Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1895, Page 23
síðustu mánuði ársins; hún skín þá skærast kringum 26. Okt. og
er lengst vestur frá sól 30. Nóv.
Mars gengur undir um hina fyrstu mánuði ársins hjerumbil
3 stundum eptir miðnætti, seinast í Júní um miðnættið, og nú
hverfur hann sýnum þangað til hnnn, eptir að hafa gengið bak
við sdl 11. Okt., kemur í Ijús á austurloptinu, og kemur hann
þú upp aðeins 2 stundum undan súl við ávslokin. Mars, sem er
auðþekktur á hinum rauða lit sínum, er í ársbyrjun á ferð í
Hrútsmerki; í miðjum Febrúar gengur hann inn í Uxamerki og
í miðjumMarts er hann 7° fyiir norðan aðalstjörnu merkis þessa,
(Aldebaran, Uxaaugað), sem einnig er rauð á lit. I miðjum
Apríl gengur hann inn í Tvíbura, og í seinni liluta JSÍaímánaðar
fer hann fram hjá Kastor og Pollux, fyrir sunnan þá. í byrjun
Júnímánaðar gengur hann inn í Krabbamerki. Við árslok er
hann kominn í Sporðdreka, og 14. Dec. gengur hann 1° fyrir
sunnan § scorpii. 25, Apríl er Mars að sjá I}0 fyrir norðan
Júpiter og 5. Júní 10 fyrir sunnan Venus. Við ársupphaf er
fjarlægð hans frá jörðu 17 mill. mílna, og vex hún síðan þar til
hún verður mest í Sept. og Okt., 52 mill. mílna; í árslokin er
hún 47 mill. mílur.
Jiípiter er á lopti alla nóttina um hina fyrstu mánuði ársins,
þangað til hann í byrjun Júnímánaður gengur undir um miðnætti
og síðan hverfur sýnum. 10. Júlí gengur hann bak við súl.
Síðan kemur hann í ljús á morgunloptinu, rís upp fyr og fyr,
seinast í Ágúst um miðnætti og í árslok kl. 5 á kveldin. Júpíter
er í Janúar á apturferð frá Tvíburum til Uxamerkis; þar snýr
hann við í miðjum Febrúar, og í Marts gengur hann aptur inn í
Tvíburamerki. I lok Ágústmánaðar er hann kominn inn í Krabba-
mcrki og er hann á austurferð í merki þessu það sem eptir er
árs. 18. Maí er hann að sjá 2° fyrir sunnan Venus.
Satúrnus kemur upp kl. 3 á morgnana við byrjun árs, síðan
æ fyr og fyr, þangað til hann þ. 24. Apríl er gagnvart súl og á
lopti alla núttina. í byrjun Júlímánaðar gengur hann undir um
miðnætti og hverfur nú að sýn. 2. Nóv. gengur hann bak við
sól, kemur eptir það í ijús á morgunhimninum og rennur upp
kl. 5 á morgnana við árslokin. Frá því í miðjum Febrúar og
þangað til fyrst í Júlí er Satúrnus á vesturferð á takmörkum
Metaskála og Meyjarmerkis; það sem eptir er árs er hann á
hreiíingu austur á við, og 1 árslok er hann kominn kippkorn inn
í Vogarmerki, 22. Dec. er hann að sjá -J-° fyrir sunnan
Venus.