Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1895, Page 69

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1895, Page 69
frakkaverðið við skraddaratetrið; þá borgar honum hvort sem er aldrei einn eyri. 2. stúdent: Já, það segir þú satt, en hann er svo emstaklega vandaður maður, ao jeg vildi svíkja hann nm sem minnsta upphæð. B. Já — ekki vantar mig áræði. A. Lánaðu mjer þá 20 kr. * * A. : Góðan daginn! Ertu vaknaðnr, iagsmaður? B. : Já, jeg er vakandi. A. : Geturðu lánað mjer 2 kr.? B. : Nei, jeg er soíandi. * * Kennarinn: Getur þú sagt mjer, Anna litla, hvers vegna það er hentugast að hafa úlfalda til ferðalags í gegnuin eyðimerkurnar í Afríku. Anna litla: Vegna þess, að þeir þola bezt af öllum dýrum að deyja úr þorsta. T. G. Smásögur. Hermaðurinn nr. 83. Hermaður nokkur segir svo frá. Þegar jeg var um tvítugt var jeg við herælingar i Rendsborg, og komst þá í kynni viö æringja einn, sem alltaf var sí-spaugandi og kátur. Þar var og annar hermaöur, sem kallaður var nr. 83, nautheimskur og að því skapi ógætinn. Þegar deildarstjóri B. var eitt sinn með oss, á her- æíingum, tók hann að kvarta um stíflu í nefinu, streng í bakinu, tannpinu, fótakulda, gikt í öxlunum og fleiri kvilla, sem vanalega eru samfara þungu kvefi; gellur þá nr. 83 við og segir: »Þjer þuríið ekki annað en fara heim, leggja yður fyrir, láta súrt brauðdeig við fæturna, eða jeta 2 hagldakökur bleyttar í heitu vatni, svo þjer svitnið«. Það er á móti herreglum, að undirmenn tali til yfirboðara sinna þegar þeir eru vopnaðir; varð deild- arstjóri þess vegna æfur og reiður, og ákvað að nr. 83 skyldi þegar barinn 25 högg með reyrpriki; en samstund- is skall á ógurlegt þrumuveður með eldingum, svo að herdeildin riðlaðist og hver sem betur gat hljóp til að leita sjer skýlis, dimmdi svo mjög, að enginn fann ann- an, hversu hátt sem hann kallaði. En að 15 mínútum liðnum ljetti óveðrinu og ljet þá deildarstjóri blása apt- ur saman liðinu. Þegar viö svo vorurn allir komnir (59)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.