Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Síða 32
t
jr* Y 11 CJ^Jj í L) t Við tökum n
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
■— zjzjU uUJU
SHAFTAHUÐ 24, 105 REYKJAVlK[STOFNAÐ 1910 ] SÍMiSSOSQOQ
• Dorrit Moussaieff, forsetafrú
íslands, heillar flesta þá sem
hún á samskipti
við á ferðum
sínum og forset-
ans. Forsetafrú-
in þykir glaðvær
og alþýðleg og
vill jafnan leysa
hvers manns
vanda. Sagan segir að á dögun-
um hafi Dorrit verið á flugi milli
Keflavíkur og Lundúna þegar
hún gaf sig á tal við annan far-
þega á Saga Class. Sá sagðist
heita Björkog
vera tónlistar-
maður. Dorrit
hafði mikinn
áhuga á starfi
Bjarkar og bauð
henni aðstoð
sína. Hún hefði__________________
sambönd ytra til að koma Björk
á framfæri. Stjarnan mun hafl
talið það óþarft..
Free Fischer!
BOÐBY
f^SCHI
Fischer í fangelsi Sæmi rokk heldur
að hann deyi
„Mér finnst þetta alveg hrikalegt. Ég var búinn
að vara Fischer við þessu en hann sagði bara:
„They don’t dare to touch me, I went to Germany
and they didn’t dare to touch me there," segir
Sæmundur Pálsson, betur þekktur sem Sæmi
rokk, en hann og Bobby Fischer urðu miklir vinir
eftir að sá síðarnefndi tefldi heimsmeistareinvígi
hér á landi fyrir 32 árum gegn Boris Spasskí.
Fischer komst aftur í fréttirnar seinasta
fimmtudag þegar hann var handtekinn á flugvell-
inum í Tókýó en hann bíður þess nú að verða
framseldur til Bandaríkjanna þar sem hann á yfir
höfði sér allt að tíu ára fangelsi og margra milljóna
króna sekt fýrir að brjóta viðskiptabann sem sett
var á Júgóslavíu árið 1992 þegar hann tefldi þar
aftur gegn Spasskí. „Þeir eru að elta sérviturt sjení,
Hann er svolítið sérstakur, það verður ekki af
honum tekið en það er hægt að gera hlutina öðru-
vísi. Málið er að þegar honum var sent skeytið á
sínum tíma um að hann mætti ekki keppa í
Júgóslavíu, reif hann bréfið í beinni útsendingu
og það var eins og hella bensíni á eld. Að sjálf-
sögðu var þetta samþykkt Sameinuðu þjóðanna
en jafnvel þeim fannst alltof hart vera að Fischer
gengið.” Sæmundur segist hafa rætt ástandið við
Spasskí og aðra skálcmenn þegar þeir komu
hingað og allir hafi verið sammála um að kross-
ferð bandarískra stjórnvalda væri óréttlát og
ómannúðleg. Fischer er núna enn í haldi í Japan
og bíður þess að verða framseldur til Bandaríkj-
anna en Sæmundur efast um að Fischer muni Ufa
fangelsisvistina af, kominn á 62. aldursár. „Allt
bendir til þess að hann verði framseldur. Þeir
sögðu að hann ætti von á tíu ára fangelsi og fjög-
urra milljóna lcróna sekt. Ég er ekkert viss um að
hann eigi þá peninga til, það er harla ólíklegt. Það
eru yfir 30 ár síðan hann keppti hér og þessi ár
hafa verið honum erfið fjárhagslega. Ég hef held-
ur ekki trú á því að hann lifi svona fangelsisvist af.
Þetta mun líklega ríða honum að fullu. En svona
er þetta með Kanann, hann lætur morðingja og
nauðgara ganga lausa en eltir svo taflmann uppi
sem er bara sjálfum sér verstur," segir Sæmundur,
sem heyrði síðast í Fischer í fyrra.
World Che
anjpioushii
A í .■l1,1A
ri'i
TttE WOW-D CHESS CHAMPtONSHlP
Boris Spasskí og Bobby
Fischer Hið fræga einvfgi í
Júgóslav/u árið 1992.Frönsk
yfirvöld ákváðu að kæra
Spasskíekki en hann ermeð
franskt ríkisfang.
Dönsuðu kringum
brennandi sófa
■'-rf.
Lögregla og slökkvi-
liðið voru kölluð út að
mótum Skólavörðustígs
og Bankastrætis kiukkan
hálfsjö að morgni sunnu-
dags vegna þess að
myndarlegur heimilissófi
stóð í ljósum logum á
miðri götunni. Um var að
ræða sófa sem nokkrir veislu-
gestir í heimahúsi í miðbæn-
um sáust bera um bæinn áður
en hann brann. DV barst til-
kynning um sófann klukkan 6.32 á haldnir
sunnudagsmorguninn og kvartaði vanþóknun sinni.
mótum Skólavörðustígs
og Bankastrætis
dansaði fullt fólk við
brennandi sófa.
sjónvarvottur
undan því að ekk-
ert væri gert í
brunanum þrátt
fyrir að hann gæti
dreift úr sér. Fólk-
ið dansaði kring-
um brennandi
sófann að
indíánasið. Síðar
kom slökkviliðið, en
margir viðstaddra,
sem flestir voru
ölæði, púuðu og lýstu
Siv með sex pundara
Siv Friðleifsdóttir var í gær í lax-
veiði þar sem hún setti í sex punda
lax á flugu. Systir hennar, Ingunn
Friðleifsdóttir veiddi 5,5 punda lax á
maðk. „Vorum við systumar ríg-
montnar af morgunveiðinni,” segir
Siv á vefsíðu sinni.
En hún gaf sér einnig tíma til að
fylgjast með umræðum um fjöl-
miðlamálið sem henni finnst þreyt-
% andi. „Náði að hlusta aðeins á
rabbþátt á RUV - Rás 2 þar sem Helga
Vala var að ræða við þá Árna Magn-
ússon, félagsmálaráðherra og Guð-
jón Ólaf Jónsson, varaþingmann
flokksins, um fjölmiðlaffumvarpið án
þess að nokkuð nýtt kæmi fram að
heitið getur. Svo virðist komið að
umræðan um þetta mál virðist end-
urtaka sig í sífellu. Spyrlarnir spyrja
sömu spurninganna aftur og aftur og
svörin eru endurtekin á svipaðan
hátt bæði hjá stjómarsinnum og
stjórnarandstæðingum, þ.e. lítiö nýtt
bætist við í umræðunni," segir Siv á
heimasíðu sinni.
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Verð frá kr. 298 pr.ltr.
J Útimálning
J Viðarvörn
J Lakkmálning
J Þakmálning
J Gólfmálning
J Gluggamálning
Sími 517 1500 • Sætún 4 • 105 Reykjavík
www.islandsmalning.is