Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1895, Blaðsíða 32
að þótt her þeirra væri skipt í margar sveitir, er fóru
sitt hverja leið, var þó allur herinn kominn sí og æ f
ákveðinn tima þangað, er höfuðorustan skyldi vera.
þessi nafnkunni herfræðingur var Moltke greifi,
formaður í æðsta herforingjaráði þjóðverja.
Helmuth KarlBernhard, greifi af Moltke, var fædd-
ur 26. dag októbermánaðar árið 1800, í Praschin, smá-
bæ í ríkinu Meeklenborg-Schwerin á Norður-þýzkalandi,
og var faðir hans foringi í herliði Dana, og fór því að
vonum að hann væri settur til náms í herfræði þegar
á unga aldri, enda má svo að orði kveða, að stórskota-
hríð og herbrestir væri vöggukvæði hans. Sama árið,
sem hann fæddíst, kváðu fallbyssudunur og bumbu-
sláttur við beggja megin Alpafjalla: Napoleon Bona-
parte ber á Austurríkismönnum við Marengo og Moreau
sundrar hersveitum þeirra við Hohenlinden. Sex
árum siðar er háð hin nafnfræga orusta við Austerlitz
og árið eptir hröklast Priðrik Yilhjálmur 3. Prússakon-
ungur á flótta undan hersveitum Napoleons keisara,
sem hefir tvístrað Prússaher við Jena og Auerstádt.
þegar Helmuth Moltke var 12 vetra að aldri, var
hann sendur í hermannaskóla í Danmörku. Tók hann
skjótt miklum framförum og komst í undirforingjastöðu
1819 á öndverðu ári. Bn sökum þess, að ekki var
mikils frama að vænta í Danmörku, fjekk hann lausn
hermennskunnar og gekk í lið Prússakonungs 12. marz
1822, því Prússland var þá farið, að rjetta við er
Napoleon var dottinn úr sögunni. A árunum 1823 til
1826 var Moltke við nám á hermannaskólanum í Berlín
Og fjekk brátt mikið orð á sig fyrir gáfur og kunnáttu,
sem ráða má af því, að hann var tekinn í herfor-
ingjaráðið árið 1832, að eins 32 ára að aldri. Arið
eptir var hann gerður premier-leutenant. Arið 1835
tókst hann ferð á hendur til Tyrklands og dvaldist þar
nokkur ár að áeggjun Mehmet Chosrefs pascha, her-
málaráðherra soldáns í þann mund. f>á rjeði fyrirTyrk-
landi Mahmud 2. (1808—1839) einn hinn atkvæða-
meiri af þjóðhöfðingjum Tyrkja á síðari öldum. Samt
sem áður var »sjúki maðurinn« illa til reika um þær
mundir: Grikkir höfðu brotizt undan, Prakkar og Eng-
lendingar höfðu molbrotið herskipaflota hans við Nav-
arino (27. okt. 1827) og Eiissar barið á Tyrkjum
(26)