Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1895, Qupperneq 6
i yista dálki til hægri handar st8ndur hitf forna íslenzka tímatal;
eptir því er árinu skipt í 12 mánuði Jmtugnætta og 4 daga um-
fram, sem ávallt skuiu fylgja jiriðja mánuði sumars; í því er
aukið viku 5. eða 6. hvert ár í nýja stíl; það heitir sumarauki
eða lagníngarvika.
Ariðl895 er sunnudags bókstafur: F. — Gyllinital: XV.
Milli jóla og löngu föstu eru 8 vikur og 5 dagar.
Leugstur dagur í lteykjavík 20 st. 56 m., skemmstur 3st. 58m.
Myrkvar 1895.
1. Almyrkvi á tungli nóttina milli 10. og 11. Marts, sýni'legur
á Islandi. I Reykjavík stendur myrkvinn yíir frá kl. 12.26'
til kl. 3.57', og er almyrkvi frá kl. 1.24' til kl. 2.59‘.
2. Sólmyrkvi 26. Marts, hefst í Reykjavík kl. 8.4' f. m. á
vesturrönd sólarinnar og hverfur af norðurrönd hennar kl.
9.44' f. m. Kl. 8.54' er myrkvinn mestur, og er þá hjerum-
bil i af þvermæli sólar að ofanverðu til hægri handar
myrkvaður. Myrkvi þessi er einnig sýnilegur í Noregi, á
Bretlandseyjum, útnofðurströnd Rrakklands og Spánar, í land-
norðurhluta Norðurameríku og Norðurheimsskautslöndunum.
í Norðurameríku verður myrkvinn mestur, og er þar J af
þvermáli sólar myrkvaður.
3. Sólmyrkvi 20. Ágúst, sjest ekki á íslandi, en er sýnilegur
norðast í Noregi, á Rússlandi, útnorðantil í Asíu og heims-
skautslöndunum þar norður af. Ailt að -j- af þvermæli sólar
er myrkvaður þar sem myrkvi þessi verður mestur.
4. Almyrkvi á tungli að morgni 4. Sept., og sjest upphaf hans
á Islandi. Hann stendur yfir frá kl. 2.32' til kl. 6.26' f. m„
almyrkvinn frá kl. 3.39' til kl. 5.20'. í Reykjavík gengur
tunglið almyrkvað undir við sólaruppkomu kl. 4f.
5. Sólmyrkvi 18. Sept., sjest ekki á íslandi, en er sýnilegur í
Ástralíu. Myrkvi þossi tekur yfir f af þvermæli sólarkringl-
unnar þar sem hann verður mestur.