene-
diktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, að blindir og fatlaðir séu næstir.
niæsl flytja blindir og
latlaöir fíknielni til íslands
Nú situr í gæsluvarðhaldi hér á landi ung, ólétt móðir frá Síerra
Leóne, fátækasta rfld jarðar. Hún kom hingað til lands sem
burðardýr eiturlyfjasala í von um skjótfenginn gróða og sagðist
hún hafa komið hingað til lands til að selja sig. Löggæslumenn á
Keflavíkurflugvelli eru búnir að koma tæplega fjörutíu burðar-
dýrum á bak við lás og slá á síðustu þremur árum
„Ef eitthvað er þá er það
fjölbreytnin sem er höfð að vopni.
Við erum að tala um meira aldurs-
bil en áður, karlar jafnt sem konur.
Eldra fólk var hér áður fyrr ekki tek-
ið fyrir fíkniefni og þeir eru meira
að segja farnir að nota óiétta konu.
Maður spyr sig, ætla þeir næst að
fara að nota blint fólk og fatlað fólk
eða fólk með ungabörn?" segir Jó-
hann R. Benediktsson, sýslumaður
á Keflavíkurflugvelli.
Síðustu tvö til þrjú ár hefur það
verið mjög áberandi að seljendur
og kaupendur noti burðardýr. Jó-
hann segir að ísienski innflytjand-
inn sem skipuleggur fái oft burðar-
dýr sem seljandinn útvegar með í
pakkanum og að burðardýrin fái
borgað á bilinu 300 til 500 þúsund
krónur fyrir burðinn. Hann segir
einnig að oftast hafi burðardýr lítil
tengsl við seljendur og kaupendur.
Burðardýr í veikri þjóðfé-
lagsstöðu
„Að sjálfsögðu eru undantekn-
ingar, inn á milli eru atvinnuburðar-
menn eins og Þjóðverjinn sem við
„Hérna í gamla daga
voru fyrst stoppaðir
menn í leðurjökkum
með hring í eyranu en
sútíðerliðin."
tókum um daginn. Hann hafði útlit-
ið með sér og var mjög kaupsýslu-
legur í úthti. En alla jafna eru burð-
ardýrin fólk í mjög veikri þjóðfélags-
stöðu og menn virðast vera að nýta
sér neyð þessa fólks og fá það út í
brotastarfsemi. Fólkið veit að það er
að brjóta af sér en það er þessi freist-
ing um skjótfengan gróða sem er
allri annarri hugsun yfirsterkari."
Aðspurður hvort þeir miði út
sérstakt fólk segir Jóhann að burð-
ardýrin séu ekki endilega fólk sem
er eitt á ferð og beri sig illa: „Aðferð-
irnar við innflutninginn verða alltaf
flóknari og okkar vinna er að sama
skapi flóknari líka. Hérna í gamla
daga voru fyrst stoppaðir menn í
leðurjökkum með hring í eyranu en
sú tíð er liðin."
Jóhann R. Benediktsson Sýslumað-
urinn á Keflavíkurflugvelli segir lög-
gæsiumenn í Leifsstöö hafa komið tæp-
lega fjörutíu burðardýrum á bak við iás
og slá slðustu þrjú ár.
Eins og að stífla bæjar-
lækinn
Jóhann telur ástæðuna fyrir því
að fíknieftiainnflytjendumir þurfi sí-
fellt að endurskoða aðferðir sínar
vera góðan árangur þeirra í að leggja
hald á fíkniefni: „Við erum búnir að
koma á fjórða tug burðardýra á bak
við lás og slá á síðustu þremur árum.
Götuverð þeirra fíkniefna sem við
erum að leggja hald á flugvellinum
skipta tugum, jafnvel hundruðum
milljóna á ári. En sú áskorun sem við
stöndum fram fyrir núna er að ná
oftar í seljenduma og kaupend-
urna," segir Jóhann. „Við erum
stöðugt að þróa okkar aðferðir og
þeir sínar. Þessi barátta er eins og
að stífla bæjarlækinn - um leið og
við stíflum á einum stað lekur vatn-
ið á öðmm stað. Þetta er slagurinn
endalausi. Við getum samt ekki
nema glaðst yfir árangrinum. En
við getum því miður ekki útskýrt
nákvæmlega hvernig við náum
þessu magni af efnum sem raun er,
þannig að við þurfum að gleðjast í
hljóði innra með okkur," sagði
Jóhann.
rap@dv.is
Flestir sem eftir voru í borginni voru rólegir um helgina
Synti til Engeyjar út af forræðisdeilu
Helgin í höfuðborginni var með
rólegra móti bæði hjá slökkviliðinu
og hjá lögreglunni. Slökkviliðið fór
að sögn í tvo vatnsleka á sunnu-
daginn.
í Hafnarfirði bar lítið til tíðinda.
Eitthvað var um hávaðaútköll og
þótt fólk hafi verið létt á hraðanum
urðu engin bílslys. Þá var einn
mældur á 130 kílómetra hraða og
að auki sjö aðrir stöðvaðir fyrir of
hraðan akstur. Tveir voru teknir
fyrir ölvunarakstur. Lögreglan f
Kópavogi kvaðst engan áberandi
hraða hafa mælt og að helgin hafi
verið mjög róleg. I Reykjavík voru
engar stórar uppákomur, einhver
slagsmál í bænum og voru höfð af-
skipti af því. Tveir einstaklingar
þurftu að gista í fangageymslum
lögreglunnar. Að venju var mikið
farið í heimahús út af hávaðaút-
köllum, alls 17 skipti, og sjö sinn-
um vegna ónæðis utandyra. Fimm
voru teknir vegna ölvunaraksturs
og fjórir vegna hraðaksturs aðfara-
nótt sunnudags. Tveir menn fóru í
sjóinn. í annað skipti synti maður
út í Engey, en lögreglan kvað hann
ekki hafa verið ölvaðan. Hann gaf
DV þær skýringar að hann hefði
misst forræði yfir barni sínu og
synti til að sefa harminn. Hann
hafði beðið vin sinn að geyma föt
sín, en vinurinn taldi að hann væri
að drukkna. Því hringdi hann á lög-
regluna. Sundmaðurinn kvaðst
afar óhress með að lögreglan skyldi
sækja hann, því helst hefði hann
viljað klára sundsprettinn.
Hitt atvikið var þegar maður féll
á milli skips og bryggju, en hafðist
við í sjónum í hálftíma áður en
hann náðist upp úr.