Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2004, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST2004 kAldC Helgarblað DV ')AGl'iR ?R 'ÁGÚST THmSK Gísli Snær Erlingsson er staddur hér á landi en hann hefur veriö búsettur í Japan um árabil. DV greip hann glóð- volgan og spurði hann út í japanska fyndni, japanskar konur og hvernig ísland kemur honum nú fyrir sjónir. Yfir hann helltust ljúfar minningar en það sem stendur upp úr er offituvandi, Qármálasukk og sóðaskapur. Gfsli Snær Erlingsson Hefur dvaliö langdvölum erlendis, er búsettur IJapan og fékk sjokk I þegar hann kom heim til Islands: Fyrir augum voru spikfeitir fslend- ingar og sóðalegir en afsiappaöir. Japanskar konur ótrúlega snjallar og sflórna hví sem þær vilja „Japanskur húmor er baneitraður og drepfyndinn. Þeir eru svo fyndnir að stundum fara þeir langt yfir strik- ið og verða... jahh, hvernig á maður að orða það? Mótfyndnir eða and- fyndnir?“ segir Gísli Snær Erlingsson kvikmyndagerðarmaður. Hann er staddur á íslandi nú um stundir en hefur fest rætur í Japan, í „smábæn- um" Tókýó. Þar hefur hann verið um árabil og þrjú ár og átta mánuði frá því hann kom til Islands. Hin yfir- iýsta ástæða íslandsfararinnar er sú að félagi hans til margra ára, Ásgrím- ur Sverrisson, er nú að vinna viðtals- þætti fyrir sjónvarp við tíu íslenska kvikmyndagerðarmenn. Gísli Snær er einn þeirra en eftir hann liggja Stuttur frakki, Benjamín dúfa og Ikingut. Hann notar að sjálfsögðu tækifærið og hugar að upprunanum, rótunum. Með geit í litlu herbergi En við erum að ræða japanska fyndni. Gísli, sem snemma gat sér gott orð sem húmoristi þegar hann var umsjónarmaður Poppkorns fyrir margt löngu ásamt Ævari Erni Jós- epssyni, er rétti maðurinn til að spyrja út í japanska kímnigáfu. „Já, þeir fara stundum langt yfir strikið. Þetta gerist aðallega í sjónvarpinu. Þeir geta átt það til að læsa mann í marga mánuði inni í herbergi með geit. Svo kúkar geitin, pissar og gerir það sem geitur gera. Og maðurinn þarf að kaupa mat, sjá fyrir sér og geitinni með afsláttarmiðum. Reyna að þrauka við þessar erfiðu aðstæður og svo er því sjónvarpað. Þetta finnst þeim fyndið japönunum en húmor- inn er misskilinn víða á öðrum menningarsvæðum, menn átta sig ekki á að þetta er grín og taka til marks um eins konar villimennsku." Og Gísli er þeirrar skoðunar að þetta sé fyndið. Hann segir Japani vissulega feimna við upphaf kynna, kannski lfkt og íslendingar eru, en þegar veggurinn fellur þá breytist allt. „Maður situr viðskiptafundi yfir daginn en svo er farið og fengið sér bjórglas og grillpinnar snæddir. Þar opnar maður sig og sýnir sinn innri mann. Og menn segja sögur og brandara, engin viðskipú rædd og ef vel tekst til þá er farið í karaókí. Þar syngja menn saman og faðmast. Ef þetta gengur vel þá ertu kominn með viðskiptafélaga fyrir lífstíð." Og hér fá að fljóta með mikilvæg- ar upplýsingar. Að sögn Gísla Snæs þá má þekkja gott sake, hið japanska hrísgtjónavín, á því hversu líkt það er vatni á bragðið. „Gott sake á að smakkast eins og vatn." Klofinn persónuleiki í Japan starfar Gísli Snær að tvennu: Dreifingu barnamynda og svo auglýsingagerð. „Við kaupum norrænar barnamyndir, talsetjum þær og endurhönnum, endurútgef- um og seljum. Fyrirtækið heitir Ansur pictures. Ansur er stafurinn A í rúnakerfinu, jákvæð rún sem stend- ur fyrir Óðinn." Gísli segir þetta ganga ágætíega og mest er selt í skóla en einnig í stóra bókabúðakeðju sem er um allt Japan ogsérhæfir sig í erlendum tímaritum. Svo vorum við, skömmu áður en ég fór, að gera samning við fyrirtæki sem er tengt Disney sem lætur pen- ing í þetta. Fyrirtækið hefur yfir að búa meðlimum sem kaupa það sem Mikki mús vill að þeir kaupi. Óneit- anlega opnar það betri möguleika á að selja okkar ágæta efni." Aðspurður hvort hann sé ekki orðinn vellauðugur segir hann svo ekki vera. „Á ekki krónu." Tekið hef- ur eitt ár að koma fyrirtækinu al- mennilega á koppinn, skref fyrir skref en í því felast miklir möguleik- ar. Ber þá að skilja Gfsla sem svo að hann sé alfarinn frá íslandi? „Jahh, Japan er mitt heimaland. Maður er klofinn persónuleiki. Erfitt að fara frá Japan. Ég á tvö heima- lönd. Hér eru allir svo rólegir að það er allt í lagi að eiga eitt aukaheima- land. Alltaf gott að geta komið heim til íslands. Hér er þetta fast land." Japanskir viðskiptahættir flóknir Kona Gísla, Miyuki, er forstjóri fyrirtækisins. „Forsenda þess að ná árangri í Japan er sú að þar sé í for- svari Japani á heimamarkaði. Ég er ekkert að hafa mig í frammi varðandi viðskiptafundi og slfkt. Þeir fara fram á japönsku, á japanska vísu og með japönskum andlitum. Þeir eru alltof flóknir fýrir mig að skilja enda liggur merkingin í því sem ósagt er. Maður spyr: Hvernig skildirðu þetta? Og fær þau svör að þetta sé nokkuð sem ekki sé hægt að útskýra. Sérstaklega ekki fyrir mér. Þú verðir að vera fæddur í Japan til að skilja þetta." Fyrir utan Ansur pictures sinnir Gísli Snær annarri framleiðslu, aug- lýsingagerð fyrir ýmis stórfyrirtæki svo sem; Sony, Ricoh, Adidas og Guthy-Renker sem er stærsti stjón- varpsmarkaður í heimi og hefur ný- lega verið opnaður í Japan: Seldar snyrtivörur og fegurðarsmyrsl fyrir konur í stórum stfl. Gísli Snær játar það fúslega áð honum gengur treglega að tileinka sér japanska tungu. „Ég hef ekki gefið mér tíma til að læra málið. Og það hefur gefist mér best að þykjast ekkert tala málið. Og Japönum líkar það ágætlega, þegar þeir eru eiga í viðskiptum við erlenda menn að tala enskuna. Og ég held mig bara við það." Silkimjúk þoka, Sólin og Snærinn Gfsli Snær og Miyuki kynntust í tengslum við útrás Benjamrns dúfu, kvikmyndar Gísla. Hún var útnefnd sem etn af tíu bestu myndum í Skandinavíu árið 1996. í kjölfarið buðu Japanir aðstandendum þess- ara tíu mynda til Japan og var ferðast með þær vítt og breitt um landið, staðið fyrir sýningum í ýmsum söfn- um og bíóhúsum. Var meira um að ræða menningarviðburð en bíósýn- ingar í hefðbundnum skilningi. Gísli Snær fór og meðal annarra voru með í för Friðrik Þór, Þorfinnur Ómarsson og Egill Eðvaldsson ásamt fleiri nor- rænum kvikmyndagerðarmönnum. „Konan sem sá um að skipuleggja viðtöl og kynningar, jahh, okkur varð svona vel til vina að ég bauð henni til íslands. Við vorum hér I nokkrar vik- ur og í kjölfarið ákvað ég að fara að- eins út til Japan. Þar leið mér vel og landið bauð af sér góðan þokka. Þetta þróaðist svo þannig að við Miyuki lentum uppi við altarið á Shinto-vísu en ekki vestræna." Shinto er hin japanska trú, tengist ekki búddisma en gengur út á að maðurinn og náttúra sé í jafhvægi. Trúin sem gerði keisarana að full- trúum sólarinnar á jörðu. Alltof langt mál er að fara í saumana á trúnni hér og nú og Gísli segist ekki vera orðinn búddisti. „Mig minnir að það séu um sex milljónir viðurkenndra guða í Þeir geta átt það til að læsa mann í marga mánuði inni í herbergi með geit. Svo kúkar geitin, pissar og gerir það sem geitur gera. Shinto-trúnni. En svo geturðu líka fundið upp þinn eigin guð til dæmis til að vemda eins og eitt grjót í garð- inum hjá þér. Þetta er náttúrutrú." Þau Gísli Snær og Miyuki eiga fimm ára gamla dóttur sem heitir Sagiri Sól. „Já, við völdum japanskt og íslenskt nafh. Sagiri þýðir silki- mjúk þoka og svo er sólin. Nafn kon- unnar minnar þýðir hvítur snjór og sjálfur heití ég jú Snær. Ertu nokkuð farinn að tárast?" Japanskar konur stjórna bakvið tjöldin Ekki er orðum aukið að Japanir búa þröngt. Gísfi segist reyndar vera í ágætum málum en hann býr í þriggja herbergja íbúð sem er sæmi- leg jafiivel á íslenskan mælikvarða. „Þessir kústaskápar em meira svona þar sem einstaklingar búa og eru þá miðsvæðis. Slíkt tíðkast vitanlega víða en er yfirgengilegt í Japan. Stíll- inn er öðmvísi því þeir sofa á futon- dýnum sem er svo rúllað upp og sett- ar inn í skáp eftir svefn. Svefnher- bergið breytíst þá í stofu. Híbýlin em þannig margnota. Og alltaf er eitt Tatamí-herbergi, þar sem em Tatamí-grasmottur sérstakar á gólf- um og á þeim sofa menn." Það væri móðgun við lesendur ef Gísli væri ekki spurður út í muninn á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.