Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Síða 21
DV Sport
MÁNUDACUR 19.JÚU2004 21
Porto vill 2,6
milljarða fyrir
Carvalho
Forráðamenn Porto hafa
gefnið það út til spænska
stórliðsins Real Madrid að
portúgalski vamarmaðurinn
Ricardo Carvalho verði ekki
seldur fyrir minna en 20
milljónir punda (2,6 mill-
jarða íslenskra króna). Car-
valho, sem stóð sig frábær-
lega með Porto í meistara-
deildinni og með portú-
galska landsliðinu á EM, er
ofarlega á óskalistanum hjá
JoseAntonio Camacho,
þjálfara Real Madrid, en
hann fer ekki frítt - það er á
hreinu.
Danska
landsliðið í
verkfall
Svo gæú farið að
danska knattspyrnu-
landsliðið verði í verk-
falli þegar liðið leikur
sinn fyrsta leik í undan-
keppni HM 2006, gegn
Úkraínu 4. september.
Leikmenn eru ósáttir
við ákvæðið um
uppeldisbætur í
félagskiptareglum FIFA
og hafa stefiit danska
knattspymu-
sambandinu.
Launasamningur
dönsku landsliðsmann-
anna rennur út 1. sep-
tember næstkomandi
og forráðamenn danska
sambandsins segja það
Ijóst að ekki verði samið
við menn sem eru á
sama U'ma að draga þá
fyrir dómstól. Ef Danir
mæta ekki til fyrsta leiks
verður þeim vísað úr
keppninni.
Drogba
líklega til
Chelsea
Forráðamenn Marseille
virðast vera búnir að sætta
sig við að missa fiamhetjann
snjalla Didier Drogba til
Chelsea en Jose Mourinho,
knattspymustjóri Chelsea,
hefur lagt mikla áherslu á að
fá kappann til liðsins.
Chelsea hefur þegar boðið
átján milljónir punda í
Drogna en talið er að félögin
sættist á 24 milljónir punda.
Marseille keypú Drogba á
fjórar milljónir punda fyrir
ári frá Guingamp og mun því
græða tuttugu milljónir
punda á kappanum, nokkuð
sem kemur sér afskaplega
vel fyrir félagið sem á í
miklum
fjárhagsvandræðum.
Það var mikil spenna og dramatík á lokadegi opna breska meistaramótsins í golfi.
Ernie Els tókst að knýja fram umspil gegn Todd Hamilton þegar hann náði fugli á
17. holu. í umspilinu var það síðan Hamilton sem stal senunni á 17. holu.
Ernie Els var tveim höggum á eftir Hamilton þegar aðeins tvær
holur voru eftir. Els minnkaði muninn í eitt högg með
glæsilegum fugli á 17. holu. Hamilton fór síðan 18. holuna á
skolla meðan Els paraði. Varð því að grípa til bráðabana og
héldu margir að þar myndi reynsla Els skila honum sigri.
Taugar Hamiltons voru þandar
til hins ýtrasta á 18. holunni og hann
mátti þakka fyrir að tapa ekki
móúnu þar. Upphafshöggið fór í
kragann hægra megin og þaðan
skaut hann í áhorfendur vinstra
megin. Hann náði síðan að redda
sér fyrir horn og tryggja
bráðabanann.
Þar náði Els ekki að spila 17.
holuna eins vel og nokkrum
mínútum áður. Hamilton urðu aftur
á móti ekki á nein mistök þar og fór
Hamilton holuna á þremur höggum
á meðan Els kláraði á fjórum.
Hamilton var síðan öryggið
uppmálað á 18. holunni á meðan Els
var í vandræðum. Fögnuður
Hamiltons var síðan einlægur í lokin
enda var þetta fyrsú sigur þessa 39
ára Bandaríkjamanns á stórmóti en
hann hefur verið atvinnumaður
síðan 1987.
Það er með hreinum ólíkindum
að Hamilton skuli hafa íhugað að
leggja kylfurnar á hilluna í desember
síðastliðnum en hann sér
væntanlega ekki eftir þeirri
ákvörðun að hafa ákveðið að halda
áfram í dag.
Stórkostleg stund
„Þetta er stórkosúeg stund fyrir
mig og fjölskyldu mína. Ég hélt að ég
væri búinn að klúðra þessu á
lokaholunni en sem betur fer tókst
mér að halda haus og klára þetta í
bráðabana," sagði Hamilton efúr
sigurinn en hann faðmaði bæði
kylfusvein sinn, Ron Levin og
eiginkonu sína innilega eftir að
sigurinn var í höfn.
Hamilton var frábær
Ernie Els óskaði keppinauti
sínum, Todd Hamilton, innÚega til
hamingju og sagði hann hafa spilað
frábærlega.
„Það er ekki hægt annað en að
dást af Hamilton, Mér fannst ég
spila vel en Hamilton var frábær og
átti sigurinn skilið."
Þeir náðu fuglum
Phil Mickelson leiddi mótið lengi
vel en hann endaði í þriðja sæti rétt
á eftir Els og Hamilton.
„Það var mjög erfitt að að spila
með þessum sterka hliðarvind sem
var í dag. Els og Hamilton voru að ná
fuglum en mér tókst það ekki. Þeir
spiluðu alveg frábærlega og ég tek
hatt minn ofan fyrir þeim.,“ sagði
Mickelson.
Tiger Woods varð í níunda sæti á
mótinu en hann bytjaði lokadaginn
vel, var inn í toppbaráttunni en
seinni níu holurnar gengu ákaflega
illa hjá honum og hann var úr
baráttunni þegar nokkrar holur voru
eftir.
henry@dv.is
Sigurinn í höfn Todd
Hamilton fagnar hér til hægri
þegar sigurinn er i höfn en til
vinstri sést Ernie Els kominn I
vandræði. Reuters
Leikmenn Arsenal borga ekki fullan skatt af tekjum sínum hjá félaginu
Milljónaspamaður á ári fyrir millana í Arsenal
Breska blaðið The Sunday Times
birti í gær frétt þess efnis að
leikmenn ensku meistaranna Arsen-
al spöruðu miOjónir punda í skatt á
ári hverju í gegnum leppfyrirtæki og
fjárfestingarsjóði í skattfrjálsum
löndum.
Blaðið heldur því fram að
leikmenn liðsins borgi aðeins
helminginn af þeim 40% sem fóUc
með þeirra innkomu borgar venju-
lega í Bretlandi en það sem gerir þó
máfið enn furðulegra er að þetta er
löglegt.
Endursoðunarskrifstofan De-
loitte & Touche, sem einnig er með
skrifstofur hér á landi, setti saman
þessa áætlun um undanskot frá
skattinum og hún gerir enskum
leikmönnum liðsins kleift að borga
aðeins 1% skatt af aukagreiðslum
sem þeir fá fyrir sigurleiki en
Sleppa vel með skattinn Thierry Henry og félagar hans hjá Arsenal sleppa vel frá skattinum
þökk sé snjöllum endurskoðendum.
leikmenn með erlent ríkisfang eins
og Thierry Henry og Robert Pires
þurfa ekki greiða krónu til
skattayfirvalda í Bretlandi.
Frjálslyndi demókratinn Norman
Lamb, sem er fer fyrir skugga-
ráðneyti fjármála í Bretlandi, er h'tið
hrifinn af þessu uppátæki ensku
meistaranna.
„Það er erfitt að kyngja því að
enskir landshðsmenn skuli ekki taka
meiri ábyrgð gagnvart landi sínu.
Það er algjörlega óásættanlegt að
leikmenn og lið vinni á þennan hátt,
sérstaklega þar sem hinn almenni
knattspyrnuáhugamaður getur ekki
nýtt sér þetta," sagði Lamb.
Jackie Charlton, fyrrum
landsliðsmaður Englands og þjálfari
írska landsliðsins, sagðist steinhissa
á þessum fréttum og fannst skrýtið
að skatturinn aðhefðist ekkert.