Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1895, Side 42

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1895, Side 42
hann bjelt þvi áfism eigi að síður. Hann losnaði þó þaðan eptir fáein missiri, og tók þá (184)) við ritstjórn á prentuðu blaði, Pesti Sirlap, er veittist mjög djarflega oghlifðarlaustað keisarahirðinni i Yín og bennar fylgifiskum, hjelt kappsam- lega uppi vörn fyrir þjóðrjettindum Dngverja og flutti óskir þeirra og kröfur með eldlegum áhuga og í íögiu máli og mjög iburðarmiklu. Haustið 1847 var hann kosinn á þjóð- þing í Pest, gerðist forseti þingsins, en siðan formælandi mótspyrnuflokks stjórnarinnar þar og rjeð þar brátt lögum og lofum, en gat sjer jafnframt góðan orðstír meðal mót- stöðumanna sinna fyrir það, hve stillilega og göfugmannlega hann neytti rrælsku sinnar fyrir áhngamálum sínum, en það var þjóðernisjafnrjetti, tiúarfrelsi fyrir ókristna jafnt sem kristna — sjálfur var hann evangeliskar trúar—, skattaljett- ir á almúganum og afnám einkarjettinda höíðingjaljðsins og hins æðra kennilýðs. Yefurinn eptir, 3. marz, er frjettin barst um hrun konungsveldis á Prakklandi, flutti Knssuth langa ræðu og snjalla á þingi,— er síðan var kölluð „skírn- arræða stjórnbyltingarinnar i Austurrfki“—, umaðgeramenn á fund keisarans og heiðast ýmissa lagabóta, en þess fyrst og fremst, að skipað væri sjerstaklegt ráðaneyti fyrir Ung- verjaland með ábyrgð fyrir þinginu. J>að var samþykkt og hann kjörinn oddviti fararinnar, ásamt Batthyány, öðrum mesta mælskuskörung og stjórnvitring, er Dngverjar áttu þá. feirn fjelögum var fagnað forkunnar-vel, er þeir komu til Vínar, 15. marz, og veitt það er þeir beiddust. Hið ung- verska ráðaneyti komst á legg á 2 dögum síðar, og gerðist Batthyány formaður þess, en Kossuth fjármálaráðherra. Hann var þá eigi smáhugaðri en það, að hann vildi koma upp Magyara-stórveldi, en styggði með því aðra þjóðflokka i land- inu. A áliðnu sumri fór ráðaneytið frá völdum og þreif þá Kossuth i hendur sjer alræðisvöld á hátíðlegum þÍDgfundi. Hann var sundurgerðarmaður mikill og viðhafnar. Með frá- bærri atorku og röggsemi tókst honum á skömmum tima að koma á fót ungversku herliði og búa það sæmilega að vopn- um og vistum, en hleypti með mælsku sinni og ástsældar- þokka hamslausum byltingarhug og óbilugum vígamóð í þjóðina. Vinarmenn gerðu uppreisn um sumarið og flæmdu burtu keisarann, en hershöfðingi hans, Windischgrátz, sett- (36)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.